Dagblaðið Vísir - DV - 13.05.2016, Qupperneq 60
Helgarblað 13.–16. maí 201660 Fólk
Stáltech ehf. - tunguhálSi 10, Reykjavík - S: 5172322
CNC renniverkstæði
Spádómar um Eurovision
Þ
ó svo að Greta okkar Salóme
hafi fallið úr keppni á full-
komlega óskiljanlegan hátt
síðasta þriðjudag, eru Ís-
lendingar enn spenntir fyrir
úrslitum í söngvakeppni evrópskra
sjónvarpsstöðva sem fram fer á
laugardagskvöldið.
Grillveislur, búningapartí og aðrar
samkomur eru löngu orðnar hefð hjá
unnendum dægurtónlistar um þetta
leyti í maí. DV leitaði til nokkurra
Eurovision-spekinga og fékk þá til að
svara eftirfarandi spurningum:
Gerður Kristný
skáld
1 Ég ætla að halda með Hollending-um í ár. Lagið þeirra er svo ljúft.
Þriðjudagskvöldið var býsna skemmti-
legt. Hápunkturinn var þegar ísbíllinn
hringdi skyndilega fyrir utan húsið mitt í
miðri keppni og við synir mínir hlupum
öll út á náttfötunum til krækja okkur í ís.
2 All Kinds of Everything með hinni írsku Dönu verður alltaf
Eurovision-lagið mitt. Það er svo fallegt.
Síðan vann það líka vorið sem ég kom í
heiminn. Á tónhlöðunni minni er ég svo
með sænska lagið This Is My Life með
Önnu Bergendahl frá árinu 2010. Það er
bráðfallegt.
3 Ég verð heima hjá mér. Við fjölskyldan eigum eftir að horfa á
keppnina með öðru auganu, spjalla
heilmikið saman um lögin og atriðin og
jafnvel borða gotterí.
Brandur Logi
Tumason
nemandi
1 Ég held að það verði Rússland af því að það er með flott atriði og
gott lag. Frakkland er líka mjög gott í ár.
2 Uppáhalds Eurovision-lagið mitt frá upphafi er Augnablik sem heitir
Now á ensku. Alda Dís söng það í
keppninni hér heima 2016 og lenti í öðru
sæti á eftir Gretu. Ég held líka mikið upp
á All Out of Luck með Selmu, en í þessari
keppni er það rússneska lagið. Mér
finnst það mjög skemmtilegt og flott á
sviði.
3 Ég verð hjá fjölskyldunni minni pabba megin að horfa á
Eurovision og kannski kjósa. Ég hlakka
mikið til.
Lísa Kristjáns-
dóttir
aðstoðarmaður Katrínar
Jakobsdóttur
1 Ég spái Frakklandi sigri, svo held ég reyndar að Brigitte Bardot frá
Austurríki verði ansi ofarlega.
2 Mitt „all time favorite“ Eurovision-lag er klisja frá a-ö. Það er Svíþjóð
1999, Charlotte Nilson. Ég spáði því sigri
og Selmu öðru sæti í útvarpsviðtali og
var ekki vinsæl fyrir vikið. En það lag
hefur allt sem júrópopp ætti að hafa.
Tvær upphækkanir, blásturshljóðfæri
og bara allan pakkann.
3 Á laugardaginn verð ég í Kaupmannahöfn á vinnufundi,
býst ekki við að sjá mikið af keppninni.
En ég fylgist með á Twitter og
Facebook.
Eygló Margrét
Lárusdóttir
fatahönnuður
1 Ég er ekki búin að gera alveg upp hug minn, er samt búin að sjá flest myndböndin! hahaha. Ég
held með Armeníu í augnablikinu, hún er alveg
svakaleg söngkonan. Reyndar man ég ekkert
hvernig lagið er.
2 Uppáhaldslögin eru nokkur. Eistland árið 2009, Sebastian Tellier fyrir Frakkland
2008, Cezar fyrir Rúmeníu 2013 eru öll góð í
partíið. Spánn í fyrra sló öll met með mynd-
bandinu sínu og á þar með sérstakan stað í mínu
„corazon“. Loreen er auðvitað aðaldrottningin
líka!
3 Ég ætla að vera í Kramhúsinu á laugar-daginn, maður kemst ekki inn í það partí
nema í búningi. Kannski skelli ég mér bara í Loreen-
outfittið [Loreen keypti klæðnað eftir Eygló þegar hún
heimsótti Ísland um daginn, innsk. blm.]. Ég þarf að
finna hárkollu, synd að ég skyldi klippa mig um daginn.
Hallgrímur
Óskarsson
verkfræðingur og
lagahöfundur
1 Ég spái því að Svíþjóð sigri með lagið If I Were Sorry. Lagið er bara
svo mikið eins og lögin í dag eru, lítið,
krúttlegt, einlægt. Stóru lögin með „wall
of sound“ eru orðin örlítið þreytt og þess
vegna held ég að hinn sænski Frans fari
mjög langt. Austurríki og Rússland
verða einnig ofarlega.
2 Uppáhaldslög eru mörg. Af þeim íslensku er það Nína en svo finnst
mér serbneska lagið Molitva sem Marija
Šerifović flutti 2007 eitt það allra besta í
keppninni frá upphafi.
3 Ég verð heima á laugardaginn með
fjölskyldu. Ragnheið-
ur, konan mín, var
samt eitthvað að ýja
að óvæntum
laugardegi þannig að
kannski koma nokkrir
óvæntir og
skemmtilegir
gestir í
heimsókn.
n Mikil tilhlökkun n Gotterí og góður félagsskapur í vændum
Ragnheiður Eiríksdóttir
ragga@dv.is
1 Hvaða lagi spáir þú sigri í keppninni á laugardaginn?
2 Hvað er þitt uppáhaldslag úr keppninni, frá upphafi?
3 Hvar verður þú á laugardags-kvöldið? Mynd Hanna andRésdóttiR
Mynd sigtRygguR aRi
Sérbakað
fyrir þig
Allt fyrir fermingar
tertur, heitir réttir,
brauðtertur, snittur
og margt fleira.
Sími: 483 1919 - almarbakari@gmail.com Hveragerði og Selfossi