Dagblaðið Vísir - DV - 27.05.2016, Blaðsíða 22

Dagblaðið Vísir - DV - 27.05.2016, Blaðsíða 22
Helgarblað 27.–30. maí 20164 Afþreying - Kynningarblað Mögnuð EM-stemning á Snóker- og poolstofunni Hægt að fylgjast með þremur leikjum í einu S nóker- og poolstofan er rót- gróið fyrirtæki og hefur ver- ið í Lágmúla 5 í Reykjavík síðan 1998. Miklar endur- bætur og útlitsbreytingar eru nú í gangi, verið er að koma fyrir yfir hundrað stólum og tveimur tíu manna sófum til að knattspyrnu- aðdáendur geti gert sér glaðan dag við að fylgjast með strákunum okk- ar á EM í Frakklandi. Brynjar Valdi- marsson, eigandi staðarins, vinnur nú hörðum höndum að því að gera stemninguna magnaða: „Nú erum við að koma inn stól- um, það verða um 100 sæti laus, 15 við borð. Svo verða sérstök lúxus- borð og sófar sem fólki gefst kostur á að panta. Bjórinn er venjulega á 840 krónur en þegar strákarnir okkar verða að spila verður bjórinn á sér- stöku tilboði, einungis 590 krónur.“ Hægt að fylgjast með þremur leikjum í einu „Hljóðkerfið er örugglega eitt það flottasta ef ekki það flottasta á landinu. Hátalararnir eru óteljandi og munu snúa niður sem gerir okk- ur kleift að sýna allt að fimm leiki í einu með fullu hljóði. En ég geri ráð fyrir að við sýnum þrjá í einu til að koma í veg fyrir að hljóð úr einum leik trufli hina,“ segir Brynjar stoltur. Á Snóker- og poolstofunni býðst áhugasömum að eignast klúbba- kort fyrir 500 krónur á ári. Kortið gerir klúbbmeðlimum kleift að fá afslátt af bæði leikjum og veitingum. „Við reynum að vera eins ódýr og hægt er og því er verðið hjá okkur mjög hagstætt, á bæði drykkj- um og mat,“ segir Brynjar. Boðið er upp á veitingar á staðnum; drykki, smá- rétti, ham- borgara og pits- ur: „Við erum með hamborgara og seljum mikið af þeim enda eru þeir ansi góðir, einnig pitsur frá Italiano sem er í Kópavogi. Þegar við erum með hópa þá getum við pantað frá þeim fyrir hópinn.“ Aðstaðan mjög góð „Búið er að koma upp mjög góðri aðstöðu til að horfa á boltann og aðra viðburði. Uppi eru fjórtán flat- skjáir og fimm hágæða skjávarp- ar sem sjá um að allir gestir geti fylgst með. Öll sjónvörpin eru í HD og hægt er að horfa á í 3D,“ segir Brynjar, og nefnir mótin sem hafa verið haldin á staðnum fyrir Billi- ardsamband Íslands, bæði í pool og snóker. Það er því alltaf eitthvað að gerast á Snóker- og poolstof- unni. Á staðnum eru átján pool- borð og fjögur snókerborð og er mikið um að bæði einstaklingar og hópar sæki staðinn. n Snóker- og poolstofan Lágmúla 5, Reykjavík S: 581-1147 - netfang pool@pool.is Heimasíða www.pool.is, Facebook Opnunartími Sunnd. til fimmtud. frá kl. 11:00 – 01:00. Föstudaga og laugardaga frá kl. 11:00 – 03:00

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.