Dagblaðið Vísir - DV - 27.05.2016, Blaðsíða 6
Helgarblað 27.–30. maí 20166 Fréttir
Traust fasteignaviðskipti
og persónuleg þjónusta
- þinn lykill að nýju heimili
414 6600 | nyttheimili.is
FRÍTT
SÖLUMAT
Reynir Eringsson
820 2145
Skúli Sigurðarsson
898 7209
Guðjón Guðmundsson
899 2694
Fasteignasala
Leigumiðlun
Ráðherrabílaflotinn endurnýjaður
Þessir bílar hafa verið keyptir á kjörtímabilinu
Ráðherra Tegund bifreiðar Kaupverð Kaupár
Utanríkisráðherra Land Rover Discovery 13.229.810 2014
Fjármála- og efnahagsráðherra Mercedes Benz E250 9.587.850 2014
Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra Land Cruiser 150 VX 12.699.900 2015
Forsætisráðherra Mercedes Benz S-350 12.785.000 2015
Innanríkisráðherra BMW X5 40e xDrive 9.150.000 2016
Fimm nýir bílar keyptir fyrir: 57,4 milljónir króna
Fjórir gamlir bílar seldir fyrir: 9 milljónir króna
Mismunur: 48,4 milljónir króna
G
engið hefur verið frá kaup-
um á nýrri ráðherrabifreið
fyrir Ólöfu Nordal innanrík-
isráðherra. Er ráðherra nú
kominn á glæsilegan BMW
X5-jeppa sem leysir af hólmi níu ára
gamlan Mercedes-Benz ráðherrabíl
innanríkisráðuneytisins sem var
mikið ekinn og þarfnast lagfæringa.
Kaupverðið á nýja ráðherrabílnum
nemur 9.150.000 króna og var hann
afhentur fyrr í þessum mánuði.
Þetta er fimmta ráðherradrossían
sem endurnýjuð er á núverandi kjör-
tímabili en áður höfðu forsætisráð-
herra, fjármála- og efnahagsráðherra,
sjávarútvegs- og landbúnaðarráð-
herra og utanríkisráðherra fengið nýj-
ar og glæsilegar bifreiðar. Kaupverð
þessara fimm nýju ráðherrabifreiða
nemur rúmlega 57 milljónum króna.
Á móti hafa fengist um 9 milljón-
ir króna með sölu á þeim fjórum
bifreiðum sem áður höfðu verið
endurnýjaðar.
Gamli þarfnast lagfæringa
Gamla ráðherrabifreið innanríkis-
ráðuneytisins, Mercedes-Benz
E 280 CDI 4Matic, var keypt
ný árið 2007 fyrir það sem
þá hét dómsmála- og mann-
réttindaráðuneytið.
Eins og venja er annast
Ríkiskaup nú söluna á gömlu
bifreiðinni og er hún nú auglýst á upp-
boðsvefnum Bílauppboð.is. Þar kem- ur fram að bifreiðin
sé ekin rúma 220
þúsund kílómetra
en hafi sem ráð-
herrabifreið alltaf fengið gott viðhald
enda lítur hún afar vel út. Hins vegar
þarfnist hún lagfæringa. Bremsur þarf
að fara að laga og líklegt er talið að
skipta þurfi um bremsuklossa. Búið
sé að skipta um loftpúðadempara að
framan vinstra megin. Bifreiðin var
skráð á uppboðsvefinn á þriðjudags-
kvöld og því enn ekki seld.
Glæsilegur BMW-jeppi
Nýi ráðherrajeppinn er hins vegar
hinn glæsilegasti. Um er að ræða
BMW X5 40e, sem er Plug-in hy-
brid og því knúinn áfram af sam-
spili bensínvélar og rafmagns. Af
þeim sökum eyðir hann aðeins um
3,3 lítrum á 100 kílómetra auk þess
sem CO2 mengun hans er aðeins
78g/km.
Þrátt fyrir að vera eyðslugrannur
og umhverfisvænn þá er hann engu
að síður kraftmikill. Þessi sjálfskipti
jeppi er 313 hestöfl, með tog upp á
450Nm og er 6,8 sekúndur upp í 100
kílómetra hraða samkvæmt upp-
lýsingum frá umboði. Ráðherrabíll-
inn stenst því vel þær öryggis-, um-
hverfis- og gæðakröfur sem gerðar
eru til ráðherrabifreiða. Oftast er mið-
að við að CO2 mengun skuli ekki fara
yfir 170g/km, eldsneytiseyðsla eigi
að vera undir 7 lítrum á hundraði í
blönduðum akstri, tog ekki undir 400
Nm og viðbragð bifreiðar frá 0–100
km/klst. sé ekki yfir 8 sekúndum.
Nýi ráðherrajeppinn var keypt-
ur þann 11. maí síðastliðinn í kjölfar
örútboðs þar sem tilboði BL ehf. upp
á rúma 9,1 milljón króna var tekið.
Ráðherrar hafa enga aðkomu
Rétt er að benda á að ráðherrar hafa
enga aðkomu að þeirri ákvörðun að
hefja innkaupaferli né ákvörðun um
hvaða tilboði er tekið. Það er á hendi
embættismanna viðkomandi ráðu-
neyta. Ákvörðun um kaup á ráð-
herrabílum er samkvæmt upplýsing-
um sem DV fékk frá ráðuneytum á
sínum tíma tekin á grundvelli faglegra
og rekstrarlegra forsendna. Þá vegi ör-
yggisþátturinn þungt. Þá er líka litið til
þess að um viðhafnarbifreið er að ræða
og er miðað við kröfur frá embætti Rík-
islögreglustjóra um slíka bíla. n
Sigurður Mikael Jónsson
mikael@dv.is
Dýrar drossíur Fyrir kaupin á bifreið innanríkisráðuneytisins
höfðu fjórar ráðherrabifreiðar verið endurnýjaðar á kjörtímabilinu.
Innanríkisráðherra fær
glæsilegan BMW-jeppa
n Ráðuneytið skiptir út níu ára Benz n Kaupverðið 9,1 milljón króna
Komin á
nýjan og betri
Ólöf Nordal inn-
anríkisráðherra
er nú komin á
þennan nýja
BMW X5-jeppa.
Guðmundur
hefur hafið
afplánun
Guðmundur Ólason, fyrrverandi
forstjóri fjárfestingafélagsins Mile-
stone, hefur hafið afplánun vegna
dóms sem hann hlaut í Hæstarétti
í Milestone-málinu í lok apríl. Var
hann dæmdur í þriggja ára fangelsi
og afplánar nú, samkvæmt heim-
ildum DV, á Kvíabryggju. Guð-
mundur var ásamt bræðrunum
Karli og Steingrími Wernerssonum
ákærður fyrir að hafa látið Mile-
stone fjármagna kaup bræðranna
á hlutafé systur þeirra, Ingunnar,
í félaginu. Samkvæmt ákærunni
var það með öllu óvíst hvenær eða
með hvaða hætti Milestone fengi
fjármunina til baka. Guðmundur
hætti síðasta sumar störfum í fyrir-
tækjaráðgjöf MP banka. Tók hann
þá við starfi forstjóra orkufyrirtæk-
isins Arctic Green Energy China,
áður Orka Energy. Hann hefur
nú látið af því starfi og sagt sig úr
stjórn Arctic Green Energy.
Bláa lónið
græðir 2,3
milljarða
Bláa lónið hagnaðist um 2,3
milljarða króna á árinu 2015 en
tekjur fyrirtækisins námu þá 7,9
milljörðum króna. Nýtt met var
sett í fjölda heimsókna á árinu
en 919 þúsund manns heim-
sóttu þá laugasvæði fyrirtækisins.
Þeta kemur fram í ársskýrslu Bláa
lónsins fyrir árið 2015. Eignir fé-
lagsins námu 76 milljónum evra
í lok árs 2015, eða jafnvirði 10,6
milljarða íslenskra króna.