Dagblaðið Vísir - DV - 27.05.2016, Blaðsíða 21
Helgarblað 27.–30. maí 2016 Kynningarblað - Afþreying 3
Áhugaverðar ferðir fyrir hjólandi heldri
borgara og brattgenga göngugarpa
Íslandsvinir bjóða þér að koma ÚT að hreyfa þig ...
F
erðaskrifstofan Íslands-
vinir sérhæfir sig fyrst og
fremst í hvers konar úti-
vistar- og hreyfiferðum
og hefur aðaláherslan
verið á göngu-, hjóla- og skíða-
ferðir, þó svo að ýmsar ferðir
aðrar séu líka á dagskrá skrif-
stofunnar, eins og til dæmis að-
ventuferðir til Þýskalands næsta
vetur.
Brandur Jón Guðjónsson er
ábyrgðaraðili utanlandsferða
Íslandsvina: „Við erum stolt af
fjölbreyttu úrvali okkar og erum
einmitt þessa dagana að selja
síðustu sætin í haustferðirnar, en
það eru þrjár hjólaferðir; með-
fram Dóná, um Slóveníu og um
Kvarnerflóann í Króatíu, og síð-
an tvær gönguferðir, umhverfis
Mont Blanc og til Tirol í Austur-
ríki. Allt frábærar ferðir um fallegar
slóðir!“
Brandur segir hjólaferðina með-
fram Dóná í september verða lúxus-
ferð þar sem allir þátttakendur verða
á rafhjólum auk þess sem dvalið
verði á mjög góðum hótelum, þetta
sé því kjörin ferð fyrir „heldri“ borg-
ara. „Ég verð líka að minnast betur
á flotta gönguferð sem hjónin Sig-
rún Hallgrímsdóttir og Hilmar Aðal-
steinsson verða fararstjórar í,“ segir
Brandur „en það er umhverfis Mont
Blanc, hæsta fjall Vestur-Evrópu.
Leiðin er kölluð Tour du Mont Blanc
(TMB) og í þeirri ferð, sem tekur
samtals fimmtán daga, verður á ell-
efu göngudögum farið um stórbrot-
ið landslag, fjallaskörð og fagra dali.
Þetta er krefjandi ferð og hún
er hugsuð fyrir þann stóra
hóp Íslendinga sem er búinn
að vera virkur í hvers konar
gönguferðum hérlendis og
sem vill upplifa eitthvað nýtt. Það
þekkja allir nafnið Mont Blanc, en
þarna gefst kjörið tækifæri til þess að
koma og upplifa nálægðina við fjall-
ið.“
Að lokum vill Brandur hvetja
þá sem áhuga hafa á að fara ÚT að
hreyfa sig til að kíkja inn á heima-
síðu Íslandsvina þar sem fá má
upplýsingar um allar ferðir skrif-
stofunnar. n
Íslandsvinir hf - ferðaskrifstofa
Reykjavíkurvegi 64, 220 Hafnarfirði
sími 5109500 / info@explorer.is
islandsvinir.is / islandsvinir á facebook