Dagblaðið Vísir - DV - 27.05.2016, Blaðsíða 15

Dagblaðið Vísir - DV - 27.05.2016, Blaðsíða 15
Helgarblað 27.–30. maí 2016 Umræða 15 Gleraugnaverslunin Eyesland 5. hæð Glæsibæ www.eyesland.is S: 577-1015 Létt og þægileg í veiðina Veiðigleraugu með og án styrktarglugga Kíktu við og mátaðu! Stáltech ehf. - tunguhálSi 10, Reykjavík - S: 5172322 CNC renniverkstæði og að við Óli værum þar með að láta gamlan draum rætast, láta verða af þessu sem við höfðum talað um í tíu, tuttugu ár. Og þá kom í ljós að þetta hafði einnig verið draumur Arnald- ar og vinar hans og samstarfsmanns, Sæbjörns Valdimarssonar, sem nú er látinn. Og það varð að samkomu- lagi að við myndum allir halda hóp- inn, þeir á sínum bíl sem þeir myndu leigja, og við á okkar gamla. Og ætl- unin var að leggja í hann um 20. apr- íl 2006. Þegar til kom neyddumst við Óli til að fresta okkar för um mánuð, einn úr föruneytinu var kallaður inn í smá aðgerð, en frestunin hentaði ekki Arnaldi, því að hann ætlaði að útskrifa son sinn úr menntaskóla um það bil sem við Óli myndum leggja í hann. Niðurstaðan varð sú að Arnald- ur og Sæbjörn færu af stað svona viku á eftir okkur, flygju til Denver inni á miðri heimsálfunni, og svo héldum við allir hópinn seinni hluta leiðar- innar. En fyrir einhvern misskiln- ing þá gleymdist að ákveða hvernig við myndum hittast eða verða í sam- bandi; ég hélt að forlagið hefði geng- ið frá slíku við Arnald, en þar á bæ héldu menn að ég myndi sjá um það, svo að þegar til kom vorum við ekki í neinu sambandi og hittumst ekk- ert á leiðinni; þá voru farsímar mun ófullkomnari en nú er og farsímakerfi virkuðu lítt í dreifbýli, og enginn okk- ar sérlega tækjasinnaður. Ameríka er óhemju flæmi eins og menn vita, og þótt tveir bílar séu á svipuðum slóð- um á svipuðum tíma er næstum úti- lokað, bara út frá líkindareikningi, að þeir muni hittast; við „ferðafélagarn- ir“ vorum semsé einungis á þann hátt samferðamenn að við vorum á ferð í sömu heimsálfunni sömu vikurn- ar. En á endastöð, í milljónaborginni San Fransisco, hittumst við samt fyrir tilviljun; ég var einn á gangi einhvers staðar miðsvæðis þegar ég heyri Arn- ald kalla til mín. Allt sem bilað gat ... Fyrsti hluti leiðarinnar var frá New York og til Chicago. Þar hefst Route 66 og liggur fyrst að mestu í suðurátt og svo í vestur alla leið til Los Ang- eles. Í Chicago beið okkar hálfr- ar aldar gamli kagginn, og virtist satt best að segja ekki vera í sérlega góðu standi; fyrsta hluta leiðarinn- ar fórum við á öðrum örlítið yngri. Þar sem við Sveinn í Plúsfilm vor- um saman á gangi í útjaðri Chicago og í námunda við verkstæðið þar sem var verið að tjasla saman kagg- anum gengum við fram á bílasölu og þar skellti Svenni sér á gamlan BMW með topplúgu; úr henni myndi hann geta filmað ef einhver keyrði fyrir hann. Og við lögðum semsé af stað þessa óraleið á tveimur gömlum og slitnum bílum sem alltaf voru að bila á víxl, og stundum báðir í einu. Setti þetta mjög svip á okkar för, sem varð ólíkt minna túristaleg fyrir vikið; í stað þess að stoppa eingöngu á þeim merkilegustu stöðum á leiðinni þar sem allir stoppa og túristabækur mæla með, þá vorum við líka langdvölum í hinum fáheyrð- ustu plássum, því það var ver- ið að reyna að laga bílana. Eitt sinn vorum við á vegamóteli þar sem við höfðum gist þá nóttina, vorum að fá okkur morgunverð og búa okkur til farar, og hittum þá þýskan ferðamann sem var á sömu leið og við, nema hvað hann var á reiðhjóli! Þótti okkur það ærið kúnstugt, enda leiðin óralöng, og óskuðum við hon- um glottandi góðrar ferðar, von- uðum að hann myndi um síðir ná lokatakmarkinu. Svo spænd- um við úr hlaði á köggunum okk- ar. Þegar liðið var á dag hittumst við aftur; hann hjólaði framhjá og veifaði elskulega til okkar þar sem við vorum að reyna að laga bílana í vegarkanti. Sérvitringar í svækju Það varð ærið heitt inni í bílunum, sérstaklega eftir því sem við kom- um sunnar og vestar, það voru langar leiðir sem lágu um eyðimerkur Arizona og Nýju-Mexíkó, og í Moja- ve-eyðimörkinni var hitinn kom- inn yfir 40 gráður. Og hafi einhvern tíma verið loftkæling í gömlu bílun- um okkar, þá var hún í það minnsta fyrir löngu hætt að virka. Við ferða- félagarnir vorum allir heldur sérvitr- ir, eins og menn verða gjarnan með árunum, vilja hafa hlutina eftir sínu höfði, og stundum stönguðust hug- myndir okkar um ferðatilhögun og annað slíkt á. Var ekki alveg laust við að menn væru að verða örlítið leið- ir hver á öðrum er við loksins náðum til Kyrrahafsins eftir vegina um sól- bakaðar eyðimerkurnar. Í Los Ang- eles stoppuðum við í tvo eða þrjá daga og héldum okkur við ströndina, Venice Beach eins og hverfið heit- ir. Þar fannst mér gott að geta setið einn, á útikrám við ströndina, drukk- ið nokkra kalda, ameríska bjóra og horft á öldur Kyrrahafsins á meðan þreytan og ferðastressið leið úr mér. Þar sem ég var á gangi síðla dags að hótelinu okkar eftir langa slíka setu sá ég mann sem var að selja bómullarboli með ýmsum mynd- um og áletrunum, meðal annars þessari sem vakti áhuga minn: „I‘m not an alcoholic. Alcoholics go to meetings!“ Og þá rifjaðist upp frasi sem ég heyrði einu sinni hjá Sigga Valgeirs, en hann sagði vera tilvitn- un í leikarann og söngvarann Dean Martin: „Maður er ekki fullur ef mað- ur getur legið á gólfinu án þess að halda sér.“ n Úti að aka „Við ferðafélagarn- ir vorum allir heldur sérvitrir, eins og menn verða gjarnan með árunum. Ólafur Gunnarsson og höfundur „Sumir hafa gert grín að okkur Óla, tveimur miðaldra mönnum að láta einhvern stráka- og töffara- draum rætast.“ Mynd JohAnn PAll VAldiMArSSon

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.