Dagblaðið Vísir - DV - 27.05.2016, Blaðsíða 38

Dagblaðið Vísir - DV - 27.05.2016, Blaðsíða 38
Helgarblað 27.–30. maí 201634 Fólk Kjöreign ehf - Ármúla 21 - 108 Reykjavík Sími: 533-4040 - www.kjoreign.is Dan Wiium Hdl, lögg. fasteignasali, Sími 896-4013 Ólafur Guðmundsson Sölustjóri, sími 896-4090 Þórarinn Friðriksson Lögg. fasteignasali, sími 844-6353 Rakel Salóme Eydal Skjalagerð Sigurbjörn Skarphéðinsson Lögg. fasteignasali, skjalagerð Kjöreign fasteignasala – traust og örugg þjónusta í 40 ár Ásta María Benónýsdóttir Fjármál „Fólk mun fá nýja sýn á liðið“ Þ að eru í myndinni hjartnæm augnablik, þar sem menn eru mjög innilegir,“ segir kvik- myndagerðarmaðurinn Sölvi Tryggvason. Hann er nú að leggja lokahönd á Jökullinn logar, heimildamynd um undankeppni ís- lenska karlalandsliðsins í knattspyrnu. Sölvi fylgdi strákunum okkar í gegn- um alla leiki undankeppninnar ásamt leikstjóranum Sævari Guðmunds- syni. „Þetta hefur verið langt ferðalag og mikið vatn runnið til sjávar,“ seg- ir Sölvi, sem fékk hugmyndina þegar HM í knattspyrnu fór fram 2014 – mót sem Íslendingar misstu naumlega af. „Myndin er sagan af gullkynslóð íslenskrar knattspyrnu sem skráði sig í sögubækurnar með því að verða fá- mennasta þjóð sögunnar til að kom- ast í lokakeppni stórmóts í vinsælu- stu íþrótt heims,“ segir í kynningu um myndina. Sölvi viðurkennir að hafa þurft að beita fortölum til að fá óheft- an aðgang að liðinu. Um aðgengið gilda skýrar reglur, bæði frá UEFA og FIFA, ásamt þeim reglum sem þjálf- arar og KSÍ setja. „Ég þurfti að byrja á því að sannfæra Lars og Heimi,“ seg- ir Sölvi. Stigu stundum á línuna Í fyrstu keppnisferðinni var hann einn síns liðs en fékk síðar – þegar reynsla var komin á samskiptin – að hafa með sér leikstjóra og töku- mann. Sölvi segir við DV að fyrst um sinn hafi strákarnir verið mjög var- ir um sig í kringum myndavélina en þegar líða tók á samstarfið varð and- rúmloftið léttara og hann fékk betri og dýpri viðtöl. „Við náðum að dansa á þessari línu býsna vel,“ segir hann um mörkin sem þjálfararnir og leik- menn settu þeim. „Við stigum stund- um aðeins á línuna en vorum þá til- búnir að bakka. Það hjálpaði auðvitað hvað þeim gekk vel í leikjunum,“ segir hann og telur að andrúmsloftið hefði verið öðruvísi ef liðið hefði ekki verið á sigurbraut. Blanda af léttleika og alvöru Sölvi segir aðspurður að í myndinni kynnist áhorfendur ákveðnum leik- mönnum nánar en áður. Hann segir að andinn í hópnum sé einstakur og að það skíni úr andlitum strákanna hversu gaman þeim þykir að vera saman. Á bak við tjöldin séu ferð- irnar hárrétt blanda af léttleika og alvöru. „Ég hugsaði stundum með mér hvernig það væri að vera inni á hótelinu hjá hinum liðunum. Ég geri mér í hugarlund að það hefði verið svolítið öðruvísi. Strákunum finnst, mjög einlæglega, gaman að hittast og njóta þessa að vera saman.“ Til marks um samkenndina nefn- ir hann viðhorf þeirra sem höfðu það hlutskipti að sitja á bekknum í undankeppninni. „Varamennirn- ir sem spiluðu aldrei voru aldrei að væla. Þeir styðja félagana í þeirra stöðu inni á vellinum. Og það er raunverulegur stuðningur. Fyrir mér var magnað að fylgjast með þessu. Það er óvenjulegt hve vel þeir ná saman.“ Ekki sýnd í sjónvarpinu Fréttir bárust af því í vetur að fjár- mögnun myndarinnar gengi erfið- lega. Sölvi segir að með mikill þraut- seigju hafi þeim tekist að fá styrk frá Kvikmyndasjóði en þeir eigi töluvert undir því að myndin verði vel sótt í kvikmyndahúsum – auk þess sem þeir munu reyna að selja myndina til útlanda. Hann segir að þeir Sævar hafi lengi vel unnið við myndina al- veg launalaust en hún verður frum- sýnd þann 3. júní næstkomandi. Hún verður ekki sýnd í sjónvarpinu fyrir EM. „Við eigum mikið undir því að fólk mæti í bíó,“ segir hann. Ný sýn á liðið „Já og nei,“ svarar Sölvi spurður hvort stiklan fyrir myndina gefi áhorfend- um glögga mynd af verkinu. Hann segir að fyrst hafi þeir gert stiklu sem sýndi meira hvaða aðgang þeir höfðu að leikmönnum en í endan- legri útgáfu er meiri áhersla lögð á gleðina og „hetjufílinginn“. „Myndin sjálf mun sýna betri innsýn inn í þann aðgang sem við höfðum. Fólk mun fá nýja sýn á liðið.“ Hann segir að eftir því sem á keppnina hafi liðið hafi strákarnir farið að sýna á sér léttari hliðar – og kannski fellt grímu fagmennskunnar utan vallar. „Það tók tíma að fá þá til að vera rólega í kringum mig. Það var mjög gam- an þegar ég fann að þeir treystu mér nógu vel til að tala opinskátt í kring- um mig. Þá fóru þeir að leyfa sér þennan fíflagang, þennan léttleika, sem einkennir hópinn og er hluti af árangrinum.“ Eins og heyra má í stiklunni sem birt hefur verið eru tekin einlæg við- töl við leikmenn. Sölvi segir að einn leikmaður tali til dæmis um það hvernig fótboltinn bjargaði honum úr viðjum ofvirkni- og athyglisbrests auk þess sem þeir ræða um drauma sína og markmið. Þá birtist jafnframt áður óbirt myndefni frá æskuárum landsliðsmannanna. Spurður hvernig hann upplifði hlutverk Lars og Heimis segir hann að strákarnir beri mikla virðingu fyr- ir þeim og séu meðvitaðir um að Lars „er gæinn sem sendi Zlatan heim þegar hann var með stæla“. Hann segir að í grunninn gildi ákveðnar reglur sem séu ófrávíkjanlegar, svo sem eins og um áfengisneyslu, en að mikill slaki sé þess fyrir utan. Sölvi heillaðist mjög af stjórnunarstílnum. Reglurnar séu fáar en afar skýrar. „Síðan mega menn vera í friði utan þess ramma og þjálfararnir eru alltaf tilbúnir að ræða málin. Mönnum er treyst – enda eru þetta fullorðnir menn.“ n n Sölvi Tryggvason fylgdi strákunum okkar í gegnum undankeppnina n Jökullinn logar frumsýnd 3. júní Með Þorgrími Þráins Sölvi fylgdi íslenska landsliðinu á alla leiki undankeppninnar. MyNd Úr EiNkaSafNi Baldur Guðmundsson baldur@dv.is S HELGASON - Steinsmiðja síðan 1953 Opnunartími Mán - fim 9:00 -18:00 Föstudaga 9:00 - 17:00 Laugardaga 10:00 -14:00 Sími: 557 6677 Netfang: shelgason@shelgason.is www.shelgason.is 25% afsláttur af öllum granít legsteinum út maí

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.