Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 14.10.2016, Qupperneq 4

Dagblaðið Vísir - DV - 14.10.2016, Qupperneq 4
Helgarblað 14.–17. október 20164 Fréttir PLUSMINUS OPTIC Smáralind www.plusminus. is Sumar kaupauki Sólgler með öllum gleraugum Index 1,5* Sjóngler PLUSMIN OPTIC Smáralind www.plusminus. is Sumar kaupauki Sólgler með öllum gleraugum Index 1,5* Sjóngler 20% kynningar- afsláttur Sérhönnuð skjávinnugler s vernda augun Geimvísinda- tillaga samþykkt Eitt af síðustu verkum þing­ manna áður en Alþingi var slitið í gær, fimmtudag, var að sam­ þykkja þingsályktunartillögu Helga Hrafns Gunnarssonar Pírata um aðild Íslands að Geimvísindastofn­ un Evrópu. Tillagan vakti nokkra kátínu þegar hún var lögð fram í sumar enda nokkuð fjarlægt flest­ um Íslendingum að taka þátt í geimferðum eða geimvísindastarfi. Helgi Hrafn benti hins vegar á að fjöldi verkefna í hugbúnaðar­ geiranum tengdist stofnuninni, hún stæði fyrir jarðfræðiverkefn­ um og líklegt væri að aðild gæti skapað fjölbreyttari atvinnutæki­ færi og möguleika á menntun. Þá gæti aðild að stofnuninni auk­ ið áhuga barna og ungmenna á raungreinum. Fór svo að þings­ ályktunartillagan var samþykkt með öllum greiddum atkvæðum. H&M opnar í Kringlunni Reitir fasteignafélag hf., eigandi Kringlunnar, tilkynnti í dag að viðræður við tískurisann H&M væru á lokametrunum. Greint er frá málinu í Við­ skiptablaðinu en þar kom fram að ráðgert sé að H&M verði opnað á síðari hluta næsta árs í Kringlunni. Líkt og DV hef­ ur áður greint frá hefur þegar verið tilkynnt um opnun H&M í Smáralind og á Hafnartorgi. Verslunar keðjan hefur notið mik­ illa vinsælda hjá Íslendingum sem hingað til hafa þurft að sækja verslanirnar heim í verslunar­ ferðum erlendis. F járfestingafélag í eigu Einars Arnar Ólafssonar, fyrrverandi forstjóra Skeljungs, hefur eignast rúmlega 2% hlut í Tryggingamiðstöðinni (TM) og er komið í hóp stærstu hlut­ hafa tryggingafélagsins. Miðað við gengi bréfa TM í lok viðskipta í gær, fimmtudag, er markaðsvirði eignarhlutarins um 365 milljónir króna. Í samtali við DV segir Einar Örn að hann hafi byrjað að kaupa bréf í fé­ laginu fyrir nokkrum vikum. „Eftir að hafa skoðað markaðinn leist mér best á TM af tryggingafélögunum þremur og ég hef trú á öflugum stjórnendum fyrirtækisins.“ Aðspurður hvort hann hyggist byggja upp stærri stöðu í TM á næstunni, meðal annars í því skyni að sækjast eftir sæti í stjórn félagsins á aðalfundi á næsta ári, segir Einar Örn of snemmt að segja fyrir um það, en á þessari stundu séu engin slík áform uppi. Fjárfesting Einars Arnar í TM er gerð í gegnum félagið Einir ehf., sem áður hét Einarsmelur, en 2,05% hlutur, samkvæmt hluthafalista TM í lok síð­ ustu viku, gerir félagið að 14. stærsta hluthafa tryggingafyrirtækisins. Á sama tímabili og Einar Örn var að kaupa upp bréf í TM stækk­ aði fjárfestingafélagið Helgafell ehf., sem er í jafnri eigu Bjargar Fenger, Ara Fenger og Kristínar Fenger Ver­ mundsdóttur, hlut sinn í TM um ríf­ lega 1,3 prósentustig þegar félagið keypti 9,8 milljón hluti í TM þann 30. september síðastliðinn. Helgafell og F eignarhaldsfélag, sem eru í eigu sömu aðila, eru í dag skráð fyrir sam­ tals 6,05% hlut í tryggingafélaginu. Sá sem stýrir fjárfestingum félag­ anna er Jón Sigurðsson, fyrrverandi forstjóri FL Group og eiginmaður Bjargar, en hann hætti störfum hjá fjármálafyrirtækinu GAMMA Capi­ tal Management fyrr á árinu. Jón var meðal annars um tíma stjórnarfor­ maður TM en sagði sig úr stjórn fé­ lagsins árið 2010. Fjórir stórir einkafjárfestar Stærstu hluthafar TM eru Lífeyris­ sjóður verslunarmanna, Gildi lífeyris sjóður og hlutabréfasjóður í rekstri sjóðastýringarfyrirtækisins Stefnis. Ríflega 6% hlutur Helgafells og F eignarhaldsfélags þýðir að fé­ lögin eru stærsti einkafjárfestirinn í hluthafahópi TM. Aðrir umsvifa­ miklir einkafjárfestar á meðal eigenda tryggingafyrirtækisins eru, fyrir utan fjárfestingafélag Einars Arnar, félögin Riverside Capital ehf., sem er í eigu Örvars Kærne­ sted fjárfestis, með 2,63% hlut og Þrír GAP ehf., sem er í eigu Kjartans Gunnarssonar, fyrrverandi fram­ kvæmdastjóra Sjálfstæðisflokksins, með 2,15% hlut. Örvar er jafnframt stjórnarformaður TM. TM hefur skilað góðri rekstrar­ niðurstöðu síðustu misseri og hefur fyrirtækið skorið sig úr í samanburði við önnur tryggingafélög á markaði. Hagnaður félagsins meira en tvö­ faldaðist á fyrri árshelmingi og nam 1.174 milljónum króna á meðan af­ koma hinna tryggingafélaganna – VÍS og Sjóvár – versnaði á milli ára. Þannig voru bæði tekjur TM af fjár­ festingar­ og vátryggingarstarfsemi betri á tímabilinu en áætlanir höfðu gert ráð fyrir. Gengi bréfa í félaginu hefur hækkað um 5,7% frá ársbyrjun en á sama tíma hefur úrvalsvísitala Kauphallarinnar lækkað um 7,4%. Hagnaðist á sölu Skeljungs Einar Örn var ráðinn forstjóri Skelj­ ungs vorið 2009 en hætti þar störf­ um fimm árum síðar þegar fyrirtæk­ ið var selt til framtakssjóðs í rekstri Stefnis fyrir samtals átta milljarða. Við söluna á Skeljungi og færeyska olíufélaginu P/F Magn, dótturfélagi Skeljungs, innleysti Einar Örn um 830 milljóna króna hagnað en fé­ lag hans hafði átt 22% hlut í Heddu eignarhaldsfélagi. Það félag átti 66% hlut í P/F Magn og fjórðungshlut í Skeljungi. Fjárfestingafélag Einars Arnar, Einir ehf., á jafnframt enn í dag 0,6% í Skeljungi. Eftir að Einar Örn lét af störfum sem forstjóri Skeljungs hefur hann komið að ýmsum fjárfestingum, meðal annars í gegnum félagið Fiski­ sund ehf. sem er í jafnri eigu hans, Höllu Sigrúnar Hjartardóttur, fyrr­ verandi stjórnarformanns FME, og Kára Þórs Guðjónssonar fjárfestis. Þau tvö síðastnefndu áttu sömuleiðis 22% hlut í Heddu eignarhalds félagi. Fiskisund kom að kaupum á Fjarða­ lax í árslok 2013 og í kjölfarið gerðist Einar Örn framkvæmdastjóri félags­ ins. Fyrr á þessu ári var síðan tilkynnt um sameiningu félaganna Arnar­ lax og Fjarðalax undir nafni Arnar­ lax en samhliða því bættist Salmar, eitt stærsta laxeldisfyrirtæki í heimi, í hluthafahópinn ásamt nýjum ís­ lenskum fjárfestum. Fiskisund á núna um 15% hlut í sameinuðu fé­ lagi og situr Einar Örn í stjórn þess. Á síðasta ári skilaði fjárfestinga­ félagið Einir 92 milljónum króna í hagnað. Félagið er nánast skuld­ laust og var eigið fé þess um 1.079 milljónir króna í árslok 2015. n Hörður Ægisson hordur@dv.is TM Hlutur Einars Arnar í tryggingafé- laginu er metinn á 365 milljónir. Fyrrverandi forstjóri Skeljungs í hópi stærstu hluthafa TM n Einar Örn Ólafsson eignast rúmlega 2% hlut í tryggingafélaginun Er 14. stærsti hluthafinn K ona sem sýknuð var af kyn­ ferðisbroti gegn annarri konu mun þurfa að mæta aftur fyr­ ir dóm en Hæstiréttur hefur ómerkt úrskurð Héraðsdóms Suður­ lands í málinu. Var umræddri konu gefið að sök að hafa haft munnmök við aðra konu í ágúst 2014 en sú hafi ekki get­ að spornað við verknaðinum sökum ölvunar og svefndrunga. Fram kom fyrir dómi að konurnar tvær höfðu áður átt í kynferðislegu sambandi um nokkurra mánaða skeið. Framburður brotaþolans var talinn trúverðugur fyrir héraðsdómi og þá þótti framburður vina hennar styðja hennar mál, auk vitnisburðar sálfræðings. Á meðan þótti framburð­ ur hinnar ákærðu ekki í samræmi við framburð hennar hjá lögreglu. Talið var sannað að hún hefði haft munnmök við brotaþolann en hún var þó sýknuð á þeim grunni að hana hefði skort ásetning til að fremja kyn­ ferðisbrot, meðal annars vegna fyrri samskipta þeirra tveggja. Fram kemur í úrskurði Hæsta­ réttar að verulegir annmarkar séu á meðferð málsins fyrir héraði. Til að mynda hafi ekki verið stuðst við ákveðin málsgögn, á borð við rafræn samskipti brotaþola og ákærðu, og matsgerð geðlæknis sem tók viðtal við ákærðu. Hefur málinu því verið vísað heim í hérað. n Kona hafði munnmök við svefndrukkna konu Kynferðisbrot aftur í hérað

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.