Dagblaðið Vísir - DV - 14.10.2016, Blaðsíða 26

Dagblaðið Vísir - DV - 14.10.2016, Blaðsíða 26
Helgarblað 14.–17. október 20166 Ljós og tenglar - Kynningarblað Rafport – Gæðarafbúnaður free@home fyrir heimilið! R afport hefur verið starfandi frá árinu 1985 og sérhæfir sig í innflutningi á sérhæfð- um gæðarafbúnaði til fyrir- tækja og einstaklinga, ásamt því að vinna náið með rafverktökum, rafmagnshönnuðum, byggingarverk- tökum og arkitektum,“ segir Jón Þór Guðjónsson, framkvæmdastjóri Raf- ports. Fyrirtækið flutti í mars á þessu ári í nýtt húsnæði að Auðbrekku í Kópavogi og er þar með stórglæsi- legan sýningarsal, þar sem vörur fyrir tækisins eru til sýnis. Rafport er með allt sem tengist rafmagni, hvort sem um er að ræða rofa, tengla, lýs- ingu eða stýringu á öllu sem tengist heimilinu, fyrir tækinu eða sumar- bústaðnum. Rafport flytur meðal annars inn vörur frá þýska framleiðandanum ABB Busch Jaeger, sem er stærsti og virtasti framleið- andinn í þessum vöruflokki þegar kemur að því að velja rofa og tengla eða aðrar snjalllausn- ir fyrir byggingar, allt eftir því hvað hæfir hverju verkefni. Einnig selur fyrirtækið gamaldags tengla og rofa í retró-útliti frá þýska framleiðandan- um Thomas Hoof fyrir húsnæði sem komin eru meira til ára sinna. „Við erum raunar með allt frá byrjun til enda, þegar kemur að rafmagni, allt frá rafmagnsrörinu og þar til þú situr í hægindastólnum að dimma ljós- ið hjá þér eða láta vatn renna í heita pottinn,“ segir Jón Þór. free@home – aldrei áður eins hagstætt og auðvelt að stjórna heimilinu Nýjasta nýtt er free@home-stýrikerf- ið frá ABB Busch-Jaeger, sem er al- hliða lausn í ljósa- og hitastýringu. Það breytir íbúðinni eða heimilinu í snjallheimili, hvort sem um ræðir að stýra lýsingu, hita, gardínum, gluggum, dyrasíma, heitum potti eða ljósasenum. free@ home er hægt að stjórna með veggrofa, tölvu, spjaldtölvu eða snjallsíma og er það val hvers og eins hvað skal nota. Það er meira að segja hægt að tala við free@home með raddskipunum eins og Siri, allt á mjög notendavænan hátt. „Það sem heillar einnig er að kostnaður við að fá sér free@home hefur lækkað allt að 60% þegar allt er til talið, miðað við framkvæmd á sambærilegri stýr- ingu. Það er því lítill kostnaður sem bætist við hefðbundinn frágang á rafmagni við að fá sér free@home. Þetta er í raun á verði sem flestir geta sætt sig við og veitt sér, sem ekki var áður fyrr. Einnig hentar free@home bæði í gömlum íbúðum jafnt sem nýjum húsum,“ segir Jón Þór. USB/Hleðsla „Ein vinsælasta varan hjá okkur er ótrúlega sniðugur rafmagnstengill með USB-hleðslu. Tenglarnir koma í staðinn fyrir venjulegan raf- magnstengil og hægt er að skipta honum út fyrir hvaða tengil sem er. Fyrir utan að virka sem venjulegur tengill/innstunga þá getur þú hlaðið símann, vasaljósið eða myndavélina með USB snúru án þess að vera með spennubreytir eða fylgihluti.“ Þetta hefur verið afar eftirsótt á heimil- um, í fyrirtækjum, sumarbústöðum og hótelum landsins, bendir Jón Þór á. Rafport selur einnig Philips Hue litaskipta-lýsingu þar sem hægt er að stjórna stemningu rýmis með lýs- ingu. „Þá er hægt að hafa til dæmis dempaða, hlýja lýsingu eða aðra liti eftir því hvað hugur þinn girnist hverju sinni. Hægt er að skapa ótrú- lega skemmtilega og margvíslega stemningu með Hue og hún gefur þér góða stjórn á öllum litablæbrigð- um,“ greinir Jón Þór frá. n Rafport er staðsett að Auðbrekku 9–11, 200 Kópavogi. Hægt er að hafa samband í síma 580-1900 eða með því að senda vefpóst á raf- port@rafport.is. Nánari upplýs- ingar má nálgast á vefsíðu Rafports www.rafport.is.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.