Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 14.10.2016, Qupperneq 46

Dagblaðið Vísir - DV - 14.10.2016, Qupperneq 46
Helgarblað 14.–17. október 201638 Fólk „Bráðnauðsynlegt til að halda geðheilsunni“ Eva H. Baldursdóttir er stöðugt að setja sér ný markmið í tengslum við hlaup Þ egar fólk hyggst taka lífs- stílinn í gegn er algengt að skella sér út að hlaupa. Svo rifjast það fljótt upp hvað hlaup geta verið erfið, sér- staklega þegar formið er slæmt og veðrið vont. Aftur á móti eru sumir þrautseigari en aðrir og tekst að stunda markviss hlaup allan ársins hring. Eva H. Baldursdóttir tilheyr- ir hópi þeirra síðarnefndu. Hún starfar sem lögfræðingur í fjármála- og efnahagsráðuneytinu auk þess að vera virk í stjórnmálum og ein- stæð móðir. Hún hefur því í nægu að snúast og sérstaklega um þessar mundir en hún situr í 2. sæti á lista Samfylkingarinnar í Reykjavíkurkjör- dæmi suður. Fyrir nokkrum árum byrjaði Eva að stunda götuhlaup og hefur stundað þau markvisst síðan. Eva segir hlaupin hafa gert ótrúlega mikið fyrir sig, líkamlega jafnt sem andlega, og er stöðugt að setja sér ný markmið í tengslum við þau. „Ég byrjaði að hlaupa árið 2009. Hljóp þá fyrstu 10 kílómetrana í Reykjarvíkurmaraþoninu. Mig langaði að prófa götuhlaup, fannst það eftirsóknarverður lífsstíll og var forvitin. Ég hafði verið ágæt í íþróttum sem unglingur. Ég man eftir því að mér fannst það áfangi þegar ég náði að hlaupa samfleytt rúman einn kílómetra, svo jókst þetta alltaf viku frá viku. Svo komst ég að því að hlaup henta mér ágætlega.“ Mikilvægt að finnast gaman Eva segist hlaupa mestmegnis ein og að hún eigi þá stund með sjálfri sér og góðri tónlist. Hún telur þó góðan félagsskap alls ekki skemma fyrir. „Við erum nokkur í vinnunni sem höfum verið að hlaupa saman og ég á eina vinkonu sem er metnaðar- fullur hlaupari og það rekur mig tals- vert áfram. Félagsskapurinn er mikil- vægur í þessu, skemmtilegt að ná að sameina þetta tvennt. Ég er búin að stefna á það í rúm tvö ár að skrá mig í hlaupahóp og geri það örugglega í vetur því ég held að það sé gott til að ná betri árangri.“ Margir byrja að hlaupa en halda því svo ekki áfram, hver er munurinn á þér og þeim? „Ég hef verið misvirk í hlaupum síðan ég byrjaði, yfirleitt þannig að ég hef lagt skóna á hilluna yfir vetur- inn. Síðustu tvö ár hef ég hins vegar hlaupið yfir vetrartímann, það er bara spurning um búnað. Lykilatriði er að setja sér raunhæf markmið og finnast gaman að hlaupa. Ef það er ekki hægt að finna gleðina í þessu þá mæli ég með því að fólk finni sér aðra líkamsrækt sem það hefur gaman af. Mín aðferð er að skrá mig í hlaup í nálægri framtíð, til að reka mig áfram í æfingum. Ég tala nú ekki um að skrá sig í hlaup erlendis. Síðan að setja sér metnaðarfull en raunhæf tímamark- mið og fagna smásigrum. Í fyrsta hlaupinu var áskorun að klára hlaup- ið og það getur verið markmiðið jafn- framt fyrir nýja hlaupara. En að vera búinn að skrá sig í hlaup, það rekur mann áfram.“ Eva hefur tekið þátt í götuhlaup- um í tveimur borgum á þessu ári og stefnir á fleiri hlaup erlendis í nán- ustu framtíð. Þá tekur Eva fram að aðrar æfingar samhliða hlaupunum skili góðum árangri enda geta hlaupin orðið leiðigjörn ef þau eru einhæf. „Styrktarþjálfun og „interval“ æfingar í bland styðja mjög vel við hlaupin. Þá er mikilvægt að æfa í hófi og gott að hafa t.d. sundlaug og heita pottinn sem gulrót eftir hlaup- in. Svo skiptir mjög miklu máli að borða rétt daginn fyrir keppnishlaup, góð kolvetni. Eiga orku á tankinum og ekki borða þungan mat. Tónlist er síðan algjört lykilatriði, ég get t.d. ekki hlaupið án hennar. Hún rekur mig áfram og heldur mér peppaðri. Þannig að þéttur hlaupalisti er hluti af gleðinni fyrir mig.“ Að lokum vill Eva taka fram að þótt hún finni fyrir sterkari líkama í kjölfar hlaupaáhugans þá sé ár- angurinn ekki síður mælanlegur á sálinni. „Hlaupin hafa gert góða hluti fyrir mig, líkamann og ekki síður sjálfs- matið. Sterkur líkami hefur svo góð áhrif á andlegu hliðina. Eftir hvert hlaup og góðan tíma, líður mér alltaf eins og ég hafi sigrað heiminn smá- vegis. Það er alltaf góð tilfinning. Það gefur orku, minnkar stressið og held- ur mér tengdri. Einfaldlega bráð- nauðsynlegt til að ég haldi geðheils- unni. Þannig að þó að ég hafi ekki endilega tíma þá forgangsraða ég í þágu hreyfingar.“ n Út fyrir kassann Kristín Tómasdóttir skrifar „Hlaupin hafa gert góða hluti fyrir mig, líkamann og ekki síður sjálfsmatið. Eva H. Baldursdóttir „Eftir hvert hlaup og góðan tíma, líður mér alltaf eins og ég hafi sigrað heiminn smávegis.“ Mynd SigTryggur Ari Sérmerktu persónulegu gjafavörurnar ALLT MERKILEGT GarðatorG 3, Garðabæ - S: 555 3569 - Sala@alltmerkileGt.iS - alltmerkileGt.iS Pantaðu í netversluninni Hægt er að fá bæði sent heim eða sækja í nýju versluninni okkar! Allt merkilegt 10 árA

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.