Dagblaðið Vísir - DV - 14.10.2016, Qupperneq 48
Helgarblað 14.–17. október 2016
81. tölublað 106. árgangur Leiðbeinandi verð 785 kr. dv.is/frettaskot askrift@dv.is Sími 512 7000
NEXT, KRINGLUNNI
SÍMI 551 3200
next á íslandi
Verð kr. 6.490.-
Verð kr. 3.990.-
Verð kr. 4.990.-
Verð kr. 6.990.-
Verð kr. 3.990.-
Verð kr. 6.990.-
Gallabuxur fyrir dömur
Gallabuxur fyrir herra
Verð kr. 7.490.- Verð kr. 7.990.-Verð kr. 5.990.-
Binni bakar bara
vandræði!
Brynjar Níelsson
hæfileikalaus
n Brynjar Níelsson, þingmaður
Sjálfstæðisflokksins, segist
hæfileikalaus með öllu og þá sér-
staklega þegar kemur að bakstri.
Þetta opinberaði þingmaður-
inn á Facebook-síðu sinni í gær,
fimmtudag, þegar hann var spurð-
ur hvort hann gæti ekki bakað
afmælisköku síðar í mánuðin-
um. Sagði Brynjar þá að hæfileik-
ar Sjálfstæðismanna væru miklir
þegar kæmi að bakstri en flokk-
urinn hafði þá nokkrum klukku-
stundum áðum
birt myndband
af formanni
hans, Bjarna
Benedikts-
syni, skreyta
afmælisköku
dóttur sinnar.
Sara Heimis
komin á fast
n Sara Heimisdóttir
opinberaði í vikunni að hún
væri byrjuð með bandarískum
vaxtarræktar manni að nafni
Chris Miller. Sara birti mynd af
þeim á Instagram-síðu sinni og
langa ástarjátningu til Chris.
Þakkaði hún honum fyrir að
gefa henni ástæðu til að horfa
björtum augum til framtíðar.
Sara skildi fyrr á árinu við lík-
amsræktartröllið Rich Piana en
þau giftu sig fyrir rúmu ári.
Starfsfólk Útlendingastofnunar lærði valdbeitingu
Námskeiðið fyrir þá sem geta lent í átökum í vinnuumhverfinu – Þingverðir fóru líka á námskeið
Á
bilinu 10 til 20 starfsmenn
Útlendingastofnunar sóttu í
vor námskeið til að læra vald-
beitingu. Námskeiðið var á
vegum ISR – Öryggistök og Neyðar-
vörn en um er að ræða „sérhæfða
þjálfun fyrir sérsveitarmenn, lög-
reglumenn, dyraverði, öryggisverði
og þær stofnanir og alla þá einstak-
linga sem starfa við hættulegar að-
stæður og gætu þurft að beita ör-
yggistökum.“
Á Facebook-síðu ISR var þang-
að til í gær, fimmtudag, færsla um
að haldið hefði verið námskeið fyrir
Útlendingastofnun, en stofnun-
in annast útgáfu dvalarleyfa fyrir
útlendinga. Jón Viðar Arnþórsson,
formaður Mjölnis og einn af stofn-
endum klúbbsins, kenndi nám-
skeiðið en hann hefur 19 ára reynslu
af bardagaíþróttum. Í samtali við
DV segir Jón Viðar að færslan hafi
verið tekin niður vegna þess að
Útlendingastofnun þætti málið við-
kvæmt. Hann segir að ranghug-
myndir um sjálfsvarnarnámskeið séu
algengar og ISR hafi ekki viljað að
þetta „færi á flug“.
Jón Viðar segir við DV að nám-
skeið sem þessi séu haldin fyrir
einstaklinga og stofnanir. Á meðal
opinberra aðila sem sótt hafi nám-
skeið séu slökkviliðið og lögreglan
auk þess sem þingverðir Alþingis hafi
komið á námskeið. Þá komi reglulega
á námskeið öryggis- og dyraverðir,
starfsmenn á sambýlum og í raun
allir sem geta átt á hættu að lenda í
átökum í sínu vinnuumhverfi. Upp-
leggið sé að auðvelda fólki að afstýra
aðsteðjandi hættu. Á Facebook-síðu
ISR kemur fram að undirstöðuatriðin
séu þrjú. Í fyrsta lagi að stöðva hætt-
una, í öðru lagi að tryggja aðstæður
og í þriðja lagi að leysa úr aðstæðum.
Í áðurnefndri færslu á síðunni
kemur fram að haldið hafi verið nám-
skeið fyrir Útlendingastofnun. „Var
m.a. farið í hvernig á að verjast högg-
um með því að beita hjálminum, taka
niður manneskju með því að beita
beislinu ásamt fleiru. Ættu starfs-
menn Útlendingastofnunar að vera
örlítið betur í stakk búnir til að tak-
ast á við aðstæður sem kalla á vald-
beitingu.“ Jón Viðar segir að í „hjálm-
inum“ felist að verja höfuðið með
höndunum en þegar „beislinu“ er
beitt heldur sá sem verst aftan frá
utan um þann sem ógnar. Hann segir
að námskeiðið sé alls ekki til að læra
að beita nokkurn mann ofbeldi. n
baldur@dv.is
Útlendingastofnun Starfsmenn ættu
nú að vera við öllu búnir. MyNd Sigtryggur Ari