Dagblaðið Vísir - DV - 11.11.2016, Blaðsíða 54

Dagblaðið Vísir - DV - 11.11.2016, Blaðsíða 54
Helgarblað 11.–14. nóvember 201638 Fólk B ræðurnir Jóhann Fjalar og Nökkvi Fjalar sitja aldrei auðum höndum og hafa brasað ýmislegt, bæði saman og hvor í sínu lagi á undanförnum árum. Jóhann starfar sem flugfjarskiptamaður hjá Isavia en Nökkvi sér um sjónvarpsþáttinn Áttuna. Bræðurnir eru orkumiklir og glaðir og hafa mjög gaman af nýjum áskorunum. Létu þeir því ekki sitt eftir liggja þegar vinir þeirra, Haf- steinn Vilhelmsson og Gyða Krist- jánsdóttir, eignuðust dóttur sína, Elísu Margréti Hafsteinsdóttur árið 2012. Nú hafa þeir sent frá sér bók um hana. Elísa Margrét fæddist með heila- sjúkdóm sem heitir Lissencephaly og olli því að hún var fjölfötluð, bundin við hjólastól og lærði ekki að tala á sinni stuttu ævi en Elísa Mar- grét lést vegna sjúkdómsins fyrr á þessu ári. Hreyfði við öllum „Elísa Margrét hreyfði við öllum sem kynntust henni og vorum við bræður svo heppnir að tilheyra þeim hópi. Eins og segir í bókinni þá var Elísa Margrét fordómalaus stelpa sem kenndi okkur svo margt. Okkar von er að sá boðskapur skili sér til lesenda í gegnum bókina þ.e. að sumir eru frá öðru landi, búa við mismunandi fjölskyldumunstur eða eru með einhvers konar fötlun. Við viljum vekja krakka til umhugsunar um að allir eru öðruvísi og það er frá- bært og getur verið heilmikill styrk- ur,“ segir Jóhann Fjalar sem er með fyrstu eintök bókarinnar í skottinu á bílnum sínum á meðan hann ræð- ir við blaðamann. Stoltið leynir sér ekki enda verkefnið tilfinninga- þrungið og búið að vera í vinnslu um nokkra stund. „Þessi bók varð til eftir að við héldum styrktartónleika í fyrra til styrktar fjölskyldu Elísu Margrétar. Tónleikarnir gengu vel og við, vin- ir Elísu Margrétar, sáum hvað það er í rauninni hægt að gera mikið til þess að hjálpa til við svona að- stæður. Í kjölfarið kom upp um- ræða um hvernig mætti styðja bet- ur við Barnaspítalann sem var annað heimili Elísu Margrétar á meðan hún lifði. Þá datt okkur bræðrum í hug að skrifa barnabók þar sem Elísa væri aðalpersónan og allur ágóði bókar- innar myndi renna til Barnaspítal- ans. Við fengum Ingunni Kristjáns- dóttur, móðursystur Elísu Margrétar, til liðs við okkur en hún teiknaði allar myndirnar í bókina.“ Reynsla og þekking úr mismunandi áttum Bókin var á lokametrunum þegar Elísa Margrét kvaddi þennan heim í apríl síðastliðinn. Var bókin þá sett á bið um stund en hafist handa að nýju í sumar að ósk foreldra hennar sem vildu nota þessa leið til þess að halda minningu stelpunnar sinnar á lofti. „Við reyndum eftir bestu getu að endurspegla karakter og sérstöðu Elísu Margrétar sjálfrar í bókinni. Hún er í hjólastól á öllum myndun- um og hún segir aldrei neitt heldur koma aðeins hugsanir hennar fram í textanum því Elísa Margrét gat ekki talað í eigin lífi. En hún hafði tilfinn- ingar og gat gert sig skiljanlega með öðrum hætti. Í bókinni kemur það einmitt fram, t.d. að hún veit að það er ljótt að skilja út undan og stríða.“ Bræðurnir segja að samstarf þeirra við gerð bókarinnar hafi geng- ið afar vel en þeir hafi verið að renna blint í sjóinn enda hvorugur komið nálægt bókarskrifum áður. Þeir segja samt að ólík reynsla þeirra hafi kom- ið að góðum notum, t.d. vann Jó- hann lengi með börnum og ung- lingum og Nökkvi hefur töluverða reynslu af fjölmiðlum. „Við sátum saman þegar við skrif- uðum bókina, köstuðum á milli okkar hugmyndum og hnoðuðum saman textann í bókinni. Við nýttum reynslu og þekkingu úr mismunandi áttum og reyndum svo að byggja þetta sem mest á Elísu Margréti sjálfri. Við erum mjög ánægðir með árangurinn og aldrei að vita nema við höldum samstarfinu áfram. Hvort sem það verður í formi fleiri bóka um Elísu Margréti eða með öðrum hætti, það kemur bara í ljós.“ Það er augljóst að þeir bræð- ur eru með fleiri verkefni í pípun- um. Útgáfuhóf vegna bókarinnar, Vinir Elísu Margrétar, verður haldið í Hagkaupum í Kringlunni sunnu- daginn 13. nóvember klukkan 15.00 og hvetur Jóhann sem flesta til þess að mæta. n Tilboð þér að kostnaðarlausu Uppl. í síma: 820 8888 eða markmid@markmid-ehf.is ALHLIÐA FASTEIGNAVIÐHALD Smíðavinna · Pípulagnir · Raflagnir Málningavinna · Múrvinna · Flísalagnir Hellulagnir · Jarðvinna · Lóðavinna Fordómalaus stelpa „Öðruvísi er frábært og getur verið mikill styrkleiki“ „Við reyndum eftir bestu getu að endurspegla karakter og sérstöðu Elísu Margrétar sjálfrar í bókinni. Út fyrir kassann Kristín Tómasdóttir skrifar Vinir Jóhann Fjalar og Elísa Margrét á góðri stundu. Jóhann Fjalar „Við viljum vekja krakka til umhugsunar um að allir eru öðruvísi.“ Mynd SigTRygguR ARi
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.