Dagblaðið Vísir - DV - 11.11.2016, Blaðsíða 30
Helgarblað 11.–14. nóvember 20166 Bestu pítsur bæjarins - Kynningarblað
Hollari týpan af pítsu
Bíóbakan, Hamraborg 20a, Kópavogi
B
íóbakan, Hamraborg 20a
í Kópavogi, býður upp á
ilmandi góðar súrdeigs-
flatbökur, pítsur bakaðar
í hágæða ítölskum stein-
ofni. Allar bökurnar eru útbúnar
frá grunni á staðnum úr lífrænu
hveiti ásamt bragðmikilli flat-
bökusósu sem er eingöngu gerð
úr ferskum hráefnum.
„Þetta er hollari týpan af pítsu
enda gerum við súrdeigið alveg
sjálfir,“ segir Sigurður Már Dav-
íðsson, annar eigenda staðar-
ins en hinn er Þórir Stefánsson.
„Í dag eru til margar leiðir til að
gera súrdeig en við gerum það
á gamla mátann. Við höldum
deig sem er súrt og gefum því
að borða tvisvar á dag, tökum af
því eftir hentugleika og bætum
við. Það þarf stanslaust að vaka
yfir súrdeigi, þetta er heilmikið
bras en það er óskaplega gam-
an að hugsa um þetta, þetta
verður dálítið eins og barnið
manns, þó að það sé skrýtið
að segja það, maður er alltaf
að hugsa um hvenær maður
sé búinn að gefa því og svo fram-
vegis,“ segir Sigurður. Hann segir
að þetta vinnulag gæti varla gengið
upp ef staðurinn væri mikið stærri.
Hann segir þó ekki koma til greina
að breyta út af þessari upprunalegu
aðferð, frekar sleppi hann því að
stækka við sig. Síðar gæti lausnin þó
orðið að stofna annan stað:
„Ég hefði ekki nennt að gera þetta
öðruvísi. Þetta er vissulega mikil
vinna og mikil rútína, en um leið og
hún er komin af stað er þetta bara
virkilega skemmtilegt. Það er líka
svo gaman að gera þetta á gamla
mátann, það eru komin til sögunnar
alls konar duft til að gera súr-
deig en við sneiðum algjörlega
hjá slíku.“
Með því hollara sem hægt
er að borða
Bíóbakan var opnuð þann 13.
maí síðastliðinn og viðtökur
hafa verið afbragðsgóðar. Þó
að pítsa flokkist almennt ekki und-
ir heilsubita er ljóst að pítsurnar á
Bíóbökunni eru bráðhollar enda er
mikil áhersla lögð á lífrænt hráefni
við gerð þeirra.
„Þetta er klárlega hollara en
margt sem fólk eldar heima hjá
sér og telst hollt. Við reynum að
hafa sem mest lífrænt en undan-
tekningarnar eru osturinn og sum-
ar áleggstegundirnar sem fólk getur
valið sér, þar sem um unnar kjöt-
vörur er að ræða. En í þeim tilvikum
sem hráefnið er ekki lífrænt þá velj-
um við alltaf íslenskt hráefni,“ segir
Sigurður.
Þess má geta að Bíó-
bakan stefnir að inn-
göngu í samtökin GRA,
Green Restaurant
Association, samtök
veitingastaða með líf-
rænan mat, sjá nánar á
vefsíðunni dinegreen.
com. Þar eru gerðar
miklar kröfur um
endurvinnslu og
flokkun sem og að
reyna að lágmarka alla
koltvíoxíð losun í andrúmsloftið.
Þess vegna valdi Bíóbakan að notast
við rafmagnssteinofn í stað eldofns.
Hvers vegna Bíóbakan?
Eigendur Bíóbökunnar eru mikl-
ir kvikmyndaáhugamenn og vísun
í bíó og kvikmyndir er sterk í ásýnd
staðarins. Réttirnir bera nöfn eins og
Naked Gun, sem er Pizza Margaríta;
Karate Kid, sem er með humri, feta-
osti og hvítlauk; Dirty Dancing, sem
er með skinku og ananas, og mörg
fleiri slík.
Hér er um skemmtilegan orða-
leik að ræða, vísun í hugtakið bio
– sem er fremsti hlutinn í orðinu
biology, líffræði, og er þekkt hugtak
í umfjöllun um lífrænar afurðir. „Við
erum dálitlir nördar, allir þrír,“ segir
Sigurður Már þegar hann útskýrir
þetta, og bætir við að ýmsar aðrar
vísanir varðandi tölur og stærðir sé
að finna á staðnum og viðskiptavin-
ir geti skemmt sér við að ráða í. n
Bíóbakan er opin alla daga frá kl.
11 til 21. Hægt er panta á staðnum,
á vefsíðunni biobakan.com þar sem
jafnframt eru allar upplýsingar varð-
andi matseðil, eða í síma 568-8887.
Einstakar pítsur, einstakar brauðstangir
Adam's pizza og grill, Seljabraut 54 og Ármúla 42
A
dam, annar eigenda
veitingastaðarins Adam's
pizza og grill, Seljabraut
54, stendur sjálfur vakt-
ina langar stundir ásamt
starfsfólki sínu og býr til matinn sem
er svo vinsæll hjá gestum staðarins.
Adam's pizza og grill er opinn frá kl.
11 til 23 alla daga vikunnar og það er
nánast alltaf mikið að gera. Vinnandi
fólk streymir á staðinn í hádegismat
og margir koma líka í kvöldmat; fjöl-
margir panta sér mat, sækja eða fá
sent, alla daga vikunnar. Einnig er
matur seldur í gegn-
um bílalúgu auk
þess sem margir
borða á staðnum.
Einn vinsæl-
asti réttur á Adam's
pizza og grill er
Adam's Speci-
al Pizza: sósa,
ostur, nautahakk,
pepper óní, svepp-
ir, blönduð paprika,
rauðlaukur og hvít-
laukspipar. Staður-
inn er ekki hvað síst
þekktur fyrir sínar
rómuðu og vin-
sælu brauðstangir
sem eru ávallt
ferskar og aldrei
geymdar í frysti
eins og víða þekk-
ist. Hvítlauksolían
sem notuð er með
þeim er líka ávallt
fersk. Hægt er að
fá brauðstangir
með pepperóní,
rjómaosti, jala-
peno og piparosti.
Sjá nánar fjölbreyttan og girni-
legan matseðil á http://adamspizza.
is/matsedill/
Nýr staður í Ármúla
Um árabil hefur Adam's Pizza og grill
notið mikilla vinsælda að Seljabraut
54 en snemma á nýliðnu sumri
var opnaður nýr Adam's staður
að Ármúla 42 og hefur hann líka
slegið í gegn. Þar er huggulegur
matsalur fyrir 34 manns og margir
njóta veitinga á staðnum. Einnig
er hægt að taka með eða fá sent en
fyrirtækið hefur nýlega fest kaup á
tveimur nýjum, vel merktum og fal-
legum sendibílum frá Brimborg.
Adam's pizza og grill býður upp
á steinbakaðar pítsur, þykka ham-
borgara, kótelettur, salöt, ís og kaffi.
Einnig er barnamatseðill enda er
staðurinn vinsæll á meðal fjöl-
skyldufólks. Hann er ekki síður vin-
sæll á meðal vinnandi fólks í ná-
grenninu sem sækir staðinn stíft og
er þess vegna sérstaklega mikið að
gera í hádeginu. n
Pöntunarsíminn er 533-1414. Net-
fangið er adamspizza@adamspizza.
is og heimasíðan www.adamspizza.
is.