Fréttablaðið - 25.05.2017, Page 28

Fréttablaðið - 25.05.2017, Page 28
 Ef mér finnst einhver flík flott og hún klæðir mig vel, þá er það tískan mín. Sigríður Inga Sigurðardóttir sigriduringa@365.is Þórhildur stendur vaktina einu sinni í viku í búð Rauða krossins við Skólavörðustíg og finnst það svo gaman að hún tekur allar aukavaktir sem bjóðast. „Ég var fyrir löngu síðan búin að ákveða að verða sjálfboðaliði ef ég fengi tækifæri til þess. Ég skráði mig hjá Rauða krossinum í janúar og fljótlega var haft samband við mig, enda vantar alltaf fólk til sjálfboða- liðastarfa, bæði í búðirnar og til að flokka fatnað, auk heimsóknarvina. Þetta er svo skemmtilegt og gefandi og ég hitti alls konar fólk gegnum starfið.“ Spáir þú mikið í tísku? „Já, ég geri það en ég verð að viðurkenna að fatasmekkur minn hefur breyst töluvert frá því að ég fór að vinna í Rauðakrossbúðinni. Ég er orðin algjört kameljón þegar kemur að tísku og er farin að blanda meira saman ólíkum stílum, sem ég gerði ekki áður. Ég er komin inn á það að maður skapar sér sína eigin tísku og þarf ekkert að fara eftir því sem einhver segir manni að vera í. Ef mér finnst einhver flík flott og hún klæðir mig vel, þá er það tískan mín. Mér er alveg sama þótt öðrum finnst það ekkert flott.“ Hvar kaupir þú helst fötin þín? „Ég kaupi langmest af mínum fatnaði í Rauðakrossbúðinni. Í gegnum tíðina hef ég keypt mest á netinu, annaðhvort á erlendum síðum eða sölusíðum á Facebook eða bland.is.“ Hver er þinn helsti veikleiki þegar kemur að tísku? „Ég er pínu skósjúk. Núna er ég með æði fyrir skóm frá Irregular Choice en ég kaupi þá á erlendum netsíðum.“ Hvaða flík er í mestu uppáhaldi hjá þér? „Nýi, fjólublái loðjakkinn minn sem ég keypti mér á fyrstu vaktinni minni í Rauðakrossbúð- inni. Hann er í miklu uppáhaldi. Fyrst þegar ég byrjaði að vinna í búðinni freistaðist ég oft til að kaupa eitthvað sem mér fannst fal- legt en með tímanum verðum við sjálfboðaliðarnir sjóaðir og pössum okkur á að kaupa ekkert nema það sem okkur bráðvantar. Þarna fær maður náttúrlega miklu meira fyrir peninginn en víða annars staðar.“ Hvernig föt eru vinsælust í Rauða kross búðinni? „Það er í raun mismunandi eftir búðum. Búðin við Skólavörðustíg er aðeins dýrari en hinar en þar eru til sölu merkjavörur og fínni föt. Merkja- vörurnar seljast mjög vel, svo sem kjólar, buxur og íþróttaskór. Þetta flýgur allt út, enda er þetta fatnaður sem er eins og nýr. Þarna er mikið af gulli og gersemum.“ Veik fyrir skóm Þórhildur Gísladóttir er kameljón þegar kemur að tísku. Hún blandar saman ólíkum flíkum og skapar sér sína eigin tísku. Hér er Þórhildur í jakka frá Basler og svartri blússu frá Devernois. MYND/ANTON BRINK Fjólublái jakk- inn er í miklu uppáhaldi. Hann er frá ROSE surk young co. MYND/ ANTON BRINK Toppur frá J.Crew, SAND pils, skór frá Irregular Choice. MYND/ANTON 365.ISSÍMI 1817 Tryggðu þér áskrift á aðeins 399 kr. á dag 11.990 kr. á mánuð i * ÁSKRIFENDUR SPORTPAKKANS EIGA NÚ MÖGULEIKA Á ÞVÍ AÐ FARA FRÍTT Á VÖLLINN! VINNUR ÞÚ MIÐA Á LEIKINN? Í ALLT SUMAR MUNUM VIÐ DRAGA ÚT HEPPNA ÁSKRIFENDUR SEM FÁ MIÐA Á LEIK Í PEPSI DEILD KARLA. *m ið að v ið 1 2 m án að a bi nd in gu Fréttablaðið eykur þjónustu sína við lesendur á landsbyggðinni. Þú getur nálgast frítt eintak af Fréttablaðinu á eftirfarandi sölustöðum víðsvegar um landið: 6 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 2 5 . m a í 2 0 1 7 F I M MT U DAG U R 1 3 -0 6 -2 0 1 7 1 0 :5 2 F B 0 6 4 s _ P 0 4 4 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 3 7 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 2 1 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 2 8 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 D 1 6 -F A C 4 1 D 1 6 -F 9 8 8 1 D 1 6 -F 8 4 C 1 D 1 6 -F 7 1 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 6 A F B 0 6 4 s _ 2 4 5 2 0 1 7 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.