Fréttablaðið - 25.05.2017, Síða 28
Ef mér finnst
einhver flík flott og
hún klæðir mig vel, þá er
það tískan mín.
Sigríður Inga
Sigurðardóttir
sigriduringa@365.is
Þórhildur stendur vaktina einu sinni í viku í búð Rauða krossins við Skólavörðustíg
og finnst það svo gaman að hún
tekur allar aukavaktir sem bjóðast.
„Ég var fyrir löngu síðan búin að
ákveða að verða sjálfboðaliði ef ég
fengi tækifæri til þess. Ég skráði mig
hjá Rauða krossinum í janúar og
fljótlega var haft samband við mig,
enda vantar alltaf fólk til sjálfboða-
liðastarfa, bæði í búðirnar og til að
flokka fatnað, auk heimsóknarvina.
Þetta er svo skemmtilegt og gefandi
og ég hitti alls konar fólk gegnum
starfið.“
Spáir þú mikið í tísku? „Já, ég
geri það en ég verð að viðurkenna
að fatasmekkur minn hefur breyst
töluvert frá því að ég fór að vinna
í Rauðakrossbúðinni. Ég er orðin
algjört kameljón þegar kemur að
tísku og er farin að blanda meira
saman ólíkum stílum, sem ég gerði
ekki áður. Ég er komin inn á það að
maður skapar sér sína eigin tísku
og þarf ekkert að fara eftir því sem
einhver segir manni að vera í. Ef
mér finnst einhver flík flott og hún
klæðir mig vel, þá er það tískan
mín. Mér er alveg sama þótt öðrum
finnst það ekkert flott.“
Hvar kaupir þú helst fötin þín?
„Ég kaupi langmest af mínum
fatnaði í Rauðakrossbúðinni. Í
gegnum tíðina hef ég keypt mest
á netinu, annaðhvort á erlendum
síðum eða sölusíðum á Facebook
eða bland.is.“
Hver er þinn helsti veikleiki
þegar kemur að tísku? „Ég er pínu
skósjúk. Núna er ég með æði fyrir
skóm frá Irregular Choice en ég
kaupi þá á erlendum netsíðum.“
Hvaða flík er í mestu uppáhaldi
hjá þér? „Nýi, fjólublái loðjakkinn
minn sem ég keypti mér á fyrstu
vaktinni minni í Rauðakrossbúð-
inni. Hann er í miklu uppáhaldi.
Fyrst þegar ég byrjaði að vinna
í búðinni freistaðist ég oft til að
kaupa eitthvað sem mér fannst fal-
legt en með tímanum verðum við
sjálfboðaliðarnir sjóaðir og pössum
okkur á að kaupa ekkert nema það
sem okkur bráðvantar. Þarna fær
maður náttúrlega miklu meira fyrir
peninginn en víða annars staðar.“
Hvernig föt eru vinsælust í
Rauða kross búðinni? „Það er í
raun mismunandi eftir búðum.
Búðin við Skólavörðustíg er aðeins
dýrari en hinar en þar eru til sölu
merkjavörur og fínni föt. Merkja-
vörurnar seljast mjög vel, svo sem
kjólar, buxur og íþróttaskór. Þetta
flýgur allt út, enda er þetta fatnaður
sem er eins og nýr. Þarna er mikið
af gulli og gersemum.“
Veik fyrir skóm
Þórhildur Gísladóttir er kameljón þegar
kemur að tísku. Hún blandar saman ólíkum
flíkum og skapar sér sína eigin tísku.
Hér er Þórhildur í jakka frá Basler og svartri blússu frá Devernois. MYND/ANTON BRINK
Fjólublái jakk-
inn er í miklu
uppáhaldi. Hann
er frá ROSE surk
young co. MYND/
ANTON BRINK
Toppur frá J.Crew, SAND pils, skór frá
Irregular Choice. MYND/ANTON
365.ISSÍMI 1817
Tryggðu þér
áskrift á aðeins
399 kr. á dag
11.990 kr. á mánuð
i
*
ÁSKRIFENDUR SPORTPAKKANS
EIGA NÚ MÖGULEIKA Á ÞVÍ AÐ
FARA FRÍTT Á VÖLLINN!
VINNUR ÞÚ MIÐA Á LEIKINN?
Í ALLT SUMAR MUNUM VIÐ
DRAGA ÚT HEPPNA
ÁSKRIFENDUR SEM FÁ MIÐA
Á LEIK Í PEPSI DEILD KARLA.
*m
ið
að
v
ið
1
2
m
án
að
a
bi
nd
in
gu
Fréttablaðið eykur þjónustu sína
við lesendur á landsbyggðinni.
Þú getur nálgast frítt eintak af Fréttablaðinu á
eftirfarandi sölustöðum víðsvegar um landið:
6 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 2 5 . m a í 2 0 1 7 F I M MT U DAG U R
1
3
-0
6
-2
0
1
7
1
0
:5
2
F
B
0
6
4
s
_
P
0
4
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
2
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
2
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
D
1
6
-F
A
C
4
1
D
1
6
-F
9
8
8
1
D
1
6
-F
8
4
C
1
D
1
6
-F
7
1
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
A
F
B
0
6
4
s
_
2
4
5
2
0
1
7
C
M
Y
K