Bókasafnið

Ataaseq assigiiaat ilaat

Bókasafnið - 01.07.2017, Qupperneq 6

Bókasafnið - 01.07.2017, Qupperneq 6
6 Bókasafnið anum fær fólk vinnu. Það getur stundum tekið tíma en við vitum að það er atvinnuleysi hjá háskólamenntuðu fólki í ýmsum greinum. Mér sýnist vera betra ástand hjá okkur en víða annars staðar. En, bæði við kennararnir og nemendurn- ir þurfum að markaðssetja námsgreinina betur og benda á hversu mikilvæg upplýsingafræðin er, bæði fyrir bókasöfnin og skjalastjórn hjá fyrirtækjum og stofnunum. Hún er brýnn þáttur hvað varðar upplýsingaöryggi í dag í öllu þessu upplýsingaflóði, samfélagsmiðlum, vinnu á hinum ýmsu tækjum utan vinnustaðar og svo framvegis. Hvað telur þú að fari miður í náminu? Það er ýmislegt sem mætti gera betur eins og við segjum í gæðastjórnun. Ég vildi nefna að á þessum tímapunkti höf- um við ekki nógu skýra stefnu varðandi námið í heild. Við vildum svo gjarnan hafa meira af æfingar- og dæmatímum svo og umræðutímum og þá minna af fyrirlestrartímum. En þetta byggist allt á fjárhagnum. Því miður er það þannig að við Háskólann, ekki einungis í okkar grein heldur hjá fjöl- mörgum öðrum greinum, að þurft hefur að draga nokkuð úr verklegum tímum og umræðutímum, hafa meira um fyrir- lestra, það ku vera ódýrara kennslufyrirkomulag. Svo er annað sem mér finnst standa okkar grein, og yfirleitt Háskóla Íslands, fyrir þrifum en það er þessi mórall sem er á milli deilda. Það byggist á því að hafa sem flesta nem- endur í eigin námsgrein vegna þess að greinin fær greitt fyrir nemendafjölda í námskeiðum og fyrir þreyttar ein- ingar. Það fyrirkomulag er heftandi bæði fyrir nemendur og kennara, það er að segja að geta ekki farið um Háskólann og tekið námskeið hér og þar sem henta námi og rann- sóknum hvers og eins, valnámskeið þá. Ég hugsa ekki sjálf um það þegar ég bendi nemendum á hvað hægt sé að taka. Mörg námskeið henta til dæmis með skjalastjórnarnáminu ef fólk fer til starfa í stofnunum og fyrirtækjum; námskeið í mannauðsstjórnun, lögfræði, tölvunarfræði, gæðastjórnun, verkefnisstjórnun svo að eitthvað sé nefnt. Það er hins vegar verið að endurskoða þetta kerfi núna í Háskólanum þannig að vonandi verður það sanngjarnara með tilliti til mismun- andi námsgreina. Námsgreinar eins og okkar, svo og aðrar námsgreinar í félags- og hugvísindum, fá minna fé á hvern nemanda heldur en ýmsar aðrar og óskandi er að hægt verði að gera þetta á sanngjarnari hátt. Mér finnst það líka miður að stundum hafa sömu hlutir verið kenndir í mismunandi námskeiðum. Það kom líka fyrir þegar ég var í náminu. Þegar námstíminn er svo knappur og dýrmætur er mikilvægt að stöðugt sé vaktað að ekki sé verið að kenna sama hlutinn víða. Þetta er hluti af gæðastarfinu sem hefur átt sér stað við Háskólann. Ég er nú í gæðanefnd, sem er nefnd á vegum háskólaráðs, og það er einmitt þetta sem háskólaráð, rektor og gæðanefndin vilja meðal annars að unnið sé að – að takmarka skörun. Jafnvel þegar verið er að kenna svipuð námskeið í ýmsum deildum. Þetta held ég að standi til bóta þar sem verið er að skoða þetta í Háskólanum í heild og niður í námsbrautir. Hvað er það sem vantar í námið? Ef ég mætti ráða og við værum með nægilegt fé myndi ég vilja hafa fleiri dæma- og verklagstíma. Einnig að nem- endum væri gefið meira færi á að kynna verkefni sín. Þegar nemendur gera verkefni sem einstaklingar eða í hópum finnst mér vanta tíma í námskeiðum til þess að gefa þeim kost á að kynna verkefni sín vel og eins að fá álit, athuga- semdir og umræður um verkefnin í tímum. Ég myndi einnig vilja sjá meira í náminu kennslu á tækni- legu þættina. Við erum með valnámskeið sem fólk getur tekið í tölvunarfræði, það er gagnasafnsfræði, forritun og samskipti manns og tölvu, sem er auðvitað hægt að nýta. En, það væri gott að fá námskeið inn í námsbrautina sem tengdist beint upplýsingakerfum og skipulagningu upp- lýsinga í þess háttar kerfum – það sem tengdist beint við þau kerfi sem upplýsingafræðin notast við. En þetta snýst um fjarhaginn, okkur eru settar skorður þar um fjölda nám- skeiða sem við getum kennt. Þetta er þó sjálfsagt að endur- skoða á næstunni. Mér finnst vanta að nemendur læri meira í verkefna- og gæðastjórnun. Framtíðarstörf þeirra munu snúast mikið um rekstur, bæði safna og upplýsingamiðstöðva og svo rekstur skjalastjórnardeilda hjá fyrirtækjum og stofnunum. Hins vegar, ef við værum að bjóða upp á þessar tvær síðastnefndu greinar hjá okkur, værum við að ganga á þau grunnnám- skeið sem allir í upplýsingafræði þurfa að taka til þess að öðlast fagþekkinguna. Þá höfum við lítið svigrúm þar sem námið er aðeins 120 einingar og þar af er meistararitgerð, þannig að valið í MIS-náminu er svo lítið. Aftur á móti í MA-náminu, þar geta nemendur tekið þessi námskeið annars staðar í þessum þverfræðilega háskóla okkar og það hafa þeir verið að gera. Þeir hafa verið að taka námskeið í safnafræði, stjórnun, mannauðstjórnun, verkefnisstjórnun, gæðastjórnun, upplýsingalögum og persónuverndarlögum svo að dæmi séu tekin. Er eitthvað fleira sem þú vilt koma á framfæri? Ég hefði viljað sjá skýra stefnumörkun varðandi námið í heild. Vonandi verður unnið að því hið fyrsta. Þá finnst mér mjög mikilvægt að við höldum fjarnáminu áfram og bjóð- um jafnframt upp á staðbundið nám því samhliða, auðvitað. Það þyrfti þó að styrkja fjarnámið til muna, gera meira úr því þannig að ekki sé einungis um að ræða upptökur og það að setja kennsluefni inn á heimasíður námskeiða í Uglunni. Kennslan þyrfti að byggjast mun meira á samvinnu kennara og nemenda í gagnvirku rafrænu kennsluumhverfi. Ég bind vonir við að í framtíðinni verði þar framfarir. Það er ofarlega á baugi hjá Háskólanum í dag að styrkja fjarnámið. Þá er mikilvægt að efla doktorsnámið en við erum með nokkra doktorsnema í námsbrautinni. Sem betur fer eru bjartari tímar framundan hvað það varðar á Félagsvísindasviði, sem við erum hluti af, enda hefur sviðsforseti ráðið sérstakan starfsmann til þess að vinna að samræmingu reglna um doktorsnámið og efla inniviði þess á sviðinu. Við munum njóta góðs af því. Ég er bara tiltölulega bjartsýn.

x

Bókasafnið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bókasafnið
https://timarit.is/publication/245

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.