Bókasafnið - 01.07.2017, Page 7
Bókasafnið 41. árg – 2017 7
Hvað virkar vel í náminu að þínu mati?
Ég kem inn í námið með BA gráðu í einhverju
allt öðru og bókasafnsfræðingar af eldri kyn-
slóðinni sem ég hef rætt við hafa sagt mér að
þeim fi nnist leiðinlegt að það sé ekki lengur
verið að bjóða upp á námið á BA stigi. Hins
vegar held ég að þetta sé mjög gott fyrir
fagið og stéttin a í heild að fólk sé að koma úr
mörgum áttum inn í það. Mér fi nnst frábært
að geta farið í þetta nám ofan á hvaða BA gráðu
sem er, því það opnar fullt af möguleikum og mér
fi nnst það alveg æðislegt.
Námið er mjög fj ölbreytt og skemmtilegt. Þannig séð vissi
ég ekki mjög mikið hvað ég var að fara út í þegar ég skráði
mig í námið og ég er ekki viss um að ég hefði endilega skráð
mig í það ef það hefði heitið bókasafnsfræði þó að núna
langi mig langmest að vinna á bókasafni. Ég er ekki viss um
að ég hefði gefi ð því jafn mikinn gaum ef það hefði ennþá
heitið bókasafns- og upplýsingafræði. Mér fi nnst námið
mjög skemmtilegt og maður hittir mikið af fj ölbreyttu fólki.
Ég sé fyrir mér að maður geti unnið á svo mörgum stöðum í
samfélaginu með þessa menntun á bakinu. Ég held alla vega
að ég sé alveg á réttri hillu að hafa valið þetta.
Hvað telur þú að fari miður í náminu?
Ég veit að það er rosalega mikið efni sem er verið að troða á
tvö ár og er nátturulega mikið af því það sem var í BA nám-
inu áður fyrr. Þegar ég skráði mig í námið valdi ég eina línu
af þremur. Þegar ég byrjaði í náminu þá sá ég svolítinn mun
á línunum. Mér fi nnst að fyrst það er verið að bjóða upp á
línur mætti vera meiri aðgreining þar á milli. Ég er ekki á
skjalastjóralínunni og hef alveg bölvað því að þurfa að taka
skjalastjórnunarkúrsana þó ég sé samt rosalega ánægð að
hafa tekið þá, því ég hef lært alveg helling og margir fl etir
þar inni sem mér fannst mjög áhugaverðir. Ég hefði búist
við að taka meira á þeirri línu sem ég valdi og hafði áhuga
á, en kannski er ég ótrúlega góðu vön af hugvísindasviði þar
sem ég fékk að taka næstum því bara valnámskeið og velja
rosa mikið sjálf eftir því sem ég hafði áhuga á. Ég hefði
viljað taka fl eiri valnámskeið í upplýsingafræðinni en svo
hefur maður bara átta einingar í það.
Mér fi nnst smá aftur á bak að þurfa að læra svona
mikið af kenningum, eins og öll þessi módel og
ISO staðla. Að læra þetta fyrir próf, þar sem
maður lærir utan að fyrir eitt próf og síðan er
ekki séns að ég gæti sagt þér frá því sem ég
lærði fyrir próf í vor, fi nnst mér vera nokkuð
aftur á bak. Mér fi nnst frekar að þetta sé eitt-
hvað sem ætti að vera metið með heimaprófum
eða verkefnum svo að það sé augljóst að þú vitir
hvar þú átt að leita að viðkomandi upplýsingum,
ekki að þú getir munað þær allar utan að. En ég held
að þetta sé ekki bara upplýsingafræðin heldur er þetta
svona í háskólasamfélaginu í dag og þetta fyrirkomulag er,
að mínu mati, að verða úrelt.
Hvað er það sem vantar í námið?
Mér fi nnst kannski ekki beint vanta en mér fi nnst rosalega
gaman þegar við förum í heimsóknir eða fáum heimsóknir
til okkar til að sjá hvað upplýsingafræðingar eru að gera úti
á vinnumarkaðinum og ég held að það sé ágætis tenging
við atvinnulífi ð. Ég fann það svo mikið þegar ég byrjaði að
vinna á bókasafni í haust með skóla hvað mér fannst það
gott að vera að vinna á bókasafni og náminu á sama tíma.
Út af því að það er allt að festast betur í hausnum á mér það
sem ég er að læra meðan maður er að nota það á sama tíma.
Ég veit að það er mikilvægt að læra kenningarnar en það er
mun betra þegar maður fær verklega kennslu, sérstaklega
þegar maður fær verkefni þegar það eru minni heimildarit-
gerðir og meira að gera eitthvað, svo sem að búa til færslur
í MARCið eða búa til skjalafl okkunarkerfi . Maður lærir
langmest á þannig verkefnum fi nnst mér. Ég veit að það er
einhver millivegur sem þarf að fara og veit að það er ekki
hægt að gera bara verkleg verkefni en mér fi nnst þau hafa
mest áhrif hvernig maður tengir námið saman í hausnum.
Er eitthvað fl eira sem þú vilt koma á framfæri?
Bara að ég er ótrúlega ánægð með að hafa valið námið og er
mjög ánægð með þá ákvörðun hjá mér að hafa skellt mér í
þetta nám og það mun bara hafa góð áhrif á framhaldið hjá
mér. Ég hlakka mjög mikið til að geta kallað mig upplýs-
ingafræðing í framtíðinni.
Nám í upplýsingafræði við Háskóla
Íslands frá sjónarhóli nemanda
Kristín Lilja Th orlacius Björnsdóttir hefur lokið BA í kvikmyndafræði með bókmenntafræði sem aukafag, og
stundar MIS-nám við Háskóla Íslands. Hún starfar í bókasafni Tækniskólans og á Gljúfrasteini.