Bókasafnið - 01.07.2017, Page 20
20 Bókasafnið
Ekki var allt búið eftir þennan undirbúning. Hundahald er
bannað í opinberum stofnunum og því þurfti að fá leyfi . Um-
hverfi smálaráðuneytið veitir það að undangenginni umsögn
Heilbrigðisnefndar Reykjavíkur og Umhverfi sstofn-
unar. Heilbrigðisnefndin gaf jákvæða umsögn en Um-
hverfi sstofnun neikvæða. Umhverfi sráðuneytið ákvað þó
að veita leyfi ð enda fordæmi fyrir því að hundar megi til
dæmis heimsækja elliheimili. Ýmis ákvæði fylgdu leyfi s-
veitingunni svo sem að hundurinn skildi vera hreinn,
heilbrigður og ormahreinsaður og hafa tilskilin leyfi .
Einnig var okkur gert skylt að auglýsa vel og vandlega
innanhúss að það væri hundur í húsinu ef ske kynni að
einhver væri með ofnæmi.
Borgarbókasafn býr svo „vel“ að vera á þremur hæðum. Það
auðveldaði okkur líklega að fá leyfi ð að fi mmta hæðin er lokuð
frá öðrum hæðum þannig að ef svo illa vill til að einhver sem á erindi
þangað er með ofnæmi þá er hægt að sinna því fyrir viðkomandi og sækja
bækur eða annað fyrir hann.
Í byrjun var lesið einu sinni í mánuði en síðan var lesstundunum fj ölgað og
boðið var upp á lestur tvisvar í mánuði. Það reyndist þó of mikið, ekki nógu
margir sjálfboðaliðar og of mikið fyrir okkur. Eftir áramót var ákveðið að
fækka skiptunum aftur niður í eitt skipti í mánuði.
Á undanförnum árum hefur börnum víða um heim staðið til
boða að koma í almenn-
ingabóksöfn og lesa
fyrir hunda. Borgar-
bókasafnið hafði áhuga
á að bjóða upp á slíkar
stundir. Við fréttum af
félaginu Vigdísi – Vinir
gæludýra á Íslandi en
þau höfðu gert tilraun
til að bjóða upp á lestur
í bókabúðum og á einu
frístundaheimili. Þau höfðu
áhuga á samstarfi og var fyrsti
lesturinn í janúar 2016.
Markmiðið með verkefninu er að efl a læsi
barna, lestrarstund með hundi þykir vera
góð fyrir börn ekki síst þeim sem eiga við
lestrarörðugleika að stríða. Hundurinn
gagnrýnir ekki þótt upplesturinn sé ófull-
kominn, hann hjálpar barninu að slaka á og
liggur rólegur á meðan lesið er.
Vigdís er aðili að R.E.A.D. Reading
Education Assistance Dogs og sú aðild krefst
þess að starfað sé eftir ákveðnum reglum.
Til dæmis verða hundarnir og eigendur
þeirra sem eru sjálfboðaliðar að fara á
undirbúningsnámskeið. Sjálfboðaliðarnir
þurfa að sjálfsögðu að vera áhugasamir,
þeir þurfa að hafa hreina sakaskrá og
muna að barnið er að lesa fyrir hundinn en
ekki eigandann. Hundurinn þarf að vera
eldri en tveggja ára, vera heilbrigður og
standast atferlismat og vottun frá Vigdísi.
Ekki er hægt að lesa hvar sem er í safninu.
Rýmið má ekki vera lokað, en þarf samt
að vera afmarkað og ekki má vera mikil
trufl un vegna annarra gesta. Heppilegt
pláss fannst á fi mmtu hæðinni í Grófar-
húsi, inni á milli ljóðabókanna.
Lesið fyrir hunda í Borgarbókasafninu,
í samstarfi við félagið
Vigdísi – Vini gæludýra á Íslandi
Þorbjörg Karlsdóttir, verkefnastjóri barna og unglingastarfs Borgarbókasafninu.