Bókasafnið


Bókasafnið - 01.07.2017, Side 28

Bókasafnið - 01.07.2017, Side 28
28 Bókasafnið Það er eitthvað heillandi við sendibréf og dagbækur sem hafa að geyma frásagnir af lífi , aðstæðum, vonum og þrám þeirra sem slíkt hafa ritað. Ætla mætti að í sendibréfum sé sumt skrifað berum orðum, annað kannski undir rós en samt svo að viðtakandi skilji við hvað er átt. Dagbækur geta virst óskiljanlegar fyrir þann sem ekki lifi r í sömu aðstæðum og dagbókarritari enda eru þær oft öruggur staður til að fá útrás fyrir líðan og tilfi nningar. Hvert svo sem eiginlegt efni dagbóka og sendibréfa er, er ljóst að slík skjöl eru ómetanlegar persónu- legar heimildir. Aðferðafræði Grein þessi er unnin upp úr meistararitgerð höfundar, „Til þess að það færi ekki í glatkistuna“: Viðhorf og reynsla þeirra sem afhenda einkaskjalasöfn til varðveislu á opinberum skjalasöfnum. Ritgerðina í heild má fi nna á Skemmunni. Rannsóknin var framkvæmd veturinn 2015-2016 undir handleiðslu dr. Jóhönnu Gunnlaugsdóttur. Markmið rann- sóknarinnar var að kanna reynslu og viðhorf einstaklinga til afhendingar einkaskjalasafna á opinber skjalasöfn. Rann- sóknarspurningarnar voru tvær: 1. Hvert er viðhorf og reynsla aðstandenda, sem hafa afhent opinberu skjalasafni einkaskjalasafn látinna ástvina, til slíkrar varðveislu? 2. Hvert er viðhorf og reynsla skjalamyndara, sem hafa afhent eigið skjalasafn til opinberra skjalasafna, til slíkrar varðveislu? Við gerð rannsóknarinnar var notast við eigindlega að- ferðafræði. Tekin voru hálf-opin viðtöl (e. semi-structured interviews) sem greind voru með aðferðum grundaðrar kenningar (e. grounded theory). Grunduð kenning felur í sér kerfi sbundin viðmið við söfnun og greiningu rann- sóknargagna með það að markmiði að mynda kenningar sem eru grundaðar í gögnunum sjálfum (Charmaz, 2006; Glaser og Strauss, 1967; Schwandt, 2007). Þegar aðferðum grundaðrar kenningar er beitt er farið vandlega yfi r gögnin með tilliti til innihalds og greining framkvæmd með fl okkun og kóðun (e. coding) gagnanna (Hennink, Hutter og Bailey, 2011; Unnur Guðrún Óttarsdóttir, 2013). Níu viðmælendur voru valdir kerfi sbundið (e. purposive sampling). Leitast var við að fi nna viðmælendur sem mættu þörfum rannsóknarinnar (Katrín Blöndal og Sigríður Halldórsdóttir, 2013; Palys, 2008) og þá sem líklegt væri að hefðu góðan skilning á viðfangsefninu (Þórólfur Þórlinds- son og Þorlákur Karlsson, 2003). Að viðtölunum loknum voru þau afrituð, persónugreinanlegar upplýsingar afmáð- ar og viðmælendum gefi n gervinöfn til þess að virða trúnað (Gorman G.E. og Clayton, 2005). Viðmælendur voru, eins og áður sagði, níu tals- ins; fj órir aðstandendur, fj órir skjalamyndarar og einn sérfræðingur á skjalasafni. Þeir að- standendur sem rætt var við voru allt konur sem afhent höfðu skjalasöfn foreldra sinna, annars eða beggja. Skjalamyndarar voru tvær konur og tveir karlar. Yngsti viðmælandinn var rétt rúmlega fertugur og sá elsti tæplega níræður (Berglind Inga Guðmundsdóttir, 2016). Persónulegar heimildir Á opinberum skjalasöfnum á Íslandi eru einkaskjalasöfn um 10-20% af umfangi safnanna. Önnur skjalasöfn, eins og Kvennasögusafn og handritadeild Landsbókasafns, safna einnig einkaskjölum til varðveislu (Svanhildur Bogadóttir, 2013). Einkaskjöl eru „þau skjöl sem verða til hjá ein- staklingum, hjónum, fj ölskyldum eða jafnvel mörgum ættliðum. Einnig skjöl félaga og fyrirtækja sem ekki falla undir afhendingarskyldu“ (Björk Ingimundardóttir, 1996). Einkaskjöl eru af ýmsum toga og má þar nefna fæðingar- og hjónavígsluvottorð, eignaskjöl, einkabréf og handrit að ritsmíðum (Þjóðskjalasafn Íslands, 2016). Dagbækur og sendibréf eru einkaskjöl og tilheyra fl okki persónulegra heimilda. Slíkar heimildir geta bætt ýmsu við hina opinberlega skráðu sögu, einna helst vegna ná- lægðar sinnar við atburðina sem þær lýsa (Sigurður Gylfi Magnússon, 2004) en þó eru þetta töluvert ólíkar heimildir (Sigurður Gylfi Magnússon, 1997). Líkindin felast í tím- anum; frá því að atburður gerist og þar til hann er skráður í dagbók eða skrifað um hann í sendibréfi líður oftast stuttur tími (Sigurður Gylfi Magnússon, 2004). Sendibréf eru ólík dagbókum að því leyti að skrifað er til viðtakanda og þannig reiknað með að einhver lesi efnið (Sigurður Gylfi Magnús- son, 1997). Samband bréfritara og viðtakanda hefur þannig áhrif á hversu persónuleg tjáningin er í bréfi nu (Sigurður Gylfi Magnússon, 2004). Dagbækur Dagbækur segja sögu um ritmenningu, sjálfsmynd fólks og mikilvægi bóklegrar menningar (Davíð Ólafsson, 1998) og þegar best lætur nær dagbókin „að opinbera stöðugt samspil hversdagslífs, einstaklinga, samfélags og stofnana á sérlega „Því þetta eru ástarbréf“ Berglind Inga Guðmundsdóttir hefur lokið BA í þjóðfræði og B.Ed. gráðu í kennslufræði auk MIS í upplýsingafræði. Hún er safnstjóri bókasafnsins í Alvdal í Noregi.

x

Bókasafnið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bókasafnið
https://timarit.is/publication/245

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.