Bókasafnið


Bókasafnið - 01.07.2017, Blaðsíða 32

Bókasafnið - 01.07.2017, Blaðsíða 32
32 Bókasafnið 4) Upprunasaga landfræðilega heimildasafnsins: Skrásetjari verður að kynna sér aldur gagnanna, tilgang, tengsl og hlutverk í stjórnsýslunni. Einnig hvort og hvernig gögnin eru merkt eða skráð, geymslustaði, umbúnað og allt annað sem varpar ljósi á stöðu gagnasafnsins. Gæta þarf að upprunareglu, hvort frumgögnin séu í notkun og liggi undir skemmdum og fleira. 5) Geymslur og öryggismál heimasafns: Skrásetjari kynnir sér geymslur og aðbúnað gagnanna og hvort bæta þurfi úr til þess að tryggja öryggi þeirra. Það á einnig við um rafrænt öryggi. Hann skráir hjá sér allt sem viðkemur gagnasafninu og fær fulla mynd af því á þessu stigi. 6) Starfsmenn sem tengjast verkefninu: Mikilvægt atriði er að skrásetjar- inn safni upplýsingum um þá starfsmenn sem fyrr og síðar tengdust gögnunum. Taka ætti viðtöl við þá (með hljóðupptökum) til þess að varðveita söguna sem hverfur ef ekkert er að gert. Einnig er hér um að ræða þá starfsmenn sem koma að sjálfu skráningarverkefninu, og myndun teymis sem skrásetjarinn stjórnar, með þátttöku tengiliðs ÞÍ og annarra sérfræðinga. 7) Markmið með skráningarverkefninu: Síðast en ekki síst starfar skrá- setjarinn í samræmi við sett markmið með skráningarverkefninu og þar ræður stóra spurningin: Á að skanna safnið? Ekkert slíkt gerist án ákvörðunar stjórnandans. Sá hluti verkefnisins, að skanna, ætti að fara fram jafnhliða skráningu og pökkun til skylduskila til ÞÍ (það gerist varla eftir afhendingu). Sterk rök fyrir afritun eru þau að sér- fræðingar þurfa að komast í landfræðilegu frumgögnin, líftími þeirra getur verið mjög langur og með afritun eru frumrit vernduð gegn óbætanlegu tjóni. Tvær forkannanir; fyrir skráningu – fyrir skönnun Við upphaf skráningarvinnunnar er mikilvægt að skrásetjarinn geti gert sér ljósa grein fyrir því hvernig skráningin vinnst, hve langan tíma tekur að skrá hvert eintak, hve mörg skráningaratriðin verða, hvaða tengsl og tilvísanir þarf að hafa í skráningunni og svo framvegis. Raunveruleg upp- lifun af verklaginu fæst aðeins með því að prófa eins konar vinnulíkan með forkönnun á skráningunni. Það á einnig við um skönnunarverkefnið. Þessar tvær forkannanir eru kynntar hér í nokkrum orðum: Forkönnun fyrir skráningu: Fullvinna þarf skráningarformið í gagnagrunn- inum sem skrá á safnið í. Tekin eru 50 eða 100 safneintök og þau skráð í gagnagrunninn undir tímatöku. Þá verður hægt að reikna út hve langan tíma tekur til dæmis að skrá 1000 titla. Frumskráning á einu frum- riti getur tekið 1-15 mínútur, allt eftir fjölda skráningaratriða og margs annars sem getur orðið ófyrirséð og skapað tafir ef ekki hefði verið gerð forkönnun. Forkönnun fyrir skönnun: Taka má 25-50 frumrit, til dæmis í stærð A3, A4 eða A5 (sem hentar venjulegri ljósritunarvél með skanna) og þær skannaðar. Því næst þarf að merkja hvert skannað skjal og koma því fyrir á drifi. Tekið getur um 3-8 mínútur að skanna, merkja og vista. Stórir skannar (fyrir stærri skjöl sem er rennt í gegnum þá) eru hægvirk- ari en þeir sem afrita skjölin liggjandi. Við skönnun er margs að gæta, til dæmis er gamall pappír viðkvæmur, oft þarf að snyrta eða gera við svo hægt sé að skanna, og oft er um fleirtök undir sama númeri að ræða. Öll atriði telja, þess vegna er mikilvægt að skrásetjarinn geri forkönnun og kynnist þannig skönnunar- ferlinu í raun. Skrásetjarinn og heimildasafnið Skrásetjarinn þarf að vera skipulagður og halda dagbók frá fyrsta degi. Hann stjórnar teymisvinnu, skráir fundargerðir, safnar upp- lýsingum og starfar innan fjárheimilda. Í íslenskum ríkisstofnunum eru teikningasöfn algengustu landfræðilegu heimildasöfnin, þess vegna er þannig safn haft í huga við þessar lýsingar, en auðvelt ætti að vera að heimfæra grunnatriðin og verklýsingar á önnur land- fræðileg söfn. Eftirfarandi undirkaflar eru útdráttur úr fjórum köflum (úr óstyttu grein- inni). Vinnuaðstaða – hjálpargögn – tæknilega hliðin. Skrásetjarinn kemur sér upp þeirri vinnuað- stöðu sem þarf til þess að vinnuferlið geti gengið greiðlega fyrir sig. Huga þarf vel að borðplássi því dæmi eru um söfn með tug- þúsundir eintaka, sum í stórum stærðum og jafnvel í margra metra rúllum (hólkum). Einnig þarf vinnuaðstaðan að vera sem næst skráningartölvu og jafnvel skjalageymslu, en þar er öruggast að geyma skráð og frágengin skjöl fram að afhendingu til ÞÍ. Hjálpargögnin eru af ýmsu tagi, ritföng, stækkunargler, við- gerðarlím, ljósaborð, bréfskeri, melamín-filma, rykklútar og fleira. Aðeins skal skrifa á frum- gögnin með blýanti (á filmur má líma við- gerðarlímband og skrifa með blýanti á það). Tæknilega hliðin snýst um gagnagrunninn sem valið er að skrá í og einnig um þau tæki og tól sem til þarf (tölvu, ljósritunarvél með skanna, skanna fyrir stórar stærðir og fyrir ljósmyndir), einnig smáforrit til að vinna með gögnin (til að snúa þeim, raða saman og fleira). Loks þarf að fá geymsluskrárforritið frá ÞÍ (FileMaker), ef það er ekki þegar fyrir hendi í heimasafninu. Handtökin við skráningu landfræðilegra gagna. Bera þarf gögnin jafnóðum að skráningar- tölvunni. Ráðlagt er að skrá gögnin eftir núm- eraröð (ef hún er til), annars eftir aldri og/
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Bókasafnið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bókasafnið
https://timarit.is/publication/245

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.