Bókasafnið


Bókasafnið - 01.07.2017, Side 44

Bókasafnið - 01.07.2017, Side 44
44 Bókasafnið Árið 2014 höfðu þær breytingar orðið á dreifingu starfs- manna og stöðugilda á safnategundir að hlutur starfsmanna og stöðugilda þriggja efstu safnategundanna í töflum 2 og 4 (almennings-, grunnskóla- og framhaldsskólabókasafna) hafði lækkað sem hlutfall af heild starfsmanna og stöðugilda frá því sem var 1989. Samtímis hækkaði hlutfall starfsmanna og stöðugilda safnategundanna í neðri hluta töflunnar: í þjóðbókasafni og safnategundum fyrir neðan það. Meðal þriggja efstu safnategundanna munar mestu um lægra hlut- fall stöðugilda í grunnskólabókasöfnum, en í neðri hlutanum um hærra hlutfall stöðugilda í skjalasöfnum og við skjala- stjórn árið 2014 en árið 2001. Þjónustueiningum, starfsmönnum og stöðugildum í neðri hluta töflu 2, 3 og 4 hefur fjölgað og atvinnutengt mikilvægi þeirra aukist vegna þess að æ hærra hlutfall þjónustueininga, starfsfólks og stöðugilda er þar. Tafla 5. Mannafli. Fjöldi launaðs starfsfólks og stöðugilda. Sjálfboðaliðar og meðalstarfshlutfall launaðs starfsfólks. Ár Launað starfsfólk Stöðugildi Sjálfboðaliðar Starfsfólk alls Hlutfall sjálfboðaliða af starfsfólki Hlutfall sjálfboðaliða af starfsfólki almennings- bókasafna Meðalstarfs- hlutfall launaðs starfsfólks 1989 664 335.5 95 759 12.5% 24.5% 50.5% 2001 954 644.8 79 1033 7.6% 19.0% 67.6% 2014 954 718.9 9 963 0.9% 1.9% 75.4% Heildarfjöldi launaðs starfsfólks jókst frá 1989-2014 um 43.7%. Samtímis fjölgaði stöðugildum um 114.3%, og sjálf- boðaliðum fækkaði um 90.5%. Ljóst er að hlutur launafólks jókst eftir því sem sjálfboðaliðum fækkaði og stöðugildum fjölgaði. Þar af leiddi að starfshlutfall launafólks jókst að meðaltali í flestöllum menntunarflokkum. Það var 50.5% árið 1989, 67.6% árið 2001 og 75.4% árið 2014 (sjá töflu 5) (Stefanía Júlíusdóttir, 1994; 2007; 2008; 2013a, bls. 177-201; 2013b; 2014). Tafla 6. Meðalstarfshlutfall eftir menntun 1989-2014 Hlutfall stöðugilda á starfsmann Bókasafns- og upplýsinga- fræðingur Skjalastjórnar- menntun Annað háskólapróf Háskólanámi ólokið Kennaraskóli Íslands Bókasafns- tæknir Bókavarðanám Ófaglærðir Önnur menntun 1989 78.1% EV 43.8% 56% 35.3% EV 55.4% 42.7% EV 2001 87.7% 60.8% 65.3% 63.3% 39.6% EV 61.3% 62.4% 46.4% 2014 86.3% 88.5% 79% 59.7% 50.2% 64.8% 58% 63.9% 73.7% Á tímabilinu frá 1989 til 2014 jókst meðalstarfshlutfall starfsfólks í öllum menntunarflokkum. Á tímabilinu 2001- 2014 lækkaði hins vegar starfshlutfall bókasafns- og upplýs- ingafræðinga, háskólanemenda og bókavarða lítillega. Hlutur háskólamenntaðra hefur aukist jafnt og þétt á rannsókna- tímabilinu (sjá töflu 6 og 7). Meðal þeirra var starfshlutfall skjalastjórnarmenntaðra starfsmanna hæst að meðaltali árið 2014. Hin rannsóknarárin var starfshlutfall bókasafns- og upplýsingafræðinga hæst að meðaltali. Tafla 7. Meðalstarfshlutfall eftir menntunarflokkum Ár Háskólamenntun Önnur menntun Ófaglærðir 1989 45.9% 20.6% 33.5% 2001 57.3% 18.4% 24.3% 2014 66.6% 13.5% 19.9% Á rannsóknatíma jókst hlutur háskólamenntaðra en hlutur annarra minnkaði að meðaltali (sjá töflu 7). Aldur, kyn og menntun starfsmanna Upplýsinga var aflað um aldur og kyn starfsmanna öll árin. Svarhlutfall var um og yfir 90%. Aldur Upplýsingum um aldur starfsmanna var safnað á sama hátt í öllum könnununum. Miðað var við 16-20 ára og síðan á tíu ára aldursbilum: 21-30, 31-40, ... 71-80. Árið 1989, voru um 60% eldri en 40 ára, 2001 hafði þetta hlutfall hækkað í 67% (Stefanía Júlíusdóttir, 2013a, bls. 177-201) og árið 2014 var 75% starfsmanna yfir fertugu, þar af voru 51.7% yfir fimm- tugu og 22% yfir sextugu.

x

Bókasafnið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bókasafnið
https://timarit.is/publication/245

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.