Bókasafnið


Bókasafnið - 01.07.2017, Síða 48

Bókasafnið - 01.07.2017, Síða 48
48 Bókasafnið ekki komnar frá almenningi. Þess vegna má ætla að ráðning fólks með aðra háskólamenntun en bókasafnsfræði hafi haft áhrif á starfsmanna- og þjónustustefnu almenningsbóka- safna sem lýsir sér í því að auglýst er eftir fólki með aðra háskólamenntun en í bókasafnsfræði (Borgarbókasafnið menningarhús, 2016, 8. október) og það ráðið til stefnumót- unar- og stjórnunarstarfa,en bókasafnsfræðingar verða almennir starfsmenn. Umræða Þróun starfsvettvangs bóka- og skjalasafna var í samræmi við kenningarnar sem notaðar voru. Fyrsti þátturinn í kenn- ingu Lenski um þjóðfélagsþróun er stöðugleiki (2005 bls. 3-140). Á rannsóknasviðinu lýsir hann sér í áhuga á og þörf fyrir aðgang að ritaðri þekkingu hérlendis. Vitni um það bera lestur, ritun, bókagerð og stofnun lestrarfélaga aldir aftur í tímann. Á rannsóknatímanum hefur nauðsyn á góðum aðgangi að þekkingu og upplýsingum jafnt í út- gáfuritum sem skjölum á hvers kyns miðlum farið vaxandi, ekki síst vegna atvinnutengdra þarfa en einnig vegna tóm- stundaiðju. Þá hafa orðið tvenns konar þjóðfélagsbreytingar á rann- sóknatímanum, sem falla að kenningu Lenski og hafa haft mikil áhrif á þróun rannsóknasviðsins. Annars vegar sífelldar og afturkræfar breytingar í samræmi við kenningu Abbott (1988), dæmi um það eru staðlabreytingar, lýðfræði- legar og lagalegar breytingar. Þær leiddu til sameiningar sveitarfélaga, stofnana og fyrirtækja, opinberra sem einka- rekinna; þjónustan þjappaðist á færri einingar sem leiddi til fækkunar aðila bæði þeirra sem lögum samkvæmt bar að veita bókasafns- og upplýsingaþjónustu og annarra. Við það urðu þjónustueiningar á rannsóknarsviðinu stærri og höfðu frekar bolmagn til þess að ráða starfsfólk í störf, sem áður voru unnin í lausum tíma meðfram aðalstarfi eða í ólaunaðri sjálfboðavinnu. Þetta sést meðal annars á því að þrátt fyrir fækkun þjónustueininga frá 2001 til 2014 og sama launaða starfsmannafjölda bæði árin hafði stöðugildum fjölgað og sjálfboðaliðum fækkað um 90.5%. Starfshlutfall launaðs starfsfólks á rannsóknasviðinu jókst og störfin urðu aðalstörf á mikilvægum launuðum starfsvettvangi. Ætla mætti að sú þróun hafi kallað á aukinn fjölda bókasafns- og upplýsinga- fræðinga. Sérstaklega vegna þess að árin 1989 og 2001 var meðalstöðugildi þeirra hæst en 2014 var meðalstöðugildi hæst meðal skjalastjóra og meðalstöðugildi bókasafns- og upplýsingafræðinga lækkaði lítillega. Athyglisverð þróun í samræmi við kenningu Abbott (1988) um tilfærslu fagstétta milli starfa átti sér stað á almennings- bókasöfnum og við skjalastjórn. Bókasafnsfræðingar hafa sótt í skjalastjórnarstörf. Þeir hafa ekki verið nógu margir til þess að manna bæði óðal bókasafna og skjalastjórnar og hafa að hluta til yfirgefið óðal almenningsbókasafna með þeim afleiðingum að störfin hafa staðið fólki með annað háskólapróf opin. Að sögn lykilaðila hefur það staðið sig vel og verið stöðugra í starfi en bókasafnsfræðingar. Fyrir tilstilli lagabreytinga hefur fólk með annað háskólapróf að nokkru leyti tekið yfir óðal bókasafna, sérstaklega al- menningsbókasafna, að því marki að bókasafnsfræðingar eiga ekki afdráttarlausan forgang að stjórnunarstörfum sem kemur meðal annars fram í auglýsingum eftir starfsfólki. Þeir ráða ekki lengur yfir þróun menntunarleiða starfsfólks sem kemur til starfa með margs konar menntun aðra en bókasafnsfræði og bókasafnstækninám (bókasafnstæknar eru undirskipaðir bókasafnsfræðingum). Fagfélagið, Félag bókasafnsfræðinga, er ekki lengur til. Það var lagt niður árið 1999, þegar Bókavarðafélag Íslands og Félag bókasafns- fræðinga sameinuðust í félaginu Upplýsingu – félagi bóka- safns- og upplýsingafræða (Friðrik G. Olgeirsson, 2004, bls. 239-253). Upplýsingafræðingar virðast vera eins settir á almenningsbókasöfnum og bókasafnsfræðingar í upphafi áttunda áratugar síðustu aldar: almennir starfsmenn án af- dráttarlauss forgangs til stjórnunar- og stefnumótunarstarfa. Þessi þróun er í samræmi við það sem fram kom í viðtals- könnun höfundar 2005. Samtímis þessari þróun hafa bókasafns- og upplýsinga- fræðingar að nokkru leyti tekið yfir óðal skjalastjórnar og skjalasafna. Jafnframt ofangreindri þróun hefur orðið breyting á þjónustustefnu sumra almenningsbókasafna, sem dregur enn úr eftirspurn eftir bókasafns- og upplýsingafræðingum (Pálína Magnúsdóttir, 2016). Með hliðsjón af niðurstöðum könnunar höfundar á væntingum almennings til þjónustu almenningsbókasafna 2015 sem sýna að mikilvægust er hefðbundin bókasafnsþjónusta en viðburðir ýmis konar hafa minna vægi að dómi almennings11 má álykta að breytingar á þjónustu almenningsbókasafna eigi einhliða uppruna sinn á söfnunum sjálfum fremur en hjá almenningi. Vert er að hafa hugfast að eitt helsta hlutverk almenningsbókasafna er að standa vörð um lýðræðið með því að veita almenn- ingi óheftan aðgang að öllum útgáfuritum (Thorhauge, Larsen, Thun, Albrechtsen, 1997, viii-ix) og að margs konar mennta- og menningarstofnanir standa almenningi til boða hérlendis en upplýsingaþjónustu fær hann eingöngu á al- menningsbókasöfnum. Til þess að sinna upplýsingaþjónustu verður starfsfólk að kunna til slíkra verka. Ennfremur að á almenningsbókasöfnum eiga samkvæmt bókasafnalögum nr 150/2012 bókasafns- og upplýsingarfræðingar að hafa for- gang að forstöðumannsstörfum. Hér á landi eru skilyrði Meyrowitz (2001) fyrir byltingar- kenndri þjóðfélagsþróun af völdum tæknibreytinga uppfyllt. Á rannsóknasviðinu hafa orðið óafturkræfar breytingar við vistun, geymd og miðlun þekkingar og upplýsinga sem allur almenningur hefur greiðan aðgang að og hafa haft mikil áhrif. Þær hafa valdið því að hægt er að deila bæði fag- vinnu og rafrænum safnkosti bókasafna rafrænt yfir Netið, það hefur orðið til þess að fólki við fagvinnu hefur fækkað 11. Svipuð niðurstaða fékkst í könnun Öldu Davíðsdóttur (2016).

x

Bókasafnið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bókasafnið
https://timarit.is/publication/245

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.