Fréttablaðið - 14.10.2017, Side 4

Fréttablaðið - 14.10.2017, Side 4
Nauðsynlegt er að vera með traustan og góðan bíl við vetrarað- stæður eins og þekkjast á Íslandi. Sigrún Ósk Sigurðardóttir, aðstoðarforstjóri ÁTVR FIAT BÍLASÝNING Í DAG OPIÐ 12-16. Í OKTÓBER FYLGIR NÝJUM FIAT VEGLEGUR VETRARPAKKI: VETRARDEKK, GÚMMÍMOTTUR OG ÞJÓNUSTUSKOÐANIR í 2 ÁR Umboðsaðili Alfa Romeo, Chrysler, Dodge, Fiat, Fiat Professional, Jeep og Ram Trucks á Íslandi - Þverholti 6 270 Mosfellsbær - s. 534 4433 - www.isband.is - isband@isband.is - Opið virka daga 10-18 - Laugardaga 12-16 SKALLATENNISMÓT FIAT OG ÁTTUNAR FM VERÐUR HALDIÐ Á MEÐAN SÝNINGU STENDUR– ÖLLUM HEIMIL ÞÁTTTAKA. KAFFI, SÆLGÆTI, GOS OG ÍS FRÁ ÍSBÚÐINNI VALDÍSI VERÐUR Á BOÐSTÓLUM. fiat.is stjórnsýsla Áfengis- og tóbaks- verslun ríkisins keypti í sumar not- aðan, sjö ára gamlan Toyota Land Cruiser-jeppa á 9,8 milljónir króna til að nota í starfsemi sinni. Jeppanum er ætlað að leysa af hólmi annan tíu ára gamlan Land Cruiser-jeppa fyrir- tækisins. Sigrún Ósk Sigurðardóttir, aðstoð- arforstjóri ÁTVR, segir í svari við fyrirspurn Fréttablaðsins að jepp- inn sé ekki hugsaður fyrir einhvern tiltekinn starfsmann fyrirtækisins. ÁTVR þurfi traustan og góðan bíl til að takast á við íslenska veturinn og sinna verkefnum víðs vegar um landið. „ÁTVR rekur 50 Vínbúðir. Þar af eru 37 á landsbyggðinni og eru þær dreifðar um landið. Farið er í Vín- búðirnar reglulega allt árið um kring. Ferðirnar eru af ýmsum toga, t.d. vegna viðgerða og viðhalds, gæða- eftirlits, talninga, rekstrareftirlits og kennslu. Nauðsynlegt er að vera með traustan og góðan bíl við vetrarað- stæður eins og þekkjast á Íslandi,“ segir Sigrún Ósk. Gamla bílinn, 2007 árgerðina af Land Cruiser sem ekinn er 305 þús- und kílómetra, reyna Ríkiskaup nú að selja í gegnum uppboðsvef Króks. Á föstudag var  komið hæsta boð upp á 2,6 milljónir króna í þann bíl og virðast Land Cruiser-jepparnir því halda sér vel í verði. Í ljósi þess að nýi jeppinn, sem keyptur var í júní síðastliðnum, er aðeins þremur árum yngri en sá gamli, vekur hið háa kaupverð þó athygli. Að sögn Sigrúnar kostaði bíll- inn 9.789.132 krónur og var keyptur í gegnum örútboð Ríkiskaupa líkt og venjan er við bifreiðakaup hins opin- bera. Til samanburðar hefur á undan- förnum misserum nær allur ráð- herrabílafloti landsins verið endur- nýjaður fyrir tæpar 100 milljónir. Allir nema tveir ráðherrabílar vel- ferðarráðuneytisins. Í nóvember var keyptur splunku- nýr Volvo XC90 T8 tengiltvinnjeppi fyrir ferðamála-, iðnaðar- og nýsköp- unarráðherra á 9,4 milljónir. BMW X5 tengil tvinnjeppi fyrir dómsmála- ráðherra á rúmar 9 milljónir í maí 2016, Mercedes Benz E250 lúxusbif- reið var keypt fyrir fjármála- og efna- hagsráðherra í janúar 2015 á tæpar 9,6 milljónir. Allt nýir bílar en ódýrari en hinn 7 ára gamli jeppi ÁTVR. Innanríkisráðuneytið festi í mars síðastliðnum einnig kaup á nýjum Toyota Land Cruiser 150 VX-jeppa fyrir samgönguráðherra. Hann kost- aði, nýr úr kassanum, 10,7 milljónir. Ekki er ólíklegt að nýi Land Cruis- er-jeppi ÁTVR sé vel útbúinn, en hann var keyptur nýr árið 2010 af útgerðarmanninum Magnúsi Krist- inssyni, fyrrverandi eiganda Toyota- umboðsins á Íslandi, sem væntanlega hefur vandað valið. mikael@frettabladid.is ÁTVR keypti notaða Land Cruiser bifreið á 9,8 milljónir Nýi Land Cruiser jeppinn er 7 ára gamall og leysir af hólmi 10 ára jeppa sömu tegundar. Starfsmenn ÁTVR nota jeppann til að sinna erindum víðs vegar um land. Aðstoðarforstjóri ÁTVR segir nauðsynlegt að hafa traustan og góðan bíl við íslenskar vetraraðstæður. Splunkunýir ráðherrabílar keyptir fyrir lægri upphæð.  ÁTVR segist þurfa traustan jeppa til að sinna starfsemi sinni víðs vegar um land. FRéTTablaðið/STeFÁn tölur vikunnar 08. 10. 2017 til 14. 10. 2017 3,4 milljónir á mánuði greiðir Orkuveita Reykjavíkur í leigu fyrir þá fermetra sem standa nú auðir og ónotaðir vegna rakaskemmda í höfuðstöðv- unum. 132 tonn af lambakjöti voru flutt út í ágúst fyrir um 60 milljónir króna. Kíló- verðið var því um 450 krónur. 2-0 var sigur íslenska karlalands- liðsins í fótbolta gegn Kósóvó í lokaleik riðlakeppninnar fyrir HM. Þar með tryggði liðið sér þátttökurétt í lokakeppni HM í Rússlandi. 326 umsóknir um greiðsluaðlögun bárust Umboðsmanni skuldara á fyrstu átta mánuðum ársins. Sjö þúsund umsóknir hafa borist embættinu síðan það tók til starfa í ágúst 2010. 68.300 voru háskólamenntaðir landsmenn á aldrinum 25-64 ára í fyrra. 112 þúsund eintök geisladiska og hljómplatna seldust hér á landi í fyrra. Árið 1999 seldust 868 þúsund en þá náði salan hámarki. Frá árinu 2005 hefur seldum ein- tökum fækkað samfellt eða úr 823 þúsundum það ár. Benedikt Jóhannesson fráfarandi formaður Viðreisnar sagði af sér for- mennsku í flokknum og kvað sína eigin hagsmuni þurfa að víkja. Áður hafði Benedikt beðist afsökunar á þeim ummælum sínum að varla nokkur myndi hvaða mál hefði orðið til þess að stjórnarsamstarfi var slitið. Benedikt sagði ummælin hafa verið afar klaufaleg. Jónas Reynir Gunnarsson skáld hlaut Bókmennta- verðlaun Tóm- asar Guðmunds- sonar árið 2017 fyrir ljóðahandritið Stór olíuskip. Alls barst 51 óbirt ljóðahandrit undir dulnefni en til þess að hljóta þessi verðlaun þurfa höfundar að sækja um þau sérstaklega. Ásta K. Ólafsdóttir móðir fatlaðs nema greiddi um 30 þúsund krónur á mánuði í um eitt og hálft ár fyrir aksturs- þjónustu fyrir son sinn. Henni var ekki greint frá því að hægt væri að fá 20 þúsund króna árskort. Strætó áframsendi beiðni hennar um endurgreiðslu til velferðar- sviðs Reykjavíkurborgar. Kröfunni var hafnað með þeim rökum að sveitarfélaginu væri ekki skylt að bjóða upp á kortin. Þau væru val- kostur við annars konar greiðslu- þátttöku. Þrjú í fréttum Afsögn, ljóð og nemakort 1 4 . o k t ó b e r 2 0 1 7 l a u G a r D a G u r4 f r é t t i r ∙ f r é t t a b l a ð i ð 1 4 -1 0 -2 0 1 7 0 4 :2 5 F B 1 1 2 s _ P 1 0 9 K .p 1 .p d f F B 1 1 2 s _ P 1 0 0 K .p 1 .p d f F B 1 1 2 s _ P 0 0 4 K .p 1 .p d f F B 1 1 2 s _ P 0 1 3 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 D F 8 -9 E 9 4 1 D F 8 -9 D 5 8 1 D F 8 -9 C 1 C 1 D F 8 -9 A E 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 3 B F B 1 1 2 s _ 1 3 _ 1 0 _ 2 0 1 C M Y K
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.