Fréttablaðið - 14.10.2017, Síða 12

Fréttablaðið - 14.10.2017, Síða 12
Miðstöð íslenskra bókmennta auglýsir eftir umsóknum um styrki til þýðinga á íslensku. Umsóknarfrestur er til 15. nóvember 2017. Umsóknareyðublöð á rafrænu formi og nánari upplýsingar á islit.is. Auglýst eftir umsóknum um þýðingastyrki Isavia óskar eftir tilboðum í leigu á Skýli 3 á Reykjavíkurflugvelli. Skýlið er 2.770 m² og 27.700 m³ að stærð. Fyrir framan skýlið er 1.500 m² flughlað. Skýlið er eingöngu ætlað í flugtengda starfsemi. Tilboð og frekari fyrirspurnir skulu berast til Ingólfs Gissurarsonar, ingolfur.gissurarson@isavia.is. Skýlið er laust til afhendingar 1. nóvember 2017. Tilboðsfrestur er til og með 23. október 2017. F L U G S K Ý L I T I L L E I G U Bandaríkin Sjaldan hefur nafn Harveys Weinstein, kvikmynda- framleiðanda og Hollywood-mógúls, verið meira í umræðunni en þessa dagana. Hið gamla spakmæli um að öll umfjöllun sé góð umfjöllun á þó ekki við í þessu tilfelli enda hafa 22 konur stigið fram og sakað Weinstein um kynferðisbrot gegn sér. Brotin spanna áratugalangt tímabil og er maðurinn sakaður um allt frá kyn- ferðislegri áreitni og upp í nauðgun. Í áraraðir hefur Weinstein haldið uppi ímynd um einhvers konar valdamikla goðsögn sem ræður því sem hann vill í Hollywood. Ljóst er af umfjöllun undanfarið að fjölmargir vissu af hátterninu sem Weinstein er sakaður um og að sú gagnrýni hafi jafnan verið þögguð niður. Verðlaunaður og ríkur Þessi 65 ára framleiðandi hefur á ferli sínum safnað miklum auðæfum. Eignir hans eru metnar á um 21,3 milljarða króna. Hann stofnaði fram- leiðslufyrirtækið Miramax árið 1979 en seldi það til Disney árið 1993 fyrir 8,5 milljarða króna. Á meðal kvikmynda sem Wein- stein hefur unnið að eru költ- klassíkurnar Pulp Fiction og Clerks. Þá hefur Weinstein einnig fengið Óskarsverðlaun fyrir framleiðslu myndarinnar Shakespeare in Love og Tonyverðlaun fyrir framleiðslu ýmissa leikrita og söngleikja, ekki síst Billy Elliot the Musical og The Producers. Hinn hvíti Cosby Ásakanirnar á hendur Weinstein halda áfram að hrannast upp. Í gær sakaði leikkonan Rose McGowan hann um að hafa nauðgað sér. Í röð færslna á samfélagsmiðlinum Twitter sagði McGowan frá því að Roy Price, forsprakki efnisveitunnar Amazon Studio, hafi hundsað hana þegar hún sagði honum frá málinu. Amazon hefur nú sent Price í ótíma- bundið leyfi en hann var sjálfur sakaður um kynferðislega áreitni á fimmtudag. Listi ásakenda Weinsteins er orð- inn heillangur. Svo langur að banda- ríska sjónvarpskonan Samantha Bee kallaði Weinstein „hinn hvíta Cosby“ í þætti sínum í vikunni. Vísaði hún þar til þess að 59 konur hafa sakað leikarann Bill Cosby um kynferðis- brot gegn sér. Aðdáun varð fyrirlitning Á meðan meint kynferðisbrot voru falin og utan umræðunnar naut Weinstein mikillar virðingar. Hann barðist gegn fátækt og fyrir aukinni vitneskju um alnæmi. Þá lagði hann fjármagn í rannsóknir á sykursýki og MS. Weinstein fékk einnig sæmdar- orðu frá Bretlandsdrottningu fyrir framlag sitt til kvikmyndagerðar. Aukinheldur hefur Weinstein verið hollvinur flokks Demókrata í Bandaríkjunum. Hefur hann bæði talað máli flokksins og styrkt kosningabaráttu fjölmargra, meðal annars Hillary Clinton og Baracks Obama. Í viðtali við BBC í gær sagði Clinton að hún hefði fengið áfall þegar hún heyrði fréttir af ásökununum. „Sögurnar sem nú heyrast nísta hjarta mitt.“ Forsetaframbjóð- andinn fyrrver- andi var þó fljótur að vísa í stóru myndina. Sagði hún að brotin sem Weinstein er sakaður um m æ tt u e k k i viðgangast í almennu sam- félagi. Hvorki í kvikmynda- geiranum né í stjórnmálum. Stéttarbræður Weinsteins hafa einnig snúið baki við honum vegna hátternisins að því er Deadline greinir frá. Stéttarfélag framleið- enda í Bandaríkjunum mun halda neyðarfund til að ræða svar sitt við fréttunum og þykir líklegt að Wein- stein verði hreinlega rekinn úr sam- tökunum en þau höfðu áður veitt honum heiðursverðlaun sín. Þá hefur fyrirtæki Weinsteins, sem ber nafnið Weinstein Comp- any, rekið hann og fjölmargir þeirra leikara sem hann hefur starfað með fordæmt hegðun framleiðandans og snúið við honum baki. Quentin Tar- antino, einn besti vinur Weinsteins til 25 ára, sagði í yfirlýsingu að hann væri forviða og niðurbrotinn vegna fréttanna. Fangelsi möguleiki Brotin sem Weinstein er sakaður um varða sum hver við lög. The Guardi- an greindi frá því í gær að þeir lög- fræðingar sem miðillinn ræddi við teldu möguleika á því, miðað við það sem fram hefur komið, að Wein- stein verði dæmdur í fimm til 25 ára fangelsi. Komið hefur fram að lög- reglan bæði í New York og Lundúnum rannsaki ásak- anir um nauðgun. Sjálfur hefur Weinstein neitað því að hafa nokk- urn tíman n a u ð g a ð n o k ku r r i konu. Goðsögn orðin að alræmdum skúrki Alls hafa 22 konur sakað Harvey Weinstein um að hafa beitt sig kynferðis­ ofbeldi. Kvikmyndaframleiðandinn er moldríkur og var virtur og valdamikill. Flestir hafa nú snúið baki við manninum sem gæti verið á leið í fangelsi. Harvey Weinstein kvikmyndaframleiðandi. NordiCpHotos/AFp Konurnar 22 l Asia Argento leikkona sagði Weinstein hafa nauðgað sér þegar hún var 21 árs gömul. l Lucia Evans leikkona sagði Wein- stein hafa neytt sig til að veita sér munnmök árið 2004. l Gwyneth Paltrow leikkona sagði Weinstein hafa áreitt sig kyn- ferðislega þegar hún var 22 ára. Ég hélt hann myndi reka mig. Gwyneth paltrow, leikkona l Angelina Jolie leik- kona sagði Weinstein hafa áreitt sig kyn- ferðislega á tíunda áratugnum. l Ónafngreind kona sagði Wein- stein hafa nauðgað sér. l Mira Sorvino leikkona sagði Weinstein hafa nuddað sig og elt sig um íbúðina þegar hún sagði honum að hún vildi ekki láta snerta sig. l Rosanna Arquette leikkona sagði Weinstein hafa áreitt sig kynferðislega. l Ambra Battilana Gutierrez fyrir- sæta sagði Weinstein hafa káfað á sér þegar hún var 22 ára. l Zoe Brock fyrirsæta sagði Wein- stein hafa afklæðst og elt sig um íbúðina þegar hún vildi ekki sofa hjá honum. l Katherine Kendall leikkona sagði Weinstein hafa afklæðst og elt sig um íbúðina þegar hún vildi ekki sofa hjá honum. l Tomi-Ann Roberts nemi sagði Weinstein hafa lofað sér vel- gengni í kvikmyndabransanum ef hún myndi afklæðast fyrir hann. l Ashley Judd leikkona sagði Weinstein hafa beðið sig um nudd eða að fá að horfa á sig í sturtu. Hvernig get ég komið mér héðan án þess að Harvey Wein- stein útiloki mig? Ashley Judd, leikkona l Emma de Caunes leikkona sagði Weinstein hafa krafist þess að fá að koma upp í rúm til hennar. l Romola Garai leikkona sagði Weinstein hafa mætt á bað- sloppnum einum klæða til að fylgjast með áheyrnarprufu hennar þegar hún var átján ára. l Dawn Dunning nemi sagði Weinstein hafa sagt einu leiðina að frama vera að sofa hjá sér. l Rose McGowan leikkona sagði Weinstein hafa nauðgað sér. l Lauren Sivan fréttakona sagði Weinstein hafa lokað hana inni í skáp og fróað sér fyrir framan hana. l Liza Campbell rithöfundur sagði Weinstein hafa krafist þess að hún færi í bað með honum. l Léa Seydoux leikkona sagði Weinstein hafa stokkið á sig og reynt að kyssa sig. l Cara Delevingne leikkona sagði Weinstein hafa áreitt sig kyn- ferðislega. Hann stóð í dyr- unum og reyndi að kyssa mig. Ég stöðvaði hann og náði að koma mér út úr herberginu. Cara delevingne, leikkona l Sohpie Dix leikkona sagði Wein- stein hafa eyði- lagt feril sinn eftir að hún hafnaði ákafri ágengni hans. l Myleene Klass söngkona sagði Weinstein hafa boðið sér samning gegn samförum. Þórgnýr Einar Albertsson thorgnyr@frettabladid.is 1 4 . o k t ó B e r 2 0 1 7 L a U G a r d a G U r12 f r é t t i r ∙ f r é t t a B L a ð i ð 1 4 -1 0 -2 0 1 7 0 4 :2 5 F B 1 1 2 s _ P 1 0 8 K .p 1 .p d f F B 1 1 2 s _ P 1 0 1 K .p 1 .p d f F B 1 1 2 s _ P 0 0 5 K .p 1 .p d f F B 1 1 2 s _ P 0 1 2 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 D F 8 -A D 6 4 1 D F 8 -A C 2 8 1 D F 8 -A A E C 1 D F 8 -A 9 B 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 5 A F B 1 1 2 s _ 1 3 _ 1 0 _ 2 0 1 C M Y K
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.