Fréttablaðið


Fréttablaðið - 14.10.2017, Qupperneq 18

Fréttablaðið - 14.10.2017, Qupperneq 18
Útgáfufélag: 365 miðlar ehf. Stjórnarformaður: Einar Þór Sverrisson forStjóri: Ingibjörg Stefanía Pálmadóttir Útgefandi og aðalritStjóri: Kristín Þorsteinsdóttir kristin@frettabladid.is aðStoðarritStjórar: Hrund Þórsdóttir hrund@stod2.is, Kjartan Hreinn Njálssson kjaranh@frettabladid.is, Kolbeinn Tumi Daðason kolbeinntumi@365.is, Ólöf Skaftadóttir olof@frettabladid.is. Fréttablaðið kemur út í 90.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSN 1670-3871 fréttaBlaðið Skaftahlíð 24, 105 reykjavík Sími: 512 5000, ritstjorn@frettabladid.is ÞróunarStjóri: Tinni Sveinsson tinni@365.is helgarBlað: Kristjana Björg Guðbrandsdóttir kristjanabjorg@frettabladid.is markaðurinn: Hörður Ægisson hordur@frettabladid.is menning: Magnús Guðmundsson magnus@frettabladid.is lífið: Guðný Hrönn Antonsdóttir gudnyhronn@frettabladid.is ljóSmyndir: Vilhelm Gunnarsson villi@365.is framleiðSluStjóri: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is Gunnar Mín skoðun Guðmundur Steingrímsson Kristín Þorsteinsdóttir kristin@frettabladid.is Á meðan bólgnar krónan og dregst saman á víxl eins og físibelgur. Fjármagns- kostnaður er hærri en í nokkru landi sem við erum samskipa. Launa- maðurinn fórnar drjúgum hluta tekna sinna í vexti og verðtrygg- ingu. Fyrir- tækin borga bönkum risasneið af framlegð sinni. TILKYNNING frá landskjörstjórn Landskjörstjórn tekur framboðslista sem bornir eru fram við alþingiskosningar 28. október 2017 til meðferðar og afgreiðslu á fundi þriðjudaginn 17. október næst komandi kl. 14 á 2. hæð í Austurstræti 8-10 í Reykjavík (gengið inn frá Vallarstræti). Umboðsmenn stjórnmálasamtaka sem bjóða fram lista eiga rétt á að vera viðstaddir fundinn, sbr. 40. gr. laga um kosningar til Alþingis, nr. 24/2000. Reykjavík, 11. október 2017. Landskjörstjórn. Ég var að átta mig á því, að núna eru að renna upp fyrstu kosningarnar í sautján ár sem ég er ekki þátt­takandi í með einhverju móti. Mér finnst það svolítið gaman. Núna fylgist ég með úr fjarlægð eins og hver annar dúddi á Facebook. Ég er að fíla það. „Ertu ekki feginn að vera laus?“ spyr fólk. Jú, ég er það. Af hverju? Sjáiði til. Þingið sjálft er fínn staður. Á þingi er mikið úrval af fólki. Þar er þversniðið. Letingjar eiga sína fulltrúa. Asnar líka. En duglegt, klárt og skemmtilegt fólk er lang­ stærsti hópurinn. Það er gaman að taka þátt í þinginu. Ég náði alls konar málum í gegn. Mitt fyrsta mál sem ég fékk samþykkt var til dæmis að fatlað fólk gæti fengið notenda­ stýrða persónulega aðstoð. Ég fékk alls konar í gegn fyrir barnafólk, einkum feður. Fékk samþykkta fjárfestingar­ áætlun fyrir innviðina. Stofnaði stjórnmálaflokk. Aðalat­ riðið er að mér fannst ekki leiðinlegt á þingi. Þingið sjálft er mikilvægur og krefjandi vettvangur. Þar er mikið spáð og spekúlerað, stundum rifist, kafað djúpt og mikið hlegið. En svo er það hitt Hitt var aftur leiðinlegra. Ég veit að stjórnmál eru þannig bransi að það telst góður árangur ef 85% þjóðarinnar þola þig ekki, svo lengi sem hin 15 kjósa þig. Ég veit líka að maður verður að vera með skráp. Mér tókst aldrei að koma mér upp almennilegum skráp. Við mínar fyrstu þing­ setningar æpti fólk á okkur, gaf okkur fokkmerki og henti í okkur dósum og lyklum. Þetta situr í mér. Þingmenn grétu í kirkjunni. Stjórnmál eru eineltisumhverfi, ekki innan þings heldur utan þess. Ég las um mig í fjölmiðlum að ég væri puntu­ strákur, að ég vildi bara þægilega innivinnu, að ég væri í stjórnmálum bara út af því að mötuneytið væri svo fínt, að enginn myndi taka eftir mér í partíum, að ég liti út eins og lúðaleg útgáfa af Birni Thors (smá fyndið), að enginn gæti hugsað sér að fara út að borða með mér (hvað var það?), að ég væri innantómur og hugsjónalaus, með enga leiðtoga­ hæfileika og að það EINA sem ég vildi í stjórnmálum væri að breyta klukkunni. Reyndar var klukkupælingin að fá Nóbelsverðlaunin, en hvað um það. Smám saman fékk ég nóg. Einu sinni sat ég á kaffihúsi með konunni minni og syni þegar maður á næsta borði sagði við son sinn að þarna sæti þingmaður, vondur maður, og þeir skyldu þess vegna færa sig. Hvað er að? Ég setti á Facebook að ég væri að grilla. Voða einlægur í góðu skapi. Umsvifalaust fékk ég á mig spurningar í hástöfum um það hvað ég ætlaði að gera fyrir heimilin. Þá hló ég reyndar. Fólk hefur auðvitað rétt á sínum viðhorfum og reiðin er skiljanleg og allt það. Öll þessi neikvæða orka er samt sem áður yfirþyrmandi. Hún er of mikil. Einu sinni var veist að mér á Gay Pride fyrir framan börnin. Hvað er málið? Við berjumst gegn einelti í skólum. Kannanir meðal unglinga sýna að upp undir 10% þeirra telja að einhver eigi skilið einelti. Það finnst okkur auð­ vitað sjokkerandi. Á einhver skilið einelti? Kannski finnst fólki það um stjórnmálamenn Ég er mjög feginn að vera laus. Og já, ég er að fara upp í bústað að grilla. Í einlægni sagt: Ég tek ofan fyrir ykkur sem standið í þessu núna. Gangi ykkur öllum vel. Hlýir straumar héðan. Virðing. Varðandi leiðindin Aðalatriðið er að mér fannst ekki leiðinlegt á þingi. Þingið sjálft er mikilvægur og krefjandi vettvangur. Íslandi vegnar nokkuð vel utan Evrópusambandsins. Efnahagur er blómlegur – árferðið betra en almennt í ESB­löndum. Svo er forsjóninni og erlendum lánar­drottnum fyrir að þakka. Við fengum makríltorfur í miðju svartnættinu eftir hrun. Fyrir áttum við ægifagurt land, sem útlendir ferðamenn komust á snoðir um í andstreyminu miðju. Lánardrottnarnir féllust svo nauðugir viljugir á uppgjör sem gerði okkur kleift að hreinsa upp skuldir, langt umfram það sem flesta óraði fyrir. Ráðamenn eru flóttalegir til augnanna þegar þeir eigna sér hagsældina. Þeir vita sem er, að sumir lánardrottnarnir telja sig illa snuðaða – að peningarnir hafi verið teknir af þeim ófrjálsri hendi. Hér er ekki lagður dómur á það. En af þeirri ástæðu og góðum ytri skilyrðum – sem stjórnmálin ráða engu um – er Ísland á góðum stað í efnahagslegum samanburði. Orðið sjálfumgleði kemur upp í hugann þegar ráðamenn guma af því og þakka sjálfum sér að hvergi sé betra að alast upp en á Íslandi. Hér sé land tækifæranna og góð vinna fyrir alla meðan ungt fólk í evruríkjunum leggi á sig strangt nám og fái ekkert verðugt að gera. Láta svo í veðri vaka að krónan sé galdurinn. Samtímis flýja tæknifyrirtækin með sitt þraut­ þjálfaða starfslið, einmitt vegna krónunnar. Atvinnuleysistölur menntafólks víða í Evrópu eru kol­ bikasvartar, einkum við Miðjarðarhafið. En tölur þaðan ber að skoða í ljósi sögunnar. Á sólarströndum Spánar, Portúgals og Grikklands var atvinnulíf frumstætt í árdaga ESB. Sjálfsþurftarbændur og fiskimenn á bátskeljum ein­ kenndu mannlífið líkt og í Afríku sunnan Sahara. Flest fólk var bláfátækt. Háskólar voru fyrir fáa útvalda og skólagráða tryggði þeim einum bjarta framtíð. Hlutfall háskólafólks hefur margfaldast og róðurinn á vinnumarkaði þyngst. Tæki­ færum fjölgar þó hratt en menntafólki enn hraðar. Engum dettur í hug að lausnin felist í afturhvarfi til sjálfsnægtanna. Við fórum illa að ráði okkar síðast þegar sótt var um inngöngu í ESB. Vanrækt var að tryggja pólitískt bakland. Umsóknin var í lausu lofti allan tímann. Erfiðustu álita­ málin voru ekki formlega reifuð við samningaborðið. Í raun reyndi aldrei á umsóknina heldur vorum við dregin á asnaeyrunum í ferð án fyrirheits. Fyrir vikið veigra stjórn­ málamenn sér við að gera ESB að kosningamáli. Á meðan bólgnar krónan og dregst saman á víxl eins og físibelgur. Fjármagnskostnaður er hærri en í nokkru landi sem við erum samskipa. Launamaðurinn fórnar drjúgum hluta tekna sinna í vexti og verðtryggingu. Fyrirtækin borga bönkum risasneið af framlegð sinni. Þau eru berskjölduð gagnvart útlendum keppinautum, sem hafa aðgang að þroskuðum lánamörkuðum. Nægir að nefna Costco. Svarið hlýtur að vera myntbandalag. Evran er nærtækust. Þessi sjónarmið eru munaðarlaus á jaðri kosningaþjarks­ ins. Öflin sem hafa hag af óbreyttri stöðu ráða ferðinni. Hin eru annaðhvort brennd af gamla klúðrinu eða ná ekki eyrum kjósenda. Einstök ESB­ríki glíma við mikinn vanda. Væringar í Katalóníu eru grafalvarlegar. Brexit hvílir eins og mara á Bretum, sem í æ ríkari mæli átta sig á að viðskilnaðurinn er glapræði – og öðrum þjóðum víti til varnaðar. En þrátt fyrir allt er ástandið í Evrópu með besta móti og vitnisburður um frekar farsælt ríkjasamstarf. Sjálfumgleði 1 4 . o k t ó b e r 2 0 1 7 L A U G A r D A G U r18 s k o ð U n ∙ F r É t t A b L A ð i ð SKOÐUN 1 4 -1 0 -2 0 1 7 0 4 :2 5 F B 1 1 2 s _ P 0 9 5 K .p 1 .p d f F B 1 1 2 s _ P 0 8 2 K .p 1 .p d f F B 1 1 2 s _ P 0 1 8 K .p 1 .p d f F B 1 1 2 s _ P 0 3 1 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 D F 8 -9 4 B 4 1 D F 8 -9 3 7 8 1 D F 8 -9 2 3 C 1 D F 8 -9 1 0 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 2 B F B 1 1 2 s _ 1 3 _ 1 0 _ 2 0 1 C M Y K
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104
Qupperneq 105
Qupperneq 106
Qupperneq 107
Qupperneq 108
Qupperneq 109
Qupperneq 110
Qupperneq 111
Qupperneq 112

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.