Fréttablaðið - 14.10.2017, Síða 84
1 4 . o k t ó b e r 2 0 1 7 L A U G A r D A G U r40 t í m A m ó t ∙ F r É t t A b L A ð i ð
tímamót
Þetta er fyrsta fullorðinsbókin mín og hún er glæpasaga,“ segir Stefán Sturla Sigur-jónsson, leikari, leikstjóri og kvikmyndagerðarmaður, um bókina Fuglaskoðarann.
„Mér og konu minni, Petru Högnäs, þykir
báðum gaman að lesa reyfara og höfðum
fíflast með að við þyrftum að skrifa saman
bók. Petra er í þannig vinnu að hún hefur
ekki mikinn extratíma en fyrir þremur
árum fékk ég fyrir hjartað og þurfti að fara
í aðgerð og þegar ég var að ná mér eftir
það sleit ég hásinina á fótboltaæfingu
þannig að samanlagt var ég við rúmið í
heilt ár. Þá sat ég með tölvuna á hnjánum
og skrifaði og þessi saga varð til.“
Áður hefur Stefán Sturla gefið út tvær
barnabækur um Trjálf, fígúru sem hann
var með í Fjölskyldu- og húsdýragarð-
inum um tíma. Einnig var hann ritstjóri
Íslandsspils sem kom út 2002. Hann
kveðst hafa sent Gísla Má hjá bókaút-
gáfunni Ormstungu handritið að Fugla-
skoðaranum. „Gísli hringdi í mig stuttu
síðar og sagði: „Stefán, ég er búinn að vera
í pásu í útgáfu í nokkur ár og ég hef aldrei
gefið út glæpareyfara.“ Þá bjóst ég við að
hann segði næst: Þakka þér samt kærlega
fyrir – en þá kom: „En ég ætla að gefa út
þessa bók.“ Ég var mjög hamingjusamur
með það. Bókarkápan er eftir Gísla Má
og samstarfið við hann hefði ekki getað
verið betra.“
Stefán Sturla dvelur nú á Höfn en á
heima í Finnlandi. „Ég á fjölskyldu í Finn-
landi, konu og tvö börn. Við búum í Vasa
og eigum líka lítinn hobbíbúgarð, erum
með íslenska hesta og hund og kött,“ lýsir
hann en hvað er hann að gera á Horna-
firði?
„Ég hef umsjón með lista- og menning-
arsviði framhaldsskólans. Skólinn stendur
að veglegum leiksýningum og ég var hér
síðasta vetur að leikstýra. Nú er bók Ast-
rid Lindgren, Ronja ræningjadóttir, tekin
fyrir í félagsvísindum, bókmenntum, tón-
list, myndlist, sviðslist, sönglist og kvik-
myndagerð og á vetrarönninni verður
gerð sýning út frá henni, annaðhvort
okkar eigin leikgerð eða minni sýningar.
Það er á hendi nemenda. Á vorönn fá
svo nemendur að standa að fleiri listvið-
burðum. Þetta starf leiði ég.“
En skyldi hann eitthvað fá að starfa að
sviðslistum í Finnlandi? „Já, ég hef fengið
að leika og leikstýra, bæði í sænsku- og
finnskumælandi leikhúsum, reyndar
ekki leika á finnsku. En síðustu tvö ár hef
ég mest unnið með Rauða krossinum við
að reyna að koma rútínu á líf flóttamanna
og hjálpa þeim með sínar daglegu þarfir.“
gun@frettabladid.is
Fékk fyrir hjartað og þar
með tíma til að skrifa bók
Fuglaskoðarinn er ný bók eftir Stefán Sturlu Sigurjónsson leikara. Eftir hann liggja
tvær barnabækur og eitt spurningaspil en Fuglaskoðarinn er fyrsti krimminn. Nú leiðir
hann unga Hornfirðinga áfram í listnámi en hugsar heim til konu og barna í Finnlandi.
Stefán Sturla hefur sent frá sér fyrsta reyfarann. Mynd/Sigurður Mar
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda
samúð og hlýhug vegna andláts og
útfarar móður okkar, tengdamóður,
ömmu og langömmu,
Halldóru Jónsdóttur
frá Hvammeyri, Tálknafirði,
Vallengi 6, Reykjavík.
Sérstakar þakkir til starfsfólks hjúkrunarheimilisins Eirar.
Jóhanna Einarsdóttir Bjarni Reynarsson
Einar Einarsson Jónína Hallsdóttir
Rannveig Einarsdóttir Sigurður Helgi Helgason
Jón Helgi Einarsson Dagmey Valgeirsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda
samúð og hlýhug vegna andláts og
útfarar elskulegs eiginmanns, föður,
tengdaföður, afa og langafa,
Einars Þorvarðarsonar
Prestastíg 9, Reykjavík.
Sérstakar þakkir til starfsfólks á
deild 11E Landspítala Háskólasjúkrahúss fyrir einstaka
umönnun og hlýhug.
Guðbjörg Benjamínsdóttir
Guðlaug Einarsdóttir Magnús Agnarsson
Herdís Einarsdóttir Oddur B. Grímsson
Þorvarður Einarsson Guðbjörg Halldóra Ólafsdóttir
Sigvaldi Einarsson Guðlaug Birgisdóttir
Agnes Vilhelmsdóttir
Kolbrún Vilhelmsdóttir Ólafur Skúli Guðmundsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær sonur minn,
bróðir okkar, mágur og vinur,
Jón Agnarsson
Holtsflöt 9, Akranesi,
lést fimmtudaginn 5. október á
Heilbrigðisstofnun Vesturlands,
Akranesi. Útförin fer fram frá Akraneskirkju
miðvikudaginn 18. október kl. 13. Blóm og kransar
vinsamlega afþökkuð en þeim sem vilja minnast hans er
bent á Íþróttafélagið Þjót, boccia-deild,
kt. 660496-2119 – rnr. 0552-26-1451.
Jónína B. Jónsdóttir
Guðjón Smári Agnarsson
Guðfinna Björk Agnarsdóttir Sigurður Sævar Sigurðsson
Ólöf Agnarsdóttir Sigurjón Skúlason
Björg Agnarsdóttir Þór Arnar Gunnarsson
Heiðrún Hermannsdóttir
Ástkær amma mín, systir
og móðursystir,
Sigrún Lovísa Sigurðardóttir
lést á hjúkrunarheimilinu Skógarbæ
7. október. Útförin fer fram frá
Háteigskirkju miðvikudaginn
18. október kl. 13.00. Sérstakar þakkir
til starfsfólks Skógarbæjar fyrir góða umönnun í
gegnum árin. Þeim sem vilja minnast hennar er bent á
Krabbameinsfélagið.
Róbert Alexander Alexandersson
Jón Sigurðsson
Sigrún Tryggvadóttir
Vesturhlíð 2 Fossvogi | Sími 551 1266 | útför.is
Útfararstofa kirkjugarðanna
Útfarar- og lögfræðiþjónusta
Lögfræðiþjónusta
Veist þú hvert eignir þínar renna
eftir þinn dag? Kynntu þér málið á
heimasíðu okkar, www.útför.is.
Þar getur þú m.a. sett inn þínar forsendur
í reiknivél. Við aðstoðum þig við gerð
erfðaskrár, kaupmála og við dánarbússkipti.
Katla Þorsteinsdóttir,
lögfræðingur
Við erum til staðar
þegar þú þarft á
okkur að halda
Okkar elskaða
Guðlaug Jóhannsdóttir
frá Bakkakoti í Meðallandi, til
heimilis að Mánatúni 2, Reykjavík,
er látin. Hún verður kvödd frá
Háteigskirkju mánudaginn
23. október kl. 13.00.
Sigrún B. Björnsdóttir
Þuríður Pálsdóttir Páll Bjarni Kjartansson
Már Grétar Pálsson Sólveig Katrín Sveinsdóttir
Tinna, Orri Páll, Elvar Már, Sunna Dís, Ellen Ragna,
Máni Steinn, Einar Sveinn, Jóhann Páll, Bessi Huginn,
Úlfur Flóki og Hrafnhildur Elva.
1
4
-1
0
-2
0
1
7
0
4
:2
5
F
B
1
1
2
s
_
P
0
9
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
8
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
2
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
2
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
D
F
8
-A
8
7
4
1
D
F
8
-A
7
3
8
1
D
F
8
-A
5
F
C
1
D
F
8
-A
4
C
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
B
F
B
1
1
2
s
_
1
3
_
1
0
_
2
0
1
C
M
Y
K