Fréttablaðið - 14.10.2017, Qupperneq 85
Þetta eru vissulega tíma-mót. Ég er stolt, hrærð og ánægð,“ segir séra Eva Björk Valdimarsdóttir sem nýlega var ráðin til prest-þjónustu í Dómkirkjunni.
Hún kveðst spennt fyrir að vinna fyrir
söfnuðinn þar við hlið sóknarprestsins,
séra Sveins Valgeirssonar, og annars
starfsfólks.
Eva Björk er ekki alveg blaut á bak við
eyrun. „Síðustu tvö ár hef ég verið prest-
ur í Keflavíkurkirkju, vígðist þangað árið
2015 en var áður framkvæmdastjóri
Æskulýðssambands Þjóðkirkjunnar
í tvö ár. Byrjaði í því starfi þegar ég
útskrifaðist úr guðfræðideild Háskólans
árið 2013. Áður tók ég BA í sálfræði og
vann ýmis störf tengd sálfræðinni því
ég var á leið í framhaldsnám í réttarsál-
fræði þegar ég venti mínu kvæði í kross
og ákvað að fara í guðfræðideildina.
Hafði hugsað æ meira um trúmál og
trúarbrögð eins og margir aðrir, tel að
atburðirnir 11. september 2001 hafi
haft þar áhrif og að eftir þá hafi mörgum
fundist trú hættuleg. En ég álít að við
þurfum frekar að læra meira bæði um
okkar kristnu trú og önnur trúarbrögð.“
Það erfiðasta sem Eva Björk hefur
tekist á við í prestsstarfinu er að jarð-
syngja ungt fólk. „Dauðinn snertir
mann alltaf djúpt, einkum þegar hann
er ótímabær. Þá þarf maður styrk til að
þjóna syrgjendum en það er líka gef-
andi.“ Hún kveðst ekki hafa áhyggjur
af að íslenska þjóðin sé að ganga af
trúnni. „Ég held að fólk sé miklu trúaðra
almennt en umræðan í þjóðfélaginu
gefur til kynna. Það kom til dæmis í ljós
í þjóðar atkvæðagreiðslunni um tillögur
stjórnlagaráðs 2012, þá var umræðan
um íslensku þjóðkirkjuna búin að vera
neikvæð, samt kaus fólk með henni.“
Eva Björk er fædd og uppalin á
Akureyri en flutti til Reykjavíkur 1998
þegar hún fór í sálfræðina í HÍ. Trúarlegt
uppeldi? „Já, að einhverju leyti. Ég fór í
sunnudagaskóla í Glerárkirkju og kristi-
legar sumarbúðir á Vestmannsvatni.
Bara svipað og gerist og gengur,“ segir
hún og veit ekki enn hvenær hún stígur
fyrst í stólinn í höfuðkirkju Íslands.
gun@frettabladid.is
Er stolt, hrærð og ánægð
Séra Eva Björk Valdimarsdóttir, nýráðinn prestur Dómkirkjunnar, telur þjóðina trúaðri
en umræðan í samfélaginu gefi til kynna og hlakkar til að starfa á nýjum vettvangi.
Eva Björk lítur björtum augum til framtíðarstarfsins í Dómkirkjunni. FréttaBlaðið/Ernir
Ástkær eiginmaður minn, faðir
okkar, tengdafaðir og afi,
Jón Hallur Ingólfsson
bankastarfsmaður frá Sauðárkróki,
lést á Heilbrigðisstofnun Norðurlands
á Sauðárkróki fimmtudaginn
12. október. Útför hans fer fram
laugardaginn 21. október kl. 13.30 frá Sauðárkrókskirkju.
Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir. Þeim sem vilja
minnast hans er bent á Utanfarasjóð sjúkra, Skagafirði,
eða Krabbameinsfélag Skagafjarðar.
Aðalbjörg Þuríður Sigfúsdóttir
Jóhann Jónsson Helena Sif Þorgeirsdóttir
Hulda Jónsdóttir Páll Ragnar Pálsson
Hallgrímur Ingi Jónsson Guðrún Björg Egilsdóttir
Kristveig Anna Jónsdóttir Þorsteinn Þórarinsson
og barnabörn.
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir,
afi, sonur og bróðir,
Kristinn Sigurðsson
matreiðslumeistari,
Eyjabakka 8, Reykjavík,
lést á Landspítalanum 11. október.
Útförin fer fram frá Bústaðakirkju
fimmtudaginn 19. október klukkan 13.
Sigurður Ingi Kristinsson Guðbjörg Vallý Ragnarsdóttir
Benedikt Kristinsson Eva Catharina Saxebøl
Kristinn Kristinsson Margherita Zuppardo
Bjarni Jens Kristinsson Kristrún Skúladóttir
barnabörn
Anna G. Árnadóttir
Árni G. Sigurðsson Ingibjörg H. Elíasdóttir
Anton Sigurðsson Hjördís Vilhjálmsdóttir
Elskuleg móðir, tendamamma,
amma og langamma,
Guðbjörg Haraldsdóttir
(Stella)
frá Kerlingadal, búsett lengst af
á Borðeyri, lést fimmtudaginn
21. september sl. Útförin hefur farið
fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Þökkum auðsýnda
samúð og hlýhug og innilegar þakkir til starfsfólks
hjúkrunarheimilisins Eirar fyrir góða umönnun.
Aðalsteinn Þorkelsson
Haraldur Jónasson Helga Gísladóttir
Guðlaug Jónasdóttir Halldór R. Lárusson
Þórey Jónasdóttir Þór Jóhannsson
Silja Jónasdóttir Ólafur Sigurður Eggertsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Elskulegur bróðir okkar og mágur,
Helgi Sævar Sveinsson
(Helgi á Rauðamel)
Borgarbraut 65a, Borgarnesi,
sem lést 5. október, verður jarðsunginn frá
Kolbeinsstaðakirkju þriðjudaginn 17. október kl. 14.
Frímann Sveinsson Jóhanna Björnsdóttir
Hafdís Sveinsdóttir Egill V. Sigurðsson
Sigríður Ólafía Sveinsdóttir
Bjarni Sveinsson Sólveig Skúladóttir
Margrét Steingrímsdóttir Páll Ragnarsson
Erna Arnórsdóttir Hannes Geirsson
Hulda Arnórsdóttir
Sævar Arngrímsson Erla Þorleifsdóttir
Elskulegur bróðir okkar,
mágur og stjúpfaðir,
Ríkharður Hólm Sigurðsson
Brekkugötu 23, Ólafsfirði,
varð bráðkvaddur 10. október. Útför
hans fer fram frá Ólafsfjarðarkirkju
föstudaginn 27. október kl. 14.00.
Halla Gísladóttir
Björk Gísladóttir
Sigríður Vilhjálms
Sólveig Sigurðardóttir Matthías Ásgeirsson
Bjarki Ringsted Sigurðsson Erla Nanna Jóhannesd.
Þráinn Sigurðsson Dröfn Gísladóttir
Lísbet Ringsted Sigurðardóttir Leó Sveinsson
Rögnvaldur Sigurðsson Margrét Kjartansdóttir
Sigurður Sigurðsson Hólmfríður Dóra Kristjánsd.
Hjörtur Sigurðsson Eygló Birgisdóttir
Tómas Waagfjörð Álfheiður Rut Ragnarsd.
Þökkum innilega öllum þeim sem
heiðruðu minningu elskulegrar
frænku okkar,
Guðnýjar Gísladóttur
frá Vesturkoti
á Hvaleyri við Hafnarfjörð.
Sérstakar þakkir sendum við
starfsmönnum á Hrafnistu í Hafnarfirði sem önnuðust
hana af hlýju og alúð.
Bræðrabörnin
Ástkær móðir okkar,
tengdamóðir og amma,
Pernille G. Bremnes
Arahólum 2, Reykjavík,
lést á Landspítalanum Hringbraut
þriðjudaginn 26. september. Hún
verður jarðsungin frá Grafarvogskirkju
föstudaginn 20. október klukkan 13.00.
Svanborg Matthíasdóttir Kjartan Örn Sigurðsson
Brandur Matthíasson Sigríður Laufey Gunnarsdóttir
Björn Matthíasson Þuríður Jóhannsdóttir
Ingvar Matthíasson Helena Bergstrøm
Jón Matthíasson Heiðdís Sigurðardóttir
Lilja Matthíasdóttir
og barnabörn.
Ástkær faðir minn,
tengdafaðir, afi og langafi,
Páll Ólason
húsgagnabólstrari frá Siglufirði,
Lækjasmára 6, Kópavogi,
lést þriðjudaginn 10. október á
hjartadeild Landspítalans. Útförin fer fram
frá Hafnarfjarðarkirkju mánudaginn 23. október kl. 15.
Þuríður Pálsdóttir Knútur Kristinsson
Súsanna Kristín Knútsdóttir Auðunn Jónsson
Hólmfríður Knútsdóttir Ingólfur Finnbogason
Páll Óli Knútsson
Knútur Þór, Agnes Lind, Friðrik Óli, Soffía og Finnbogi.
Ástkær móðir okkar,
Þorbjörg Guðmundsdóttir
Snorrabraut 56b, Reykjavík,
er látin.
Gunnar Ingvarsson
Kristbjörg Ásta Ingvarsdóttir
Bjarnveig Ingvarsdóttir
Ástkær systir mín, móðir,
amma og langamma,
Guðrún Hildur Árnadóttir
Stekkjarholti 1, Akranesi,
lést á gjörgæsludeild Landspítalans
við Hringbraut 30. september. Útförin
hefur farið fram. Innilegar þakkir til
allra sem sýndu okkur hlýhug og vináttu.
Gréta Árnadóttir
Guðný Tómasdóttir
Árni Tómasson
barnabörn og langömmubörn.
Ástkær eiginmaður, faðir,
tengdafaðir og afi,
Bjarni Pálsson
fyrrverandi skólastjóri
Núpsskóla í Dýrafirði og
framhaldsskólakennari í Garðabæ,
Hofakri 3, Garðabæ,
sem lést 3. október verður jarðsunginn frá
Hallgrímskirkju miðvikudaginn 18. október kl. 13. Þeim
sem vilja minnast hans er bent á Minningarkort SÁÁ í síma
530-7600 eða hjartadeild Landspítalans.
Valborg Þorleifsdóttir
Þorleifur Bjarnason Hildur Ómarsdóttir
Hrefna Bjarnadóttir Bjarni Birgisson
Anna Bjarnadóttir Jón Emil Magnússon
Páll Geir Bjarnason
og barnabörn.
Ástkær eiginmaður, sonur, faðir,
tengdafaðir, bróðir og afi,
Gunnar Benediktsson
Stórakrika 2b, Mosfellsbæ,
lést aðfaranótt miðvikudagsins
11. október á hjartadeild
Landspítalans. Útförin auglýst síðar.
Unnur Pétursdóttir
Halldóra Ármannsdóttir
Atli Örn Gunnarsson Lilja Oddsdóttir
Gunnar Snær Gunnarsson Helga Finnsdóttir
Eyþór Ingi Gunnarsson Svanlaug Birna Sverrisdóttir
Örvar Gunnarsson Helga Jóna Gylfadóttir Hansen
systkini og barnabörn.
T í m a m ó T ∙ F R É T T a B L a ð i ð 41L a U G a R D a G U R 1 4 . o k T ó B e R 2 0 1 7
1
4
-1
0
-2
0
1
7
0
4
:2
5
F
B
1
1
2
s
_
P
0
9
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
8
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
2
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
2
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
D
F
8
-B
7
4
4
1
D
F
8
-B
6
0
8
1
D
F
8
-B
4
C
C
1
D
F
8
-B
3
9
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
A
F
B
1
1
2
s
_
1
3
_
1
0
_
2
0
1
C
M
Y
K