Fréttablaðið - 14.10.2017, Síða 99

Fréttablaðið - 14.10.2017, Síða 99
Leikhús Faðirinn HHHHH Florian Zeller Þjóðleikhúsið – Kassinn Leikstjórn: Kristín Jóhannesdóttir Leikarar: Eggert Þorleifsson, Harpa Arnardóttir, Þröstur Leó Gunn- arsson, Edda Arnljótsdóttir, Sveinn Ólafur Gunnarsson og Ólafía Hrönn Jónsdóttir Leikmynd: Stígur Steinþórsson Búningar: Þórunn María Jónsdóttir Lýsing: Halldór Örn Óskarsson Tónlist: Borgar Magnason Hljóðmynd: Elvar Geir Sævarsson og Borgar Magnason Þýðing: Kristján Þórður Hrafnsson Heilabilunarsjúkdómar á borð við Alzheimer eru átakanlegir fyrir alla aðila, bæði sjúklinga og aðstand­ endur. Harmurinn sem fylgir því að sjá ástvin hverfa inn sjálfan sig er nánast óbærilegur. Engin lækning er til og ekkert hægt að gera nema styðja einstaklinginn í endalausri leit sinni að sjálfinu. Faðirinn eftir Frakkann Florian Zellert í leikstjórn Kristínar Jóhannesdóttur var frum­ sýndur síðastliðinn föstudag í Kassa Þjóðleikhússins og fjallar leikverkið um þennan harm á einstakan og grátbroslegan hátt. Færni Zeller birtist ljóslifandi fyrst og fremst í formi verksins. Áhorfend­ ur upplifa brothættan hugarheim hins aldraða André frá hans sjónar­ horni. Ekkert virðist passa saman og tíminn molnar fyrir framan augun á manni sem gerir örvæntingar­ fullar tilraunir til að púsla brotun­ um saman. Í hvert skipti sem fastur punktur finnst í verkinu snýr höf­ undurinn öllu á hvolf og umturnar framvindunni, stundum meira að segja persónum, án þess þó að fórna grunnsögunni. Samtölin og stöð­ ugar endurtekningar eru listasmíð, afskaplega fyndin og grátleg í senn. Þýðing Kristjáns Þórðar Hrafnssonar er einnig með afburðum góð. Kristín er ekki að finna upp hjólið en líkt og leikskáldið skilur hún formið í þaula. Hún notast við klassískar lausnir og framkvæmir þær nánast óaðfinnanlega. Hún sýnir hér og sannar fyrir alþjóð að hún er ein af langbestu leikstjórum landsins og hefur verið í áraraðir. Atriði flæða áfram og byggja á heild­ rænni nálgun við verkið og góðum skilningi á innra lífi manneskjanna sem þar dvelja. Löngu skiptingarnar á milli atriða, við firnafína tónlist Borgars Magnasonar, eru brotnar upp með því að riðla heimi verksins sem endurskapar óöryggi og hræðslu karakteranna á sviði. Svo eru mar­ traðarkenndu hliðarsenurnar lista­ smíð. Sjúkdómurinn er aldrei nefndur á nafn heldur sýndur með listilegri og fágaðri frammistöðu Eggerts Þorleifssonar. Verkfræðingurinn André sveiflast frá ofsareiði til ofsa­ hræðslu, persónuleiki hans tekur stakkaskiptum, félagsfærni hans daprast og hann á bágt með að lesa aðstæður. En samtímis gerir hann örvæntingarfullar tilraunir til að fela ástand sitt en harmurinn felst í því að allir eru fyrir löngu búnir að gera sér grein fyrir því, hann bara veit það ekki. Eggert hefur sjaldan verið betri og samleikurinn er óaðfinnanlegur. Harpa Arnardóttir leikur eina útgáfu af Anne, dóttur André, sem berst í bökkum við að finna lausn á óleysanlegu vandamáli. Leik Hörpu vex ásmegin þegar líða tekur á og hún er sérstaklega eftirminnileg þegar hún þarf að þrýsta niður sorg­ inni. Líkt og Eggert hefur Þröstur Leó Gunnarsson þann einstaka hæfileika að hlusta á sviði og finna líf í þögninni. Frá fyrstu stund hans á sviðinu nýtir hann þennan hæfi­ leika til að skapa lifandi persónu með augnaráðinu einu. Dapurlega fyllerístilraun parsins Pierre og Anne til að tæla hvort annað er makalaust fyndin. Er lífið ekki hvort eð er bara endalausar sorglegar endurtekn­ ingar? Edda Arnljótsdóttir, Sveinn Ólafur Gunnarsson og Ólafía Hrönn Jóns­ dóttir fara með smærri hlutverk en öll skila þau fantagóðri vinnu. Laura, leikin af Eddu, kemur eins og sjoppulegur stormsveipur inn í þessa bjöguðu tilvist og kómísk tímasetn­ ing Eddu er kostuleg. Sveinn Ólafur vinnur sín hlutverk vel og nýtur sín sérstaklega í seinni hluta sýningar. Lítið ber á Ólafíu Hrönn í bróður­ parti sýningar en hún sýnir kraft sinn af öllum mætti í blálokin. Sviðshönnun Stígs Steinþórssonar er einföld á að líta en geymir dulda dýpt. Veggir stofunnar eru saman­ settir úr óteljandi strengjum sem víbra við minnstu snertingu. Sömu­ leiðis eru búningar Þórunnar Maríu Jónsdóttur einkar snjallir og vekja upp fágun Parísarbúa en súrrealisma David Lynch á sama tíma. Hand­ verkið er síðan fullkomnað með leiftrandi lýsingu Halldórs Arnar Óskarssonar, ofurbjartri og myrkri til skiptis. Lokasena leiksýningarinnar ber öll leikstjórnareinkenni Kristínar þar sem hún smíðar draumkenndan, dáleiðandi og harmrænan endi sem bæði kremur hjartað og vekur upp von. Slíkt er aðeins á færi allrafær­ ustu listamanna. Sigríður Jónsdóttir Niðurstaða: Sýning sem enginn má missa af eða gengur út af ósnortinn. Sextett um sáran missi Hvað? Morgunverðarboð fyrir bæjarbúa Hvenær? 10.30 Hvar? Eiðistorg Seltjarnarnesbær, Menningarnefnd, Björnsbakarí, Hagkaup og Veislan bjóða öllum bæjarbúum í girnilegt morgunverðarhlaðborð. Systur úr Soroptimistaklúbb Seltjarnarness framreiða morgunverðinn, hljóm­ sveitin Karma Brigade mun gleðja gesti með ljúfri tónlist, Gróttu­ stelpur sjá um andlitsmálningu og Blaðrarar gefa börnum blöðrudýr. Ókeypis er á viðburðinn. Hvað? Myndlistarratleikur í fylgd með listakrákum Hvenær? 13.00 Hvar? Gerðarsafn Í dag verður fjölskyldustund í Menningarhúsunum í Kópavogi en að þessu sinni verður myndlistarrat­ leikur á dagskrá. Ratleikurinn leiðir þátttakendur á öllum aldri um mál­ verkasýninguna Staðsetning í Gerð­ arsafni, um verk Gerðar Helgadóttur á 1. hæð safnsins og jafnvel yfir á Náttúrufræðistofu Kópavogs þar sem steinar verða skoðaðir. Í lokin verða úrslit úr nafnasamkeppni listakrákanna gerð kunngerð en samkeppnin fór fram á fjölskyldu­ stund í september síðastliðnum. Hvað? Leiksýning um Lúther Hvenær? 14.00 Hvar? Grafarvogskirkja Stoppleikhópurinn frumsýnir leikrit um Lúther. Handrit og leikgerð er í umsjá Valgeirs Skagfjörð og Stopp­ leikhópsins. Leikritið er ætlað full­ orðnum og eldri börnum. Hvað? „Millilending“ & „Stór olíu- skip“ – útgáfuhóf Hvenær? 17.00 Hvar? Loft, Bankastræti Í dag verður fagnað útgáfu fyrstu skáldsögu Jónasar Reynis Gunn­ arssonar, „Millilendingu“, og einnig nýútkominni ljóðabók hans, „Stór olíuskip“, sem vann Bókmennta­ verðlaun Tómasar Guðmundssonar í vikunni. Fagnaðurinn fer fram á Loft í Bankastræti. 15. október 2017 tónlist Hvað? Velkomin heim – Einar Bjartur Egilsson Hvenær? 17.00 Hvar? Hörpu Einar Bjartur Egilsson leikur Schu­ bert, Rachmaninov og eigin tón­ smíðar. Viðburðir Hvað? Söngur og sögur Hvenær? 14.30 Hvar? Húsið, Eyrarbakka Ásta Kristrún les upp úr bók sinni „Það sem dvelur í þögninni“ og Val­ geir Guðjónsson slær gítar og flytur ljúf lög. Frítt inn. Hvað? Tangó praktika Tangóævin- týrafélagsins Hvenær? 17.30 Hvar? Hressó, Austurstræti Svanhildur Vals er Dj kvöldsins auk þess að sjá um leiðsögn í arg­ entínskum tangó. Allir velkomnir. Aðgangseyrir er 700 krónur. Hvað? Myndlistarsýning Stefáns Þórs myndlistarmanns. Hvenær? 10.00 Hvar? Listhús Ófeigs, Skólavörðustíg Sýningin ber heitið „Skáldað á striga – Ljóð lýsa mynd“. Um er að ræða andlitsmyndir af þekktum íslenskum skáldum ásamt stuttum handskrifuðum ljóðum þeirra. Dagskrá: 13:30 -13:40 Setning málþings Pétur Magnússon, formaður Samtaka fyrirtækja í velferðarþjónustu og forstjóri Hrafnistuheimilanna 13:40-13:55 Velferðaþjónustan frá sjónarhóli sjálfstæðra rekstraraðila Anna Birna Jensdóttir, stjórnarmaður Samtaka fyrirtækja í velferðarþjónustu og framkvæmdastjóri Sóltúns 14:10-14:25 Landspítali - hornsteinn í þjónustu við veika og aldraða Páll Matthíasson, forstjóri Landspítalans 14:10-14:25 Velferðarþjónustan frá sjónarhóli heimaþjónustuaðila Berglind Magnúsdóttir, skrifstofustjóri velferðasviði Reykjavíkurborgar Stutt erindi frá stjórnmálaflokkum Guðlaug Kristjánsdóttir, Björt framtíð Hildur Sverrisdóttir, Sjálfstæðisflokki Jón Þór Ólafsson, Pírötum Oddný G. Harðardóttir, Samfylkingu Steinunn Þóra Árnadóttir, Vinstri græn Þorsteinn Víglundsson, Viðreisn Að framsögum loknum verða pallborðsumræður Fundarstjóri: Þórunn H. Sveinbjörnsdóttir, formaður Landssambands eldri borgara. Hver á stefna Íslands í þjónustu við veika einstaklinga og aldraða að vera? Málþing á vegum Samtaka fyrirtækja í velferðarþjónustu. Pétur Magnússon Anna Birna Jensdóttir Jón Þór ÓlafssonHildur Sverrisdóttir Páll Matthíasson Oddný G. Harðardóttir Berglind Magnúsdóttir Steinunn Þóra Árnadóttir Guðlaug Kristjánsdóttir Þorsteinn Víglundsson Þórunn H. Sveinbjörnsdóttir Allir velkomnir, aðgangur ókeypis Málþingið verður haldið á Icelandair Hótel Reykjavík Natura, Þingsal 2, mánudaginn 16. október kl. 13:30-15:45 Málþing Hótel Natura Mánudaginn 16. október 13:30-15:45 Handhafi Bókmenntaverðlauna Tómasar Guðmundssonar, Jónas Reynir Gunnarsson, heldur útgáfu- hóf í tilefni útgáfu tveggja nýjustu bóka sinna á Lofti í Bankastræti. FRéTTaBLaðið/anTon BRinK Sunnudagur m e n n i n g ∙ F R É T T A B L A ð i ðN N N r t t a a 55L a u g a r D a g u r 1 4 . o k t ó B e r 2 0 1 7 1 4 -1 0 -2 0 1 7 0 4 :2 5 F B 1 1 2 s _ P 1 1 0 K .p 1 .p d f F B 1 1 2 s _ P 0 9 9 K .p 1 .p d f F B 1 1 2 s _ P 0 0 3 K .p 1 .p d f F B 1 1 2 s _ P 0 1 4 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 D F 8 -9 9 A 4 1 D F 8 -9 8 6 8 1 D F 8 -9 7 2 C 1 D F 8 -9 5 F 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 3 A F B 1 1 2 s _ 1 3 _ 1 0 _ 2 0 1 C M Y K
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.