Dagblaðið Vísir - DV - 27.01.2017, Page 29
Helgarblað 27.–30. janúar 2017 Fólk Viðtal 21
„Ég naut þess að vera
með þessu fallega ljósi“
n Foreldrar og vinir n Þetta er Birna. Munið hana svona n Góðhjörtuð, traust, fyndin, sterk og stóð með sínum
Birna og besta vinkonan Matthildur Soffía Jónsdóttir og Birna voru mjög nánar vinkonur. Sjálfstæð og sterk Þessi mynd er mjög lýsandi fyrir Birnu, segir Silla.
Lét ekki stjórnast af skoðunum
annarra
Þegar rætt er við vini og fjölskyldu
eru þeir sammála um að Birnu hafi
verið sama um hvaða skoðun aðr-
ir höfðu á henni. Það hvarflaði ekki
að henni að velta því fyrir sér hvaða
hugmynd aðrir höfðu um hana.
Hún var bara Birna og kom til dyr-
anna eins og hún var klædd.
„Hún gat alltaf rökstutt sitt val
og ákvarðanir. Þær breyttust ekki.
Á endanum lærði ég að henni yrði
ekki haggað og samþykkti það sem
hún sagði án frekari málalenginga,“
segir Silla.
Birna var nægjusöm og keypti föt
sín í búðum sem seldu notuð föt. Var
það gert af hugsjón, ekki af fjárhags-
vandræðum. Áður hefur komið fram
að Birna var með svartan húmor.
Hún hafði gaman af að kynnast fólki
frá öllum heimshornum.
Náin bróður sínum og afa og
ömmu
Birna og bróðir hennar, Logi Fann-
ar Brjánsson, voru afar náin og
miklir vinir. Þau gátu talað um
allt milli himins og jarðar og áttu
saman ófá hlátursköst. Þá stóðu
þau oft saman gegn foreldrum sín-
um ef þeir stungu upp á hugmynd-
um sem öðru þeirra hugnaðist ekki.
„Þá mátti ég vanda mig ef ég ætl-
aði að ná árangri,“ segir Silla.
Logi Fannar sótti Birnu yfirleitt
í vinnuna, og hafði unun af því.
Logi saknar mest litlu hlutanna, til
dæmis að Birna komi ekki lengur
inn og spjalli við köttinn Dreka.
„Hann gerði allt fyrir hana og
hún kenndi honum mjög fljótt að
mæta tímanlega. Hún var ekki týp-
an sem beið úti í kuldanum. Hann
mætti alltaf á slaginu eftir að hún
hafði gert honum grein fyrir því.“
„Hún var líka góður vinur for-
eldra minna, ömmu sinnar og
afa, en hún sagði þeim til frá unga
aldri. Það gerðist bara núna síð-
ast um jólin að hún bað afa sinn
um að kaupa sér dekkri skyrtu, af
því ömmu hennar fannst hann svo
sætur í dekkri skyrtu.“
Vinirnir
Viðmælendur DV segja að Birna
hafi ekki þola drama og forðaðist
rifrildi og ósætti. Vinir hennar hafi
verið fljótir að kynnast innbyrð-
Birna með kettinum Dreka
Dreki var í miklu uppáhaldi hjá
Birnu og voru þau mestu mátar.
„Birna var góður
námsmaður, hún
dansaði á böllum og tók
virkan þátt í félagsstarfi.