Dagblaðið Vísir - DV - 27.01.2017, Qupperneq 37
Helgarblað 27.–30. janúar 2017
Lúpínuseyði
Gamla góða lúpínuseyðið sem
Ævar Jóhannesson framleiddi
og gaf fólki í um aldarfjórðung.
Uppskriftin er sú sama, en nú
er búið að bæta við; engifer,
sítrónusafa, stevíu og sítrónusýru
og bragðið því talsvert betra og
áhrifin sömuleiðis. Lúpínuseyðið
hefur gert mörgum gott. Í ævi
minningum Ævars og á heimasíðu
okkar, www.lupinuseydi.is er að
finna magnaðar sögur af fólki sem
hefur haft gott af því að drekka
seyðið.
Hvönnin
Ætihvönn er ein merkasta
lækninga jurt Íslandssögunnar
en hvönnin hefur verið notuð
allt frá landnámi. Rannsóknir á
Raunvísindastofnun hafa sýnt
að í hvönn eru efni sem verka á
bakteríur, veirur, sveppi og jafnvel
á krabbameinsfrumur auk efna
sem virðast örva ónæmiskerfið.
Ætihvönn hefur verið notuð við
meltingartruflunum svo sem
krampa og vindi í meltingarfærum
og gegn kvilla í lifur. Hvönnin
hefur verið talin góð til að losa
slím úr öndunarfærum og
verið notuð við bronkítis og
brjósthimnubólgu og öðrum
lungnakvillum. Hvönnin er enn
fremur talin virka vel gegn tíðu
þvagláti, blöðrubólgu, hálsbólgu,
kvefi og flensu.
Lúpínuseyði með engifer,
sítrónu og stevíu
Hvönn með engifer, sítrónu,
spínati, myntu og stevíu
Hvönn með engifer,
sítrónu, túrmerik,
peru og stevíu
Hvönn með engifer,
sítrónu, bláberjum
og stevíu
Drekktu í þig
íslenska náttúru
þér til heilsubótar
Sölustaðir:
Hagkaup, Heilsuhúsið, Fjarðarkaup,
Bónus, 10-11 Austurstræti og Lágmúla,
Blómaval, Raðhús, Vöruval
Svarti Haukur ehf
s. 517 0110
www.lupinuseydi.is
svartihaukur@svartihaukur.is
Lífsstíll 29
Snúningur í hringekju„Talið er
að allt
að 20–30%
einstaklinga
fái svima, þeir
eru á öllum
aldri en konur
eru líklegri
en karlar að
fá slíkt
inum og augun til þess að halda jafn-
væginu.
Meðferðin getur verið af ýmsu
tagi en byggir oftast nær á því að laga
misræmi í innri eyrnagöngum, not-
ast við bólgueyðandi eða sýkladrep-
andi lyf auk þess að gefa þessu tíma.
Fleiri miðtaugakerfiseinkenni
Þegar við fáum svima sem byggir á
miðlægri orsök kemur hann skyndi-
lega og er oftar en ekki um að ræða
bráða blóðþurrð eða blæðingu í
heilastofni eða litla heila. Stund-
um byggja einkennin á æxlisvexti
eða breytingum á heilavef í hrörn-
unarsjúkdómum. Þessu fylgja iðu-
lega fleiri miðtaugakerfiseinkenni
samanber taltruflun eða sjóntrufl-
anir, jafnvel algert jafnvægisleysi
þannig að viðkomandi á erfitt með
að standa, hvað þá ganga, og yfir-
leitt lagast einkenni lítið þrátt fyrir
að breytt sé um stellingu. Oftsinnis
fylgir líka mikil ógleði og uppköst.
Það er því ekki alveg sama hvað-
an sviminn kemur né heldur hversu
brátt þarf að bregðast við. Almennt
er hægt að segja að líkurnar á að
ungir einstaklingar sem eru hraustir
fyrir séu ólíklegir til að eiga við alvar-
legan vanda í miðtaugakerfinu og
ættu að leita læknis á heilsugæslu-
stöð eða hjá öðrum sérfræðingum.
Áhættan á blæðingu, blóðtappa
eða alvarlegri sjúkdómum eykst
með aldri og er mikilvægt að muna
það þó fyrir alla aldurshópa að ef
svimi byrjar skyndilega án nokkurs
fyrirvara, sérstaklega ef honum
fylgja mikil almenn einkenni til við-
bótar eins og ógleði, jafnvægisleysi
eða meðvitundarskerðing er mik-
ilvægt að láta skoða sig sem fyrst
á sjúkrahúsi þar sem þörf er á sér-
hæfðri myndgreiningu og meðferð
ef um bráðan vanda er að ræða. n
Fyrirspurn: Verkir í brjóstum
Fyrirspurn: Í sirka tvær vikur er mér búið að vera mjög illt í brjóstunum. Tilfinningin
er svipuð og þegar ég var ófrísk. Ég fór til heimilislæknis og hún þreifaði brjóstin og fann
ekkert athugavert. Svo í fyrradag (14. jan.) þá bættist við frekar mikil glær og þunn út-
ferð úr kynfærum. Ég ákvað að taka þungunarpróf þótt mér fyndist mjög ólíklegt að ég
væri ófrísk þar sem karlinn var tekinn úr sambandi eftir seinna barnið og það er rúm vika
síðan ég hætti á síðustu blæðingum. Eins og ég bjóst við, þá kom blússandi neikvætt á
þungunarprófinu. Þetta er að trufla mig frekar mikið. Mér er illt í brjóstunum stanslaust
og útferðin er frekar mikil ( alveg tær, lyktarlaus og þunn). Hvað gæti þetta mögulega
verið?“
Svar: „Verkir í brjóstum er frekar algengt vandamál hjá konum. Eins og þú nefnir
myndast oft spenna í brjóstum á meðgöngu og einnig fyrir blæðingar. Hormónasveiflur
geta einnig haft áhrif á brjóstin og er það langalgengasta ástæða verkja í brjóstum.
Krabbamein í brjóstum kemur yfirleitt fram sem einkennalausir hnútar sem hægt er að
finna við þreifingu, því er ólíklegt að það sé vandamálið. Stundum geta stoðkerfisverkir
komið þannig fram að hægt er að túlka verkina frá brjóstum. Eins getur millirifjagigt
valdið mjög sárum verkjum sem geta legið undir brjóstinu, en þeir verkir koma frekar
fram við ákveðna hreyfingu eins og öndun eða líkamsbeitingu.“