Dagblaðið Vísir - DV - 27.01.2017, Qupperneq 48
Helgarblað 27.–30. janúar 2017
7. tölublað 107. árgangur Leiðbeinandi verð 785 kr. dv.is/frettaskot askrift@dv.is Sími 512 7000
K
R
A
F
TU
R
FÉLAG UNGS FÓLKS SEM GREINST HEFUR MEÐ KRABBAMEIN OG AÐSTANDENDUR
STYRKTU KRAFT MEÐ MÁNAÐARLEGU
FRAMLAGI. Skráðu þig á www.lifidernuna.is
LÍFIÐ ER
NÚNA!
ÞAÐ ÞARF KRAFT TIL AÐ TAKAST Á VIÐ KRABBAMEIN
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/
S
ÍA
Ég er
Royalisti!
Endurkoma
sítrónubúðings
n Mikil tíðindi urðu í matarmenn-
ingu Íslendinga nú á dögunum. Þá
tilkynnti fyrirtækið Royal að aftur
væri hafin fram-
leiðsla á hinum
sígildu og bragð-
góðu sítrónubúð-
ingum fyrirtæk-
isins. Framleiðsla
búðingsins lagðist
af um skeið, mat-
gæðingum til mik-
illar mæðu, en vegna fjölda áskor-
ana ákvað fyrirtækið að endurvekja
framleiðsluna og fæst sítrónu-
búðingurinn nú í betri matvöru-
verslunum. Þessu fagna margir og
meðal þeirra er Líf Magneudóttir,
forseti borgarstjórnar. Líf er forfall-
inn aðdáandi Royal-búðinga, svo
mikill raunar að hún
hélt upp á fer-
tugsafmæli sitt
í gömlu verk-
smiðju Royal-
fyrirtækisins.
Sunna að skilja
n Eiríkur Jónsson greinir frá því
á vefsíðu sinni að Sunna Gunnars
Marteinsdóttir, aðstoðarkona
Gunnars Braga Sveinssonar,
standi í skilnaði. Eiríkur gefur
það í skyn að þau Gunnar Bragi
eigi í sambandi en neðst í grein
Eiríks stendur þó að Sunna aftaki
með öllu að skilnaður hennar
tengist á nokkurn hátt „samstarf-
inu við Gunnar Braga“.
Minna má á spá Völvu DV,
sem sagði um áramótin að til
tíðinda myndi draga í einka-
lífi Gunnars Braga á árinu. Á
myndinni, sem tekin var á nýju
ári, sjást þau með sendiherra
Bandaríkjanna.
Tístið kom í bakið á Loga
Aðstandendur Myrkra músíkdaga létu Loga Bergmann bragða á eigin meðulum
F
jölmiðlamaðurinn Logi Berg-
mann er þekktur hrekkjalómur
og hefur strítt ótal vinum sínum
í gegnum tíðina. Það kom því vel
á vondan á dögunum þegar aðstand-
endur Myrkra músíkdaga gerðu ræki-
lega at í Loga.
Forsaga málsins er sú að Logi og
vinkona hans, Margrét Marteinsdótt-
ir, fyrrverandi dagskrárstjóri á Rík-
isútvarpinu, hafa árum saman gert
grín sín á milli að Myrkum músíkdög-
um. „Okkur finnst þetta svo fyndin
samkoma því þetta er svo mikið ekki
okkar stöff. Þetta byrjaði sem einhver
brandari, Margrét að spyrja mig hvað
ég ætli að sjá á Myrkum þetta árið og
alls konar pælingar sem spunnust út
úr því sem er ótrúlega fyndið því ég
tengi nákvæmlega ekkert við þetta,“
segir Logi í samtali við DV.
Logi tísti síðan í fyrra eftirfarandi:
„Shit hvað mér finnst alltaf fyndið
þegar fólk að spila nútímatónlist þykist
vera að spila eftir nótum. #myrkirmús-
íkdagar“. Þetta skens fór greinilega
ekki framhjá aðstandendum hátíðar-
innar sem ákváðu að skjóta til baka.
Eiginkona Loga, Svanhildur Hólm,
lýsti því á Facebook að hún hefði ver-
ið að keyra heim á dögunum þegar
hún heyrði auglýsingu í útvarpinu um
Myrka músíkdaga. Í auglýsingunni var
klykkt út með þessum orðum: „Hlökk-
um til að sjá þig og Loga Bergmann“.
„Ég fékk póst um daginn þar sem sagt
var að ég ætti hátíðarpassa og gæti
boðið einhverjum með. Svo kom þessi
útvarpsauglýsing sem var auðvitað
stórkostleg. Ég var í sminki, að fara að
lesa fréttir, þegar Svanhildur hringdi í
mig og hálf gargaði á mig. Ég vissi ekki
hvað hefði gerst, ég hélt að eitthvað
hefði komið fyrir börnin, henni var svo
mikið niðri fyrir,“ segir Logi hlæjandi.
Logi er ákveðinn í að fara
enda kann hann að meta gott
grín. „Mér finnst þetta ógeðslega
fyndið. Ég ætla auðvitað að fara
og taka Möggu með, sjá eitthvert
stórkostlegt stöff sem ég tengi
ekkert við.“ n
freyr@dv.is
Logi fer á
Myrka Logi
Bergmann
fékk grínið
sem hann
gerði að
Myrkum mús-
íkdögum ræki-
lega í bakið.