Dagblaðið Vísir - DV - 03.02.2017, Page 6
Helgarblað 3.–6. febrúar 20176 Fréttir
eldbakaðar
eðal pizzur
sími 577 3333
www.castello.is
Dalvegi 2, 201 Kópavogi / Dalshrauni 13, 220 Hafnarfirði
Guðrúnartúni 4,
105 reykjavík
Sími: 533 3999
www.betraGrip.iS
Opið
virka
daga frá
kl. 8–17
Smurdagar
15% afSláttur
af vinnu Og efni
daGana 15. janúar-28. Febrúar
„Hélt sínum
karakter þrátt
fyrir allt“
n Ragnar Egilsson látinn n Slasaðist illa sumarið 2014
H
ann var skemmtilegur, glaður,
jákvæður og hélt sínum
karakter þrátt fyrir allt,“ segir
frænka Ragnars Egilssonar
sem varð bráðkvaddur á heimili sínu
þann 27. janúar síðastliðinn. Til-
vera Ragnars, sem var 33 ára þegar
hann lést, breyttist varanlega sumar-
ið 2014 eftir að hann lenti í alvarlegu
mótorhjólaslysi og lamaðist frá hálsi.
DV fjallaði um slysið og af-
leiðingar þess á líf Ragnars og fjöl-
skyldu hans á sínum tíma en fyrstu
vikurnar eftir slysið var honum vart
hugað líf.
Þá vakti það mikla athygli þegar
Ragnar safnaði sér fyrir ferðalyft-
ara sumarið 2016 með því að selja
buff með myndum af hauskúp-
um, Hvolpasveitinni og Hello
Kitty. Í samtali við DV sagði
Ragnar að söfnunin hefði
farið fram úr hans björtustu
vonum, en lyftarinn var
nauðsynlegur svo hann
gæti brugðið sér áhyggju-
laus út úr húsi.
Ragnar barðist oft fyrir
lífi sínu á þessum tveimur
og hálfa ári frá því hann lenti í slys-
inu. Þá stóðu foreldrar hans, systkini
og makar þeirra þétt við bakið á
Ragnari á þessu erfiða tímabili.
„Ragnar var sonur, bróðir, mágur
og síðast en ekki síst uppáhalds-
frændi margra. Verum
góð við hvert annað, lífið
er núna,“ segir frænka
Ragnars í pistli sem hún
skrifaði til minningar
um hann.
Að lokum vill fjöl-
skyldan koma á fram-
færi kæru þakklæti til
allra þeirra sem studdu
við bakið á þeim eftir að Ragnar slas-
aðist. Þeim sem vilja minnast hans
er bent á Von sem er styrktarsjóður
gjörgæslunnar á Landspítalanum
í Fossvogi; kt: 490807-1010, banki:
0513-26-3147 n
Lífið breyttist varan-
lega sumarið 2014
Ragnar lamaðist frá hálsi
í mótorhjólaslysi.
Kristín Clausen
kristin@dv.is
Jákvæðnin kom Ragnari langt
Hann var mjög æðrulaus.
Húmorinn var alltaf
til staðar Ragnar á
góðri stundu.
Fór í hjartastopp á hlaupabrettinu
Geir Friðgeirsson barnalæknir í kröppum dansi
S
narræði og hárrétt við-
brögð starfsmanna
Ásvallalaugar og sund-
laugargests björguðu
lífi Geirs Friðgeirs sonar
barnalæknis sem missti meðvitund
og fór í hjartastopp á hlaupabretti
í Reebok Fitness í Hafnarfirði um
miðjan janúarmánuð.
Eftir að Geir hné niður á hlaupa-
brettinu komu mennirnir nánast
strax aðvífandi. Vegna kunnáttu
þeirra og notkunar á hjartastuð-
tæki sem var á staðnum er Geir, nú
aðeins tveimur vikum síðar, kom-
inn á ról á nýjan leik og þau hjón-
in, Geir og Kolbrún Þormóðs dóttir,
eru afar þakklát fyrir björgunina.
Eirikurjonsson.is greindi fyrst
frá þessu á fimmtudag. Þá segir
að hjónin hafi á dögunum farið í
Ásvallalaug og hitt bjargvætti Geirs
og lýstu þar yfir innilegu þakklæti
og hrósuðu hlutaðeigandi fyrir
þekkingu þeirra og viðbrögð.
Mikilvægt er að sem flestir
kunni skyndihjálp, hafi kjark til að
bregðast við og stökkva inn í að-
stæður sem þessar og að viðeig-
andi tæki séu tiltæk. Hárrétt við-
brögð björguðu lífi Geirs. n
Kristín Clausen
kristin@dv.is
Geir barnalæknir með bjargvættum sínum Starfsmenn Ásvallalaugar beggja
vegna og Stefán fastagestur laugar lengst til vinstri. Geir færði þeim félögum mikið hrós
og blóm fyrir afrekið og þakkaði þeim lífsbjörgina. Mynd FaCebooK síða HaFnaRFJaRðaRbæJaR