Dagblaðið Vísir - DV - 03.02.2017, Qupperneq 10
Helgarblað 3.–6. febrúar 201710 Fréttir
U
msjónaraðilar Ævintýra
garðsins í Skútuvogi hafa
ákveðið að opna ekki
garðinn aftur eftir að Heil
brigðiseftirlit Reykja
víkur gerði þeim að loka honum
í september 2016 eftir ítrekaðar
athugasemdir. Til stóð að opna
garðinn í breyttri og smærri mynd
á nýju ári en nú er ljóst að svo
verður ekki. Stofnandi Ævintýra
garðsins segir að þeir hafi á endan
um gefist upp gagnvart ítrekuðum
aðfinnslum, nýjum kröfum og
fjölgun eftirlitsaðila sem hafi gert
reksturinn ómögulegan. Hann segir
það skjóta skökku við að borgin
skuli ganga svo hart fram í ljósi þess
að borgin sé síðan í samkeppni um
sambærilega afþreyingu og hreyf
ingu fyrir börn, meðal annars með
Fjölskyldu og húsdýragarðinum.
Ævintýragarðurinn var stórt leik
svæði fyrir krakka þar sem var að
finna hoppukastala, rennibraut
ir, boltaland, trampólín, risaleik
grind og fleira auk þess sem hægt
var að kaupa veitingar á svæðinu.
Garðurinn var vinsæll vettvangur
til að halda afmælisveislur. Rekstur
inn lýtur hins vegar starfsleyfis og
eftirlitsskyldu og laut eftirliti Heil
brigðiseftirlits Reykjavíkur. Í til
kynningu á Facebooksíðu garðsins
þann 21. janúar var tilkynnt um
varanlega lokun hans þar sem segir
að þrátt fyrir að starfsmenn og
rekstrar aðilar hafi reynt að uppfylla
allar kröfur sem gerðar eru til slíkra
staða hafi heilbrigðiseftirlitið alltaf
komið með nýjar athugasemdir.
„Kom það úr hörð
ustu átt því Reykjavíkur
borg er í samkeppni með
sambærilega afþreyingu
og hreyfingu fyrir börn.
Borginni ber því að gæta
sérstakrar varúðar þar
sem hagsmuna árekstrar
gætu orðið. Með nýjum
kröfum og fjölgun eft
irlitsaðila ákváðu rekstraraðilar að
hætta rekstri.“
Athugasemdir við
öryggi og óþrifnað
DV óskaði eftir og fékk eftirlits
skýrslur Heilbrigðiseftirlits Reykja
víkur og kvartanir sem borist höfðu
stofnuninni vegna Ævintýragarðsins
frá árinu 2014. Þar eru ítrekaðar
athugasemdir, stórar jafnt sem smá
ar, gerðar. Í eftirlitsskýrslum frá
þessu tímabili eru gerðar marg
víslegar athugasemdir við ýmis
öryggisatriði og að þrifum og um
gengni væri ábótavant. Í eldhúsi
staðarins hafi komið fyrir við eftir
lit að útrunnin matvæli fyndust í
eldhúsi, óvarin matvæli í glugga,
hreinsiefni í sömu hillu og glös svo
fátt eitt sé nefnt.
Nokkrar athugasemdir voru þá
gerðar af heilbrigðiseftirlitinu við
ástand, uppsetningu og viðhald
nokkurra tækjanna sem reyndust
ófullnægjandi og í einhverjum til
fellum hugsanlega hættuleg börn
um. Hoppukastalinn var eitt sinn
ekki festur við gólfið og þá var ekki
nógu mikið loft í annað sinn þar sem
það lak of hratt úr honum og því hætt
við að hann legðist ofan á börnin.
Þá höfðu borist þónokkrar kvart
anir frá áhyggjufullum foreldrum
sem gerðu athugasemdir við ör
yggismál, fáliðað starfslið og af
skiptaleysi starfsmanna. Í einu til
fellinu var kvartað undan því að þrjú
barnafmæli væru í gangi á sama
tíma en aðeins einn starfsmaður á
vakt.
Alvarlegasta slysið sem tilkynnt
var um varðaði handleggsbrot
fjögurra ára stúlku í júlí 2014 við
leik sem rekja mátti til ærsla tveggja
drengja við rennibraut.
Ósáttur við smámunasemi
Sigurður Antonsson er stofnandi
Ævintýragarðsins en hann tók við
garðinum á nýjan leik í apríl í fyrra
en þar áður höfðu aðrir séð um
reksturinn. Hann skrifaði tilkynn
inguna um lokunina á Facebook og
í samtali við DV segir hann að það sé
snúið að borgin sé að reka og styrkja
sambærilega starfsemi víða um
borgina á sama tíma og þjarmað hafi
verið að starfsemi Ævintýragarðsins.
„Ég er ekki að segja að það sé
þess vegna sem þeir lokuðu en það
er sérstakt að heilbrigðiseftirlit borg
arinnar, með smásmugulegheitum,
skuli vera að hóta mönnum lokun
um – og hafa gert í mörg ár út af,
meira og minna, smáatriðum, eins
og að losnað hafi upp horn
á teppi. Mér fannst að það
þyrfti að koma því á fram
færi til gestanna sem verið
hafa tryggir og góðir hvern
ig þetta var,“ segir Sigurður
um það sem hann gefur í
skyn í tilkynningunni og
bætir við: „Það er ekki gott
að sami aðilinn sé með eftir
lit hjá öðrum á sama tíma
og borgin er að reka svona
staði. Ef borgin væri að reka
hótel í Reykjavík væri það
þá rétti umsagnaraðili með
öðrum hótelum? Mér finnst
fólk hafa farið fram úr sér.“
En í ljósi þess að heil
brigðiseftirlitið gerði ítrek
aðar athugasemdir í eftirlits
skýrslum sínum í gegnum
tíðina auk þess sem kvartanir
bárust frá gestum, þýða þess
ar ítrekuðu aðfinnslur þá ekki ein
faldlega að menn voru ekki að sinna
þessu nógu vel?
„Ég þekki ekki hvernig það var
áður, en við tókum við þessu í apríl
og það var þvílík vinna lögð í að hafa
þetta allt í lagi og allt þrifið hátt og
lágt þarna inni. Svo voru menn að
bæta allt sem krakkar gætu hugs
anlega rekist á. Það urðu aldrei nein
slys á krökkum þarna, í okkar tíð.
En alltaf komu, eftir sem áður, nýjar
athugasemdir,“ segir Sigurður.
Ævintýrið úti og
gæti endað á eBay
Svo fór að heilbrigðiseftirlitið
boðaði lokun garðsins og í septem
ber síðast liðnum var því fylgt eftir
þar sem tilteknar úrbætur höfðu
ekki verið gerðar. Sigurður kveðst
ekki vita hvað það var nákvæm
lega sem gerði útslagið, sonur hans
hafi séð um samskiptin við eftirlitið.
Sem fyrr segir voru hugmyndir uppi
um að opna staðinn aftur eftir ára
mót í breyttri og smærri mynd en
þau áform hafa verið slegin út af
borðinu. Ævintýrið er úti.
„Rekstur sem ég hef stundað
hefur verið með þeim ágætum að
menn hafa tekið eftir því og hrósað
okkur mikið fyrir, þannig að ef við
getum ekki rekið svona þá held ég að
þetta sé mjög erfitt, þótt ég segi sjálf
ur frá. En ég veit bara að fólkið sem
vann þarna síðustu mánuðina fékk
hrós frá fólki sem var ánægt með
hvernig þetta var.“
Sigurður hefur auglýst tækin til
sölu fyrir fólk sem hefur hugsanlega
áhuga á sambærilegum rekstri í ná
grenni við höfuðborgarsvæðið eða
erlendis. Hann segir að þeim hafi
verið ráðlagt að setja allan búnaðinn
á eBay, þar sem hann yrði væntanlega
seldur á hrakvirði að hans sögn. n
Ævintýragarðinum
endanlega lokað
n Ekki opnaður aftur eftir íhlutun heilbrigðiseftirlitsins n Eigandinn ósáttur
Sigurður Mikael Jónsson
mikael@dv.is
„Mér finnst
fólk hafa
farið fram úr sér
Vinsæl afþreying hjá börnum Leikgrindin í Ævintýragarðinum var engin
smásmíð, en nú hyggjast eigendur selja hana og önnur fjölmargra leiktækja sem
þar var að finna. Mynd FAceBook-SíðA ÆVintýrAgArðSinS
Lok og læs Það var í september í fyrra sem Heilbrigðis-eftirlit Reykjavíkur lokaði Ævintýragarðinum eftir ítrekaðar athugasemdir. Skemmtigarðurinn hefur verið lokaður síðar og verður ekki opnaður aftur. Mynd Sigtryggur Ari
Gleraugnaverslunin Eyesland býður mikið úrval af íþróttagleraugum á
góðu verði – og þú færð frábæra þjónustu. Verið velkomin!
Sportgleraugu
Red Bull sólgleraugu
kr. 14.950,-
Eyesland . Grandagarði 13 og Glæsibæ, 5. hæð . sími 510 0110 . www.eyesland.is