Dagblaðið Vísir - DV - 03.02.2017, Blaðsíða 12
Helgarblað 3.–6. febrúar 201712 Fréttir
„Mikil kúnst
að byggja
snjóhús“
n Þjálfunarferli nýliða í björgunarsveitunum tekur 18
mánuði n Gistu í fimbulkulda í snjóhúsi um liðna helgi
Y
firleitt erum við kölluð út í
brjáluðum aðstæðum,“ segir
Sigrún Ósk Jakobsdóttir,
björgunarsveitarkona í
Hjálparsveit skáta í Kópa-
vogi. „Þegar við höldum af stað með
40–50 manns er mikilvægt að björg-
unarsveitarmennirnir týnist ekki
sjálfir og því verða þeir að vera sjálf-
bjarga,“ segir Sigrún. Til þess að geta
orðið sjálfbjarga í íslenskri náttúru og
hæfir til að bjarga öðrum þurfa nýlið-
ar að ganga í gegnum átján mánaða
þjálfun. Þar læra þeir meðal annars
að koma sér fyrir í snjóhengju þar
sem þeir gista á köldum vetrarnótt-
um. DV skoðaði hvað þarf að gera til
að gerast meðlimur í björgunarsveit-
um landsins.
Seinustu helgi lauk námskeiði í
vetrarfjallamennsku. „Þá gengum við
upp Botnssúlur þar sem þaulvanir
menn kenndu nýliðunum að byggja
snjóhús. Fyrst þurftu nýliðarnir að
finna stað í snjóhengjunni með því
að lesa snjóalögin og meta hvort þar
væri snjóflóðahætta eða ekki. Þegar
búið var að velja stað þurfti að hefjast
handa og grafa sig ofan í snjóinn. Það
er mikil kúnst að gera snjóhús, það
þarf til dæmis að ganga úr skugga um
að rúmið sé hærra en gólfið því það
kemur svo gríðarlegur kuldi upp úr
gólfinu,“ segir Sigrún Ósk.
Námskeið í vetrarfjalla-
mennsku Nýliðar læra að
vera sjálfbjarga í verstu að-
stæðum. MyNd daNíel Þór ÁgústssoN
Nóg af snjó Þegar komið var upp á Botnssúlur þurfti
að finna stað þar sem nægur snjór var til að byggja
snjóhús sem rúmaði sex manns. MyNd daNíel Þór ÁgústssoN
Heiða Vigdís sigfúsdóttir
heida@dv.is
IP Dreifing | www.hrefna.is | hrefna@hrefna.is | sími: 577-3408
Þú færð hákarl og súran hval í öllum
helstu matvöruverslunum.
ÞORRAMATUR