Dagblaðið Vísir - DV - 03.02.2017, Page 26
Helgarblað 3.–6. febrúar 20172 Hádegismatur - Kynningarblað
Fyllilega þess virði að keyra í korter fyrir
Rómantískt
og huggulegt
andrúmsloft
í hádeginu
VON Mathús: Mikil gæði og sanngjarnt verð
V
eitingahúsið VON Mathús
var opnað af þeim Einari
Hjaltasyni og Kristjönu
Þuru í Hafnarfirði árið 2015
og hefur reksturinn gengið
vonum framar. Einar er sannkall-
aður reynslubolti og margrómaður
matreiðslumaður sem útskrifaðist
af Grillinu á Hótel Sögu og kom
að opnun háklassa veitingastað-
ar í London sem hlaut Michelin-
stjörnu. Kristjana hefur einnig verið
viðloðandi veitinga- og hótelgeir-
ann í um tíu ár og svo er hún Hafn-
firðingur í húð og hár. „Við erum nú
rétt rúmlega eins árs og förum bara
stækkandi,“ segir Kristjana.
Allt það ferskasta
Matseðill VON Mathúss á kvöldin
og í hádeginu er alla jafna stuttur
og árstíðabundinn og tekur ávallt
mið af því sem er ferskast hverju
sinni, hvort sem um fisk eða græn-
meti er að ræða. Matseðlinum er svo
breytt á 2–3 mánaða fresti og allt hrá-
efni er í mestu mögulegu gæðum.
Fiskinn kaupir VON Mathús frá Haf-
inu og kjötið frá SS og því er hvort
tveggja ætíð íslenskt hráefni. „Núna
í vetur fást langan og þorskurinn til
dæmis mjög fersk og því er matseð-
illinn okkar í samræmi við það. Á
meðan eru bláskelin, steinbíturinn
og rauðsprettan yfirleitt betri á sumr-
in,“ segir Kristjana. Ásamt sérstökum
barnaréttum á matseðlinum er hægt
að fá alla rétti í skammtastærðum
fyrir börn. Einnig er hægt að fá græn-
metis- eða veganrétti bæði í aðalrétt
eða í samsettum seðlum.
Frábær í hádeginu,
virka daga og um helgar
Um helgar fæst ekta bröns í hádeg-
inu hvort sem um er að ræða hádeg-
isverðarplatta eða fjölskylduhlað-
borð. Að auki er boðið upp á vöfflur
með ýmsu spennandi meðlæti og er
laxavafflan langvinsælust á bröns-
seðilinum, að sögn Kristjönu. Vöfflu-
deigið er vegan og því ættu allir að
geta fundið eitthvað við sitt hæfi.
Einnig er hægt að fá fisk eða kjúkling
dagsins. Helgarbröns væri varla full-
komnaður ef ekki væri boðið upp
á mímósur eða dásamlega súrsætt
límonaði. Helgarbröns er hægt að fá
á laugardögum og sunnudögum frá
11–14 og mælt er með borðapöntun.
Alla þriðjudaga–föstudaga, milli kl.
11.30–14.00 er boðið upp á súpu, sal-
at, ferskan fisk og kjötrétt, sem aug-
lýst er daglega á Facebook-síðunni.
„Við erum mjög virk á samfélagsmið-
lunum okkar og þar er alltaf hægt
að sjá myndir af rétti dagsins,“ segir
Kristjana. Þá er boðið upp á það fers-
kasta sem fæst hverju sinni og tekur
matseðillinn mið af því.
Alls ekki langt í burtu
Sumir telja að Hafnarfjörður sé
mjög langt frá miðborginni og því
ekki besti staðurinn til þess að opna
veitingastað, en Kristjana og Einar
eru því algerlega ósammála. „Það er
ekki nema tíu mínútna akstur, kort-
er í versta falli, frá Vesturbænum og
inn í Hafnarfjörð. Hér eru líka ætíð
næg bílastæði og Hafnarfjörðurinn
er að auki svo fallegur og notaleg-
ur staður. Á VON Mathúsi er fallegt
útsýni yfir smábátahöfnina, sann-
gjarnt verð og mikil gæði,“ segir
Kristjana.
VON Mathús er til húsa að Strand-
götu 75, 220 Hafnarfirði. Opnunar-
tími: Alla daga nema mánudaga frá
11.30–14.00 og 17.30–21.00. Sími:
583-6000 Email: info@vonmathus.
is Nánari upplýsingar má nálgast á
vefsíðu VON Mathúss; vonmathus.
is og á Facebook-síðunni. Einnig
eru þau með Instagram-síðuna VON
Mathús&Bar. n
Laxavafflan ómótstæðilega.
Fallegur salur og
dásamlegt útsýni.
Einar og
Kristjana.
V
eitingastaðurinn Caruso ætti
ekki að hafa farið fram hjá
neinum, enda afar vinsæll og
virtur veitingastaður í höfuð-
borginni. Caruso hefur ver-
ið rekinn af hjónunum José Garcia og
Þrúði Sjöfn í fimmtán ár og hafa þau
ætíð lagt mikið upp úr góðu og fersku
hráefni og ljúffengum mat með Mið-
jarðarhafsívafi. Caruso býður upp á
forrétti og salöt, girnilegar pítsur og
pastarétti, kjöt, fisk og ýmsa sjávarrétti
og ekki má gleyma ljúfum eftirrétt-
um. Andrúmsloftið á Caruso er róm-
antískt og notalegt og á föstudags- og
laugardagskvöldum er gestum boð-
ið upp á ljúfa gítartóna. Á Caruso er
hægt að ganga að
góðum mat, hlý-
legri þjónustu og
huggulegu and-
rúmslofti vísu og
þess vegna koma
gestirnir aftur og
aftur.
Háklassa hádegismatur
„Við höfum alltaf boðið upp á há-
degisverð hér á Caruso og ætíð verið
með góð hádegistilboð. Þá er matur,
bjór, vín, gos og kaffi allt á lækkuðu
verði. Yfirleitt er frekar mikið að gera
hjá okkur í hádeginu og snögg og góð
þjónusta, enda hefur fólk oft tiltek-
inn tímaramma til að komast í há-
degismat úr vinnunni. Við tökum þá
mið af því og höfum valið saman létt-
ari og einfaldari rétti af kvöldseðlin-
um,“ segir Þrúður. Þó svo að um há-
degistilboð sé að ræða þá er alltaf vel
útilátið á diskana og það fer enginn
svangur út af Caruso.
Á hádegisréttaseðlinum eru að
auki tvö tveggja rétta tilboð. Þá er um
að ræða súpu dagsins og fisk dagsins,
eða lambafillet. Svo býðst að bæta
við eftirrétti gegn vægu gjaldi og gera
þetta að þriggja
rétta málsverði.
Í hádeginu fást
flatbökur með
tveimur áleggstegundum og pítsu-
hálfmáni á frábæru verði. Með öll-
um keyptum hádegisréttum fylgir ný-
bakað baguette-brauð sem er bakað
á staðnum og borið fram með hvít-
lauksdressingu.
Sögulegt húsnæði
Nýlega flutti Caruso í endurreist sögu-
legt hús í miðbænum sem var upp-
haflega byggt árið 1801. Stærsti hluti
byggingarinnar, fyrir utan arininn,
eyðilagðist í eldsvoða árið 2007 og má
segja að nýja húsið hafi verið byggt í
kringum arininn sem stóð uppi eftir
eldsvoðann. „Húsið er nokkuð minna
en það sem við vorum í áður, en af-
skaplega huggulegt og notalegt. Það
er hálfpartinn eins og húsnæðið um-
vefji mann og staðsetningin er náttúr-
lega frábær,“ segir Þrúður.
Caruso er til húsa að Austurstræti
22, 101 Reykjavík. Pantaðu borð í
síma: 562-7335 eða í tölvupósti: car-
uso@caruso.is Opnunartími: Mánu-
dagar–fimmtudagar: 11.30–22.30
Föstudaga: 11.30–23.30 Laugardaga:
12.00–23.30 Sunnudaga: 17.00–22.30
Nánari upplýsingar má nálgast á vef-
síðu Caruso; caruso.is og á Facebook-
síðunni. n
Hágæða suðrænn matur á Caruso