Dagblaðið Vísir - DV - 03.02.2017, Síða 27
Helgarblað 3.–6. febrúar 2017 Kynningarblað - Hádegismatur 3
Fyllilega þess virði að keyra í korter fyrir
Háleynileg uppskrift
BK Kjúklingur, ferskur matur fyrir alla í hádeginu
B
K Kjúklingur er sívinsæll á
meðal íslenskra matgæð
inga enda er maturinn alveg
einstaklega góður og ferskur.
Kjötið er af íslenskum fugl
um sem aldir eru hér á landi og kem
ur allt frá Matfugli. BK Kjúklingur
kaupir eingöngu nýslátraðan
kjúkling, aldrei frosinn og leggur þar
að auki mikið upp úr ferskleika hrá
efnisins. Hjá BK Kjúklingi starfa í
kringum 15 manns í fullri vinnu og
í hlutastarfi. „Því náum við að anna
þeirri gríðarlegu aðsókn sem er í
kjúklinginn okkar,“ segir eigandinn,
Haraldur Örn Hannesson, eða Halli
eins og hann er yfirleitt kallaður.
Hádegismaturinn
„Það er alltaf nóg að gera hjá okkur í
hádeginu líkt og á kvöldin. Í hádeg
inu keyrum við mest á réttum sem
við köllum Einstaklingstilboð, Hollt
er gott og svo réttum með Mexíkó
ívafi. Við fáum bæði töluvert af við
skiptavinum sem borða á staðnum
og svo koma hingað einstaklingar
og fyrirtæki sem panta mat til að
taka með. Einnig erum við með
heimsendingarþjónustu í gegnum
aha.is,“ segir Halli. Fyrir utan mat
seðilinn býður BK Kjúklingur upp
á sérmatseðla fyrir íþróttahópa,
skólaferðahópa og aðra stærri hópa.
Þess má geta að BK Kjúklingur rekur
einnig frábæra veislu og grillþjón
ustu samhliða veitingastaðnum,
sem hægt er að panta fyrir hvers kyns
veislur, bæði úti og inni. BK Kjúkling
ur er með mat fyrir alla.
Einstaklingstilboð
Þar á meðal eru ýmsar girnilegar
máltíðir eins og hálfur eða 1/4
kjúklingur, kjúklingabitar og ýmsar
máltíðir í brauði svo sem borgarar,
pítur og samlokur.
Mexíkóskir réttir
Við bjóðum upp á nokkra rétti sem
eiga uppruna sinn í Mexíkó og eru
þeir réttir gríðarlega vinsælir. Þar
bjóðum við upp á Burritos, Quese
dillas sem við fyllum með einhverju
af eftirtöldu: Nautakjöti, kjúklingi
og/eða grænmeti. Þessir réttir
innihalda allir ferskt salat, hrís
grjón, sýrðan rjóma, guacamole
og sódavatn. Einnig erum við
með supernachos og nachos með
ostasósu.
Hollt er gott
BK Kjúklingur er með þónokkrar
hollar og girnilegar kjúklinga
máltíðir á matseðlinum. Þar má
nefna Tex Mex kjúklingamáltíð
sem samanstendur af úrbeinuðum
kjúklingalærum, brúnum hrísgrjón
um, grilluðum tómati, salati og sós
um. Öllum máltíðum sem nefnd
ar eru „Hollt er gott“ fylgir ískaldur
toppur að eigin vali.
Háleynileg uppskrift
BK Kjúklingur var stofnað árið 1994
og fyrir 16 árum tók Halli við rekstri
staðarins. Hann er jafnframt þriðji
eigandi staðarins. Aðspurður um
hvað BK stendur fyrir segir hann að
um sé að ræða tilbúið vörumerki
og því miður viti hann ekki hvað
an hugmyndin að nafninu kom. En
BK Kjúklingur stendur þó fyrir sínu
með háleynilegri uppskrift að góm
sætri kjúklingamaríneringu sem
hefur fylgt staðnum frá upphafi og
heldur betur slegið í gegn hjá ís
lenskum matgæðingum.
BK Kjúklingur er að Grensásvegi
5, 108 Reykjavík. Boðið er upp á
heimsendingarþjónustu frá 11–22
alla daga. Hægt er að panta mat í
síma: 5888585 eða í gegnum vef
síðuna aha.is. Nánari upplýsingar
má nálgast á vefsíðu staðarins
bkkjuklingur.is og á Facebooksíð
unni. n
Hollt er gott Hálfur kjúklingur með sósu,
grjónum, maís og salati. Myndir Sigtryggur Ari
Einstaklingstilboð Kjúklingasamloka.
Hollt er gott Kjúklingabringa með hrísgrjónum, sósu og salati.
Einstaklingstilboð Kjúklingabitar með frönskum, hrásalati og sósu.
Hollt er gott
Girnilegt kjúklingasalat
með fetaosti og ólífum.