Dagblaðið Vísir - DV - 03.02.2017, Blaðsíða 28
Helgarblað 3.–6. febrúar 20174 Hádegismatur - Kynningarblað
Hágæðahádegismatur
úr Eldhúsið - Restaurant
n Gistihúsið – Lake Hotel Egilsstaðir n Yfir hundrað ára gamalt hótel við Lagarfljót
Í
Gistihúsið – Lake Hotel Egils-
staðir er starfræktur háklassa
veitingastaður þar sem mat-
reiðslumeistarinn Kolbrún
Hólm, ásamt fyrsta flokks mat-
reiðslumönnum, ber á borð dýrindis
lystisemdir sem gleðja bæði hjarta
og bragðlauka matargesta. Staður-
inn nefnist Eldhúsið - Restaurant og
er alla jafna mikið að gera á kvöldin
en einnig í hádeginu. Undanfarin
ár hafa Íslendingar í auknum mæli
uppgötvað hversu notalegt það er
að leyfa sér smávegis í hádeginu en
þá er oft hægt að fá matinn á tölu-
vert betra verði en á kvöldin. „Eld-
húsið - Restaurant leggur upp með
að framreiða mat úr staðbundnu
og fersku hráefni sem reynt er eftir
fremsta megni að nálgast úr héraði.
Allt okkar nautakjöt kemur af Egils-
staðabúinu og skyrið og fetaostur-
inn einnig,“ segir Hulda Elisabeth
Daníelsdóttir, eigandi Gistihúsið –
Lake Hotel.
Léttari réttir í hádeginu
Í hádeginu býður Eldhúsið -
Restaurant upp á nokkuð léttari
rétti en á kvöldin, og eins og geng-
ur og gerist með hádegisrétti, þá eru
þeir á afar hagstæðu verði. Matseðla
má nálgast á vefsíðu Gistihússins;
lakehotel.is. Matreiðslumennirnir
eru þeir sömu og matreiða mat á
kvöldin og því er ætíð hægt að ganga
að því vísu að maturinn sé fyrsta
flokks. Hádegisverður er framreidd-
ur alla daga frá kl. 11.30–17.00.
Sögufrægt hús – byggt til að
bjóða upp á gistingu
Sumarið 1998 opnuðu hjónin Hulda
og Gunnlaugur Jónasson Gistihúsið
sem hafði staðið autt um árabil. Í
dag reka hjónin hótel í húsinu og
nefnist það Gistihúsið – Lake Hotel
Egilsstaðir, sem hefur verið hótel
síðan árið 2000. „Hótelið byggir á
aldargömlum grunni og við vildum
nota gamla nafnið, Gistihúsið, til
þess að vísa í sögu hússins. En hér
hefur löngum verið starfrækt gisti-
hús. Húsið var reist fyrir meira en
öld og síðan þá hefur reglulega
verið byggt við. Í október árið 2013
tóku hjónin Hulda og Gunnlaugur
skóflustungu að nýrri 1.500 fermetra
byggingu sunnan við gamla húsið
og tóku á móti gestum í nýrri gesta-
móttöku og gistiálmu sumarið 2014.
Í nýjasta hluta hótelsins er að finna
fjögurra hæða hús með 32 herbergj-
um. Fjögur þeirra eru lúxusherbergi
og sex eru hönnuð sérstaklega með
þarfir fatlaðra í huga. Í dag telur hót-
elið 50 herbergi alls. Á neðri hæð
móttökuhússins er heilsulindin
Baðhúsið – Spa, með heitri smálaug,
köldum potti, sánu og hvíldarað-
stöðu með útsýn yfir Lagarfljót. Að
auki eru í nýbyggingunni þvottahús,
starfsmannaaðstaða, snyrtingar,
geymslu- og skrifstofurými.
Eldhúsið og Baðhúsið
Sumarið 1999 opnuðu hjónakornin
veitingaþjónustu á Gistihúsinu ein-
göngu fyrir hópa og stuttu síðar fyrir
almenning einnig. Árið 2014, þegar
nýbyggingin var klár, nefndu þau
veitingastaðinn Eldhúsið - Restaur-
ant. „Veitingastaðurinn hefur verið
rekinn hér í um 17 ár og við höfum
boðið upp á hádegisverð síðustu sex
ár. Það er yfirleitt mikið að gera hjá
okkur á kvöldin og þá sérstaklega á
ferðamannatímanum. Hér á hótel-
inu erum við með notalega heilsu-
lind, Baðhúsið - Spa. Um helgar er
til dæmis mjög vinsælt fyrir bæði
heimamenn og ferðamenn að gera
sér glaðan dag í hádegismat á Eld-
húsinu - Restaurant og leyfa þreytu
liðinnar viku að líða úr kroppnum í
Baðhúsið - Spa. Á veturna leigjum
við líka út gönguskíði og eru göngu-
skíðabrautir lagðar kringum hótelið
þegar nægur snjór er. Þá er sérlega
notalegt að enda góða morgun-
skíðagöngu í hádegismat eða kaffi
hjá okkur,“ segir Hulda. n
Eldhúsið - Restaurant er til húsa
í Gistihúsið – Lake Hotel Egilsstað-
ir, við Þjóðveg 1, Egilsstaðir 1–2, 700
Egilsstöðum. Veitingastaðurinn er
opinn alla daga, allan ársins hring.
Sími: 471-1114. Email:hotel@gisti-
husid.is. Nánari upplýsingar má nálg-
ast á vefsíðu Gistihússins; lakehotel.is.