Dagblaðið Vísir - DV - 03.02.2017, Page 29

Dagblaðið Vísir - DV - 03.02.2017, Page 29
Helgarblað 3.–6. febrúar 2017 Kynningarblað - Hádegismatur 5 Geirabakarí í Borgarnesi kynnir: G eirabakarí dregur nafn sitt af stofnanda og núverandi eiganda þess, Sigurgeiri Óskari Erlendssyni. Hann en enginn nýgræðingur í faginu enda lærði hann bakara- iðn á Siglufirði aðeins 16 ára gam- all hjá Ingimari „Láka“ Þorlákssyni í Kaupfélagsbakaríinu. Frá árinu 2007 hefur öll starfsemi Geirabak- arís farið fram í fallegu og boga- dregnu 300 fermetra húsnæði að Digranesgötu í Borgarnesi. Þar er boðið upp einstakt úrval af brauð- meti, kökum, bakkelsi og heitum mat. Samhliða hefðbundinni af- greiðslu, er brauðmeti keyrt út alla virka daga til nokkurra fyrirtækja á svæðinu. Geirabakarí sér ennig um veislur og býður þá upp á snittur, súpur, brauðtertur, marsípantertur og ýmislegt gott. „Síðasta vor breyttum við saln- um hjá okkur, endurnýjuðum borð, hillur og stóla. Nú er orðið virkilega notalegt og flott hjá okkur. Við erum í augnablikinu með sæti fyrir um 70 manns en ætlum að fjölga borð- um og stólum,“ segir Jóhanna Erla Jónsdóttir, oftast kölluð Erla. Hún er matráður og smurbrauðssnillingur Geirabakarís. Crepes og súpur og pítsur og boost og … Í Geirabakaríi er alltaf mikið lagt upp úr hádegismatnum enda er það án efa mikilvægasta máltíð dags- ins. „Hér fæst sko ýmislegt í svanga maga. Í hádeginu á fimmtudögum erum við til dæmis með crepes- pönnukökur sem fást ýmist með skinku- eða rækjufyllingu, grjónum og grænmeti. Einnig erum við með dýrindis súrdeigspítsur með pestó og áleggi. Við erum alltaf að prófa nýjar samsetningar. Ein er til dæmis með pestó og pepperóní. Nýjasta samsetningin hjá okkur er ostapítsa með pestó og úrvali osta. Að sjálf- sögðu gerum við pestóið sjálf eins og brauðsalöt sem renna út eins og heitar lummur. Í hverju hádegi erum við með heita súpu og á fimmtudög- um eru matarmeiri súpur eins og kjötsúpur eða sjávarréttasúpur. Og fyrsta fimmtudag í hverjum mánuði bjóðum við upp á alíslenska brauð- súpu, þessa gömlu góðu sem margir þekkja og elska. Um er að ræða sér- lega þjóðlega rúgbrauðssúpu með rjóma og er hún sívinsæl. Svo erum við með matarmikið smurbrauð ýmist með kjúklingi og silungi svo eitthvað sé nefnt. Eitt smurbrauðið er alveg einstaklega staðbundið og köllum við það Kelabita. Þetta er þá brauð- biti úr hveitilausu brauði, með sér- stakri kryddsósu, eggi og reyktum silungi úr Hvítá sem við kaupum ofan af Ferjukoti, þar sem Þorkell Fjeldsted heitinn bjó. Því heitir það Kelabiti,“ segir Erla. Geirabakarí býður einnig upp á þrjár tegundir af Boost-drykkjum fyrir þá sem vilja taka meistaramánuð hátíðlegan. Þá er hægt að velja á milli jarðarberja-, mangó- eða spínatboosts. Ýmislegt sætt og gott „Ekki má gleyma öllu því sætmeti sem við bjóðum upp á hér í bakar- íinu. Þá er hægt að fá hefðbundið bakkelsi, ljúffengar kökur og tertur. Einnig erum við með hráfæðis- köku, annars vegar með mokka- bragði og hins vegar með banana. Einnig seljum við danskar gæða- vörur fyrir matgæðinga. Um er að ræða hágæða tómatsósur, olíur, sultur og chutney, súkkulaðihúð- aðar möndlur, skurðarbretti, viska- stykki og margt fleira. Vörurnar eru frá Nicolas Vahé og algerar háklassa vörur. Kaffið okkar kemur svo frá Te & Kaffi og erum við með okkar eigin kaffidrykk sem við köllum Geira- kaffi. Drykkurinn samanstendur af espresso-skoti, dásamlegu pipar- kökusírópi, Turkish pepper og flóaðri mjólk,“ segir Erla. n Geirabakarí er stað- sett að Digranesgötu 6, 310 Borgarnesi. Opið er alla daga vik- unnar í vetur. Mánu- daga til fimmtu- daga frá 07.00–17.30. Föstudaga frá 07.00– 18.00. Laugardaga og sunnudaga frá 08.30–16.30. Sími: 437-1920 og 437- 2020. Email: pantanir@geirabakari. is. Nánari upplýsingar má nálgast á vefsíðu Geirabakarís, geirabakari.is og á Facebook-síðunni. Fjölbreyttur og ljúffengur hádegismatur Nicolas Vahé Ljúffeng hrá- fæðiskaka. Dýrindis brauðtertur. Crepes með skinku fyllingu. Kelabiti. Gómsætar súr- deigspítsur.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.