Dagblaðið Vísir - DV - 03.02.2017, Síða 29
Helgarblað 3.–6. febrúar 2017 Kynningarblað - Hádegismatur 5
Geirabakarí í Borgarnesi kynnir:
G
eirabakarí dregur nafn sitt
af stofnanda og núverandi
eiganda þess, Sigurgeiri
Óskari Erlendssyni. Hann
en enginn nýgræðingur
í faginu enda lærði hann bakara-
iðn á Siglufirði aðeins 16 ára gam-
all hjá Ingimari „Láka“ Þorlákssyni
í Kaupfélagsbakaríinu. Frá árinu
2007 hefur öll starfsemi Geirabak-
arís farið fram í fallegu og boga-
dregnu 300 fermetra húsnæði að
Digranesgötu í Borgarnesi. Þar er
boðið upp einstakt úrval af brauð-
meti, kökum, bakkelsi og heitum
mat. Samhliða hefðbundinni af-
greiðslu, er brauðmeti keyrt út alla
virka daga til nokkurra fyrirtækja á
svæðinu. Geirabakarí sér ennig um
veislur og býður þá upp á snittur,
súpur, brauðtertur, marsípantertur
og ýmislegt gott.
„Síðasta vor breyttum við saln-
um hjá okkur, endurnýjuðum borð,
hillur og stóla. Nú er orðið virkilega
notalegt og flott hjá okkur. Við erum
í augnablikinu með sæti fyrir um
70 manns en ætlum að fjölga borð-
um og stólum,“ segir Jóhanna Erla
Jónsdóttir, oftast kölluð Erla. Hún er
matráður og smurbrauðssnillingur
Geirabakarís.
Crepes og súpur og pítsur og
boost og …
Í Geirabakaríi er alltaf mikið lagt
upp úr hádegismatnum enda er það
án efa mikilvægasta máltíð dags-
ins. „Hér fæst sko ýmislegt í svanga
maga. Í hádeginu á fimmtudögum
erum við til dæmis með crepes-
pönnukökur sem fást ýmist með
skinku- eða rækjufyllingu, grjónum
og grænmeti. Einnig erum við með
dýrindis súrdeigspítsur með pestó
og áleggi. Við erum alltaf að prófa
nýjar samsetningar. Ein er til dæmis
með pestó og pepperóní. Nýjasta
samsetningin hjá okkur er ostapítsa
með pestó og úrvali osta. Að sjálf-
sögðu gerum við pestóið sjálf eins
og brauðsalöt sem renna út eins og
heitar lummur. Í hverju hádegi erum
við með heita súpu og á fimmtudög-
um eru matarmeiri súpur eins og
kjötsúpur eða sjávarréttasúpur. Og
fyrsta fimmtudag í hverjum mánuði
bjóðum við upp á alíslenska brauð-
súpu, þessa gömlu góðu sem margir
þekkja og elska. Um er að ræða sér-
lega þjóðlega rúgbrauðssúpu með
rjóma og er hún sívinsæl. Svo erum
við með matarmikið smurbrauð
ýmist með kjúklingi og silungi svo
eitthvað sé nefnt.
Eitt smurbrauðið er alveg
einstaklega staðbundið og köllum
við það Kelabita. Þetta er þá brauð-
biti úr hveitilausu brauði, með sér-
stakri kryddsósu, eggi og reyktum
silungi úr Hvítá sem við kaupum
ofan af Ferjukoti, þar sem Þorkell
Fjeldsted heitinn bjó. Því heitir það
Kelabiti,“ segir Erla. Geirabakarí
býður einnig upp á þrjár tegundir
af Boost-drykkjum fyrir þá sem vilja
taka meistaramánuð hátíðlegan. Þá
er hægt að velja á milli jarðarberja-,
mangó- eða spínatboosts.
Ýmislegt sætt og gott
„Ekki má gleyma öllu því sætmeti
sem við bjóðum upp á hér í bakar-
íinu. Þá er hægt að fá hefðbundið
bakkelsi, ljúffengar kökur og tertur.
Einnig erum við með hráfæðis-
köku, annars vegar með mokka-
bragði og hins vegar með banana.
Einnig seljum við danskar gæða-
vörur fyrir matgæðinga. Um er að
ræða hágæða tómatsósur, olíur,
sultur og chutney, súkkulaðihúð-
aðar möndlur, skurðarbretti, viska-
stykki og margt fleira. Vörurnar eru
frá Nicolas Vahé og algerar háklassa
vörur. Kaffið okkar kemur svo frá Te
& Kaffi og erum við með okkar eigin
kaffidrykk sem við köllum Geira-
kaffi. Drykkurinn samanstendur
af espresso-skoti,
dásamlegu pipar-
kökusírópi, Turkish
pepper og flóaðri
mjólk,“ segir Erla. n
Geirabakarí er stað-
sett að Digranesgötu
6, 310 Borgarnesi.
Opið er alla daga vik-
unnar í vetur. Mánu-
daga til fimmtu-
daga frá 07.00–17.30.
Föstudaga frá 07.00–
18.00. Laugardaga og sunnudaga frá
08.30–16.30. Sími: 437-1920 og 437-
2020. Email: pantanir@geirabakari.
is. Nánari upplýsingar má nálgast á
vefsíðu Geirabakarís, geirabakari.is
og á Facebook-síðunni.
Fjölbreyttur
og ljúffengur
hádegismatur
Nicolas Vahé
Ljúffeng hrá-
fæðiskaka.
Dýrindis brauðtertur.
Crepes með
skinku fyllingu.
Kelabiti.
Gómsætar súr-
deigspítsur.