Dagblaðið Vísir - DV - 03.02.2017, Qupperneq 30
Helgarblað 3.–6. febrúar 20176 Hádegismatur - Kynningarblað
Staðgóður og hollur
heimilismatur í hádeginu
Höfðakaffi stendur fyrir sínu
H
öfðakaffi hefur til
fjölda ára boðið upp
á staðgóðan og nær
ingarríkan heimilis
mat í hádeginu. Í
hverri viku er birtur nýr mat
seðill á vefsíðu Höfðakaffis og
á hverjum degi er hægt velja á
milli súpu í forrétt og kjöt eða
fiskréttar í aðalrétt. „Við erum
ýmist að senda mat í bökkum
til viðskiptavina og svo erum
við með matstofu hér á staðn
um,“ segir Ragnar Sverrisson,
annar eigenda Höfðakaffis.
Bakkamat með súpu og aðal
rétti er hægt panta í síma 587
6075 á milli kl. 8.15–10.15.
Girnilegur matseðill
„Auk aðalréttanna tveggja erum
við með fimm fasta sérrétti sem
eru alltaf á matseðlinum og við
sendum í bökkum. Í matsalnum er
þá boðið upp á einn rétt til viðbót
ar sem við veljum hvern dag. Sér
réttaseðillinn hljómar þá svona:
Grillað kjúklingalæri með meðlæti,
grænmetisbakki með pasta, BBQ
hamborgari, samloka eða pítsa og
svo djúpsteiktur fiskur með öllu
tilheyrandi. Að auki sjáum við um
mötuneyti fyrir fyrirtæki. Um er að
ræða svokallaðan kantínumat, þar
sem skammtað er á staðnum,“ segir
Ragnar.
Staður með skemmtilega sögu
Starfsemi Höfðakaffis byggist aðal
lega á því að selja hádegismat og
þjónusta önnur fyrirtæki með há
degismat. Því er eingöngu opið í
hádeginu. Höfðakaffi var upphaf
lega stofnað árið 1978 af Sigursæli
Magnússyni, en hann er betur
þekktur sem Sæli í Sælakaffi. Þá
var Ártún í sama húsi, en Ártún var
eitt sinn vinsæll skemmtistaður þar
sem dansaðir voru gömlu dansarn
ir. Ragnar og Oddný Guðnadóttir
keyptu Höfðakaffi árið 1990 og hafa
rekið staðinn síðan. „Eftir að við
tókum við hefur starfsemin bók
staflega farið á flug. Við byrjuðum
á að afgreiða um hundrað matar
pantanir á dag og erum nú kom
in með upp undir átta hundruð á
dag,“ segir Ragnar.
Stöðugur rekstur og traust
starfsfólk
Höfðakaffi hefur verið í stöðugum
rekstri og staðið fyrir sínu öll þessi
ár. Alltaf hefur gengið mjög vel að
halda bæði starfsfólki og fastakúnn
um. „Hér starfa um átta manns.
Okkur hefur haldist vel á fólki og er
um að ræða frábært og traust starfs
fólk sem hefur verið lengi hjá okk
ur. Hún Þóra Gunnarsdóttir hefur
til dæmis verið hjá okkur í 27 ár, allt
frá upphafi og verður hér líklega
þar til hún hættir að vinna. Einnig
erum við með marga fastakúnna og
fyrirtæki sem koma hingað oft eða
panta mat hjá mér reglulega,“ segir
Ragnar.
Höfðakaffi er staðsett að Vagn-
höfða 11, 110 Reykjavík. Opið er
í veitingasalnum kl: 11.30–13.30.
Sími: 587-6075. Email: hofdakaffi@
internet.is. Nánari upplýsingar
má nálgast á vefsíðu Höfðakaffis;
hofda kaffi.is. n
Snillingarnir Lúðvík Þorvaldsson yfirkokkur og eigandinn, Ragnar Sverrisson. Myndir SiGtryGGur Ari