Dagblaðið Vísir - DV - 03.02.2017, Side 36
Helgarblað 3.–6. febrúar 201728 Sport
Glæsibæ • www.sportlif.is
PróteinPönnukökur
Próteinís Próteinbúðingur
Bölvun,
Knattspyrnumennirnir og
knattspyrnuliðin sem voru
undir álögum – eða þannig
álög eða
óheppni
Skoraði og
liðin féllu
Ryoichi Maeda er mikill marka-
hrókur. Þessi 35 ára framherji
spilaði með Jubilo Iwata í Japan á
árunum 2000 til 2014 en á árunum
2007 til 2012 gerðist nokkuð sem vakti
athygli margra. Á hverju tímabili féll
það lið um deild sem Maeda skoraði
sitt fyrsta mark gegn. Þar á meðal var
Gamba Osaka sem hafði endað í einu
af efstu þremur sætunum síðustu
þrjár leiktíðir á undan. Bölvuninni
virðist hafa verið aflétt árið 2013 þegar
Urawa Red Diamonds endaði í 6. sæti
deildarinnar. Sama tímabil féll hins
vegar Jubilo Iwata, lið Maeda.
H
játrú hefur fylgt mannkyninu í gegnum aldirnar og þeir sem
hafa stundað íþróttir kannast eflaust við að fylgja
ákveðnum hefðum áður en farið er út á völl. Þetta
gera íþróttamenn í þeirri von að allt fari ekki
fjandans til þegar í leik er komið. FourFourTwo-
tímaritið tók á dögunum saman skemmtilegan fróð-
leik um ýmsa knattspyrnumenn og knattspyrnulið
sem einhverjir kynnu að halda að séu eða hafi
verið undir einhvers konar álögum. Hafa ber
í huga að úttektin er til gamans gerð
og ekki byggð á traustum grunni
vísindalegra staðreynda. n
einar@dv.is
Bale-
bölvunin
Allir sem fylgjast með fótbolta vita að
Gareth Bale er einn besti leikmaður heimsfótboltans
þegar hann er í stuði. Bale, sem gekk til liðs við Tottenham frá
Southampton árið 2007, byrjaði ekki beint vel hjá Tottenham. Hann var
enda ungur og óreyndur á þeim tíma. En það setti hroll að stuðningsmönnum
Spurs þegar þeir ráku augun í leikskýrsluna og sáu að Bale var í hópnum. Ástæðan var einföld:
Í fyrstu 24 leikjum Bale hjá Tottenham var hann aldrei í sigurliði, ekki einu sinni. Slúðrað hefur
verið um að Harry Redknapp, þáverandi stjóri Tottenham, hafi viljað losna við Bale meðal
annars af þessari ástæðu en hann hefur neitað því og sagst hafa haft trú á sínum manni. Það
er líka eins gott. Bale var kjörinn leikmaður ársins á Englandi árið 2011 og 2013 og varð dýrasti
knattspyrnumaður heims árið 2013 þegar Real Madrid festi kaup á honum.
„verða ekki evrópu-
meistarar í 100 ár“
Béla Guttmann þótti býsna snjall knattspyrnustjóri á sínum tíma enda
nældi hann í fimm titla á þeim þremur árum sem hann stýrði Benfica í
Portúgal. Eftir að hann gerði liðið að Evrópumeisturum árið 1962, eftir
glæsilegan sigur á Real Madrid, bað hann um launahækkun. Því miður
varð Guttmann ekki að ósk sinni og brást hann ókvæða við í kjölfarið.
„Benfica verður ekki Evrópumeistari næstu hundrað árin,“ sagði hann.
Og síðan þá hefur Benfica ekki unnið neinn stóran titil í Evrópukeppni
þótt liðið hafi átta sinnum komist í úrslit, nú síðast í Evrópudeildinni
árin 2013 og 2014 þar sem Benfica tapaði í bæði skiptin.
algjört
miðlungslið
Coventry City nýtur þess
vafasama heiðurs að hafa
ekki komist í hóp sex efstu
liða 46 tímabil í röð í ensku
deildakeppninni. Með öðrum
orðum hefur Coventry alltaf, í
tæpa hálfa öld, endað í 7. sæti
eða neðar. Á þessum 46 árum
hefur liðið þrisvar endað fyrir
ofan 10. sætið; 7. sæti árið 1978,
7. sæti árið 1989 og 8. sæti árið
2006. Liðið leikur nú í þriðju
efstu deild Englands eftir að
hafa spilað í úrvalsdeildinni
fyrstu árin eftir stofnun
deildarinnar. Nær engar líkur
eru á að Coventry nái að snúa
þessu gengi til betri vegar á
næstunni. Liðið situr nefnilega
í 24. sæti af 24 liðum í League
One. hinn ótrú-
legi andrés
Andrés Iniesta er einn besti leikmað-
ur sinnar kynslóðar. Hann hefur
skorað nokkur mikilvæg mörk
á ferli sínum, til dæmis
sigurmarkið í úrslitaleik
HM 2010 þar sem Spán-
verjar lögðu Hollendinga.
Iniesta hefur skorað 54
mörk fyrir Barcelona og
13 fyrir spænska landsliðið,
eða 67 í það heila. Athygli
vekur að Iniesta hefur aldrei
skorað í tapleik, hvorki með
Barcelona né landsliðinu.
Síðast þegar hann skoraði
í tapleik var árið 2003 með
B-liði Barcelona. Fleiri
leikmenn státa af viðlíka
árangri og Iniesta. Til
dæmis James Milner
sem hefur aldrei tapað
úrvalsdeildarleik
þegar hann
hefur komist á
blað. Milner
hefur skorað
46 mörk í
deildinni með
liðum eins og
Liverpool,
Newcastle,
Aston
Villa.