Dagblaðið Vísir - DV - 03.02.2017, Page 45
Helgarblað 3.–6. febrúar 2017
www.avaxtabillinn.is
avaxtabillinn@avaxtabillinn.is • 517 0110
Gómsætir veislubakkar
sem lífga upp á allar uppákomur
Aðeins
á viku
á starfsmann
Ávextir í áskrift
kosta um 550 kr.
á mann á viku og
fyrirhöfn fyrirtækisins
er engin.
Fólk 37
Hvar eru þessar barnastjörnur í dag?
Syngur með ítalskri
metalhljómsveit
Katla María Hausmann var tíu ára
gömul þegar hún sendi frá sér sína
fyrstu hljómplötu þar sem hún
söng spænsk barnalög. Næst kom
vinsæl jólaplata, Ég fæ jólagjöf,
og þar á eftir fylgdi platan Litli
Mexíkaninn, og loks Katla og Pálmi
þar sem Katla söng ásamt Pálma
Gunnarssyni. Auk þess söng Katla
inn á fjölda safnplatna.
Lítið heyrðist í Kötlu eftir að
barnastjörnuferlinum lauk en
hún hefur þó ekki sagt skilið við
tónlistina og meðal annars sungið
með ítölsku metalhljómsveitinn
Lunainfea. Þá hefur hún tekið þátt í
tveimur undankeppnum Eurovision.
„Af okkur er allt gott að frétta. Við búum á
Costa del Sol á Torremolinos og höfum búið
hér síðan tökum á myndinni lauk. Við eigum
báðir börn með spænskum konum og líkar
lífið vel hér,“ segir Vilhelm Jósefs Sævarsson
en hann og bróðir hans, Páll Jósefs Sæv-
arsson urðu landsþekktir árið 1981 þegar
þeir léku hina uppátækjasömu Jón Odd og
Jón Bjarna í samnefndri kvikmynd Þráins
Bertelssonar.
Í samtali við Morgunblaðið árið 2011
greindi Vilhelm jafnframt frá því að þeir
bræður hefðu notið talsverðar hylli á meðal
stúlkna eftir að myndin kom út, og það hafi
þeim ekki fundist leiðinlegt.
„Stelpurnar létu okkur ekki í friði eftir að
myndin var frumsýnd. Einu sinni komum
við fjórir saman, ég, bróðir minn og tveir
vinir okkar, á samkomu í Tónabæ. Þá kallaði
plötusnúðurinn: „Kvikmyndastjörnurnar
eru komnar!“ Og stelpurnar hópuðust svo
um okkur að við hlupum burt og læstum
okkur inni á klósetti. Þegar við sluppum út
yfirgáfum við staðinn. Okkur fannst þetta
ógurlega gaman.“
Bræðurnir fluttust seinna til Costa del Sol
ásamt móður sinni og hefur hvorugur komið
nálægt leiklistinni síðan. Vilhelm segir að
vissulega hafi það komið til greina en ástríð-
an hafi þó aldrei verið nógu sterk. Hann segir
þá bræður lítið hafa fundið fyrir vinsældum
myndarinnar í seinni tíð. „Einhverjir hafa jú
spurt hvort við séum ekki strákarnir sem
léku Jón Odd og Jón Bjarna. En lítið meira.“
Leiddist ekki hyllin
Örvar Jens Arnarsson var tíu ára gamall
þegar hann fór með hlutverk Tómasar
í kvikmynd Friðrik Þórs Friðrikssonar,
Bíódagar. Myndin segir frá tímabili í lífi tíu
ára gamals drengs á sjöunda áratugnum
í Reykjavík og á sér fastan sess í hugum
margra Íslendinga. Það þarf ekki að
koma á óvart þar sem ófáir eiga ljúfar
minningar um Kanasjónvarpið, Roy
Rogers og Spur-kóla.
„Leiklistarferlinum lauk eftir þetta.
Hún náði mér aldrei, þessi klassíska
leiklistarbaktería. En í dag gera vinir mínir
stundum góðlátlegt grín að mér og finnst
gaman að rifja myndina upp,“ segir Örvar
sem er menntaður viðskiptafræðingur og
býr í Vínarborg þar sem hann starfar hjá
Alþjóða kjarnorkumálastofnuninni.
Hann segir það hafa verið heilmikla
lífsreynslu fyrir 11 ára strák að fá að vera
partur af kvikmyndateymi og upplifa
þann iðnað. Það hafi þó truflað hann lítið
að vera í sviðsljósinu á sínum tíma. „Þetta
var til staðar og myndin var á tímabili úti
um allt en ég var bara áfram 11 ára pjakkur
sem var á fullu á skíðum og í fótbolta og
var mjög lítið að spá í þetta.“
Örvar tekur undir það að myndin hafi
óneitanlega skapað sér sess í huga margra
Íslendinga, enda bregður þar fyrir ódauð-
legum persónum og eftirminni legum frös-
um sem lifað hafa með þjóðinni. „Mér er
sérstaklega minnisstætt að heyra krakka
syngja í sífellu laglínuna: „Rin, tin, tinn,
reka hann … tja svo er endirinn svolítið
dónalegur,“ segir hann hlæjandi.
Spáði lítið í frægðina