Dagblaðið Vísir - DV - 03.02.2017, Blaðsíða 56
Helgarblað 3.–6. febrúar 2017
9. tölublað 107. árgangur Leiðbeinandi verð 785 kr. dv.is/frettaskot askrift@dv.is Sími 512 7000
Fjallabíll?
Vertu með
hraðasta
farsímanet
á Íslandi
Fjallið gaf
glæsikerru
n Kraftajötunninn Hafþór Júlíus
Björnsson hefur heldur betur verið
að gera það gott undanfarið. Eins
og flestir vita skaust hann upp á
stjörnuhimininn sem Fjallið í Game
of Thrones-þáttunum en hefur
einnig verið að leika í auglýsingum,
nú síðast fyrir Sodastream.
Nú er Hafþór farinn að njóta
ávaxta erfiðisins ef marka má Face-
book-færslu hans á dögunum. Þar
gefur að líta mynd af splunkunýjum
Range Rove Evoque-jeppa sem
hann var að festa kaup á. Einn að-
dáandi bendir á að bíllinn sé nú allt
of lítill fyrir Hafþór sem svarar því til
að þessi sé gjöf handa kærustunni,
sjálfur ætli hann að fá sér annan
stærri. Listaverð á svona glæsi-
kerru er samkvæmt verðskrá BL frá
6,4 upp í 8,6 milljón-
ir króna og því ljóst
að Hafþór vann
kærastakeppnina
í janúarmánuði.
Enginn svarar
Vilhjálmi
n „Ég var með missed call frá
Vilhjálmi H. Vilhjálmssyni og
ég er búin að vera taugahrúga,“
segir lögfræðingurinn Brynhild-
ur Bolladóttir í færslu á Twitter.
Brynhildur segist hafa hafist
handa við að skoða allt sem hún
hafi skrifað á netið enda Vil-
hjálmur þekktur fyrir að lögsækja
einstaklinga vegna umdeildra
ummæla. Áhyggjur hennar
reyndust þó óþarfar því þegar
hún hringdi til baka kom í ljós
að Vilhjálmur hafði hringt í rangt
númer. Vilhjálmur hafði greini-
lega gaman af færslu Brynhildar
sem hann deildi sjálfur á Face-
book-síðu sinni. „Nú veit ég hvers
vegna enginn svarar símtölum frá
mér,“ sagði lög-
fræðingurinn.
Møller Olsen hættur á Facebook
og kærastan skráir sig úr sambandi
Var úrskurðaður í tveggja vikna gæsluvarðhald á fimmtudag
T
homas Frederik Møller Olsen
var í gær úrskurðaður í tveggja
vikna gæsluvarðhald. Hann er
grunaður um að hafa banað
Birnu Brjánsdóttur. Nikolaj Olsen, sem
einnig sat í gæsluvarðhaldi grunaður
um aðild að málinu, hefur verið sleppt.
Jón H. B. Snorrason greindi RÚV frá því
að Nikolaj hefði í vikunni gefið vitnis-
burð sem varpaði ljósi á málið. Hann
getur því haldið heim til fjölskyldu
sinnar á Grænlandi. Jón H. B. sagði:
„Ef hann væri sakaður um þetta
manndráp þá væri hann að sjálfsögðu
ekki laus.“
Grímur Grímsson lögreglufulltrúi
segir Nikolaj þó enn hafa réttarstöðu
grunaðs í máli Birnu.
Á meðan Nikolaj heldur til fjöl-
skyldu sinnar á Grænlandi mun
Møller Olsen dvelja í varðhaldi á Litla-
Hrauni. Þar situr Møller í einangrun
23 tíma á dag. Í klefanum er klósett en
hann þarf að óska eftir því við fanga-
verði ef hann vill komast í sturtu.
Møller fær aðeins að vera í samskipt-
um við lækni og lögmann. Í klefanum
er sjónvarp og hann hefur aðgang að
DVD myndum til áhorfs. Hann hefur
ekki tölvu eða aðgang að interneti en
athygli vekur að Facebook-síða hans er
ekki lengur aðgengileg. Møller hefur
því líklega óskað eftir því við lögmann
sinn eða komið skilaboðum áleið-
is til ættingja um að loka Facebook-
síðunni.
Þá skráði kærasta hans á Græn-
landi sig úr sambandi við hann þann
27. janúar síðastliðinn. Einnig hafði
kærastan skráð sig í Facebook-hópinn
Leit að Birnu Brjánsdóttur þar sem al-
menningur gat deilt upplýsingum um
hvar hafði verið svipast um eftir
Birnu meðan á leit stóð. n