Dagblaðið Vísir - DV - 11.04.2017, Síða 26

Dagblaðið Vísir - DV - 11.04.2017, Síða 26
26 Páskablað 11. apríl 2017fréttir Strákurinn hafði misnotað hana og þegar móðir hennar sótti hana daginn eftir brotnaði hún saman og sagði frá ofbeldinu. Í kjölfarið var hún vistuð á BUGL í tvær vikur. Það hjálpað ekki. Hún veit ekki hvort kynferðisofbeldið hafi haft af- leiðingar fyrir strákinn eða hvort hann hafi verið kærður. „Ég talaði ekkert um þetta. Þegar ég hugsa til baka sé ég að mín kyn- ferðislega hegðun kemur út frá mis- notkuninni. Að hafa verið misnotuð, lögð í einelti og kynferðislega áreitt af strákum og körlum hefur haft áhrif á kynlífið í mínum samböndum.“ Eftir að Birna fór að vinna í sjálfri sér, eftir að hafa sagt skilið við áfengi og vímuefni, byggja upp sjálfsvirðinguna og takast á við kvíð- ann og fleira sem fylgir alkóhólisma sá hún að kynlíf hennar var ekki á hennar forsendum, heldur var hún alltaf að reyna að gera strákum til geðs. „Mér var drullusama um alla. Mér var alveg sama hversu kjánaleg ég var á Facebook eða Tinder. Það sem ég vildi var bara athygli og þetta var ljót athygli. Ég stundaði gróft og sársaukafullt kynlíf með strákum. Ég hef til dæmis aldrei stundað fallegt kynlíf.“ Birna segir að hún hafi sífellt verið að leika leikrit. Það skipti engu máli hvar hún var, hvort sem það var heima, í skólanum, með vinunum, hún var alltaf í hlutverki, með grímu og dofin tilfinningalega. „Ég var eiginlega að sækjast í of- beldið sem ég var beitt að hálfu ger- andans, því ég þekkti ekki annað. Ég var alltaf að gera eitthvað sem ég hélt að þeir vildu.“ Varð háð grasi Þegar Birna var 19 ára var hún hætt í Kvikmyndaskólanum og neyslan orðin harðari. Hún reykti gras og byrjaði að nota amfetamín og kókaín. Hún drakk ekki aðeins tíu, fimmtán bjóra um helgar, neyslan gat varað í nokkra daga og ekkert var sofið. Eftir að hafa flakkað um í þrjú ár hafði Birna engan samastað og þurfti að flytja aftur til móður sinn- ar. Hún hafði þá samband við kunn- ingja sinn sem leyfði henni að sofa á sófanum og bauð henni hass. „Þetta var í fyrsta skipti sem ég reykti hass. Ég ætlaði bara að vera þarna í þrjá daga en þegar upp var staðið var ég þarna í fimm mánuði, í daglegri neyslu.“ Birna og kunningi hennar urðu bestu vinir á þessum tíma. Hún vann lítið en ef svo bar við var um svarta vinnu að ræða. Hún stal því sem hún þurfti, eins og mat og snyrti- vörum, og fékk öll fíkniefni hjá vini sínum og félögum hans. Hver dagur var öðrum líkur í nokkra mánuði og Birna lýsir þeim á þessa leið: „Ég vaknaði, reykti hass og lagði mig aftur. Vaknaði og fékk mér aftur. Horfði á Friends og át pítsu, fór svo í bað og reykti á meðan ég var í baði. Þetta var bara lífið. Mér fannst ég eðlileg þegar ég var að reykja, en var alveg kolrugluð.“ Edrú í þrjá mánuði Þegar vinur Birnu flutti til útlanda í janúar á síðasta ári neyddist Birna til að flytja aftur til móður sinnar. Hún skráði sig í förðunarskóla og tókst að vera edrú í tvo til þrjá mánuði. Hún lýsir ástæðunni fyrir því á þessa leið: „Ég vaknaði og meikaði ekki daginn og reyndi að redda mér hjá dópsölum en það tókst ekki. Við reyktum venjulega hjá þvottavél í íbúðinni og stundum datt eitthvað á bak við þvottavélina. Við færðum þvottavélina og þar voru hasskögglar fastir við gólfið og grasmylsna. Við skófum það upp og einnig drulluna innan úr flöskunum sem við reyktum úr og það dugði. Þarna hugsaði ég að það væri eitthvað mikið að mér. Þetta var ógeðslegt. Ég var edrú eftir þetta í tvo þrjá mánuði.“ Byrjaði aftur að dópa Birnu gekk vel í förðunarskólanum og smám saman fór henni að líða betur. Kennararnir þekktu sögu hennar og sýndu henni mikinn stuðning og skilning og henni fór að líða betur með sjálfa sig. En nokkrum vikum áður en skólanum lauk kynntist Birna strák sem reykti gras og byrjaði sjálf að reykja aftur. Sagan endurtók sig og hún mætti illa í skólann. Henni tókst þó að útskrif- ast. Næst lá leiðin að Jökulsárlóni þar sem hún vann við uppvask á hóteli. Þar byrjaði hún aftur að drekka. Eftir að hafa orðið fyrir kynferðislegri áreitni frá kokkinum ákvað hún að segja skilið við Ísland og flutti til vin- ar síns sem bjó í Hollandi. Tólf bestu tímar ævi hennar Birna hafði aldrei prófað e-töflu og var hrædd við það. Hún sat í íbúð vinar síns í Hollandi sem lýsti fyrir henni áhrifum efnisins. Eftir því sem hann lýsti því nánar því meira spennandi hljómaði það. Hún ákvað að prófa hálfa töflu. Eftir tæpan klukkutíma leið henni eins og hún væri að deyja. Þrátt fyrir það tók hún einnig hinn helminginn. „Þá byrjaði ég öll að skjálfa, kjálk- inn var á fullri hreyfingu og fæturnir líka. Ég svitnaði og svitnaði, þetta var mjög skrýtið. Ég fann yfirgnæf- andi góða tilfinningu sem ég hafði aldrei fundið fyrir á ævinni.“ Birna segir að næstu tólf tímar sem fylgdu hafi verið bestu tólf tím- ar ævi hennar, en á mánudeginum hrundi heimurinn. „Ég vakna og mig langaði að deyja, mér leið svo illa. Ég skalf og ældi öllu og kom engu niður. Vinur minn var í vinnunni og ég vissi ekki hvað ég átti að gera. Ég fór út á svalir og öskraði eftir hjálp á ensku.“ Að lokum hljóp hún í náttfötun- um út á götu og stöðvaði 12 ára stelpu og öskraði á hana að hringja á sjúkrabíl. Hún var ekki með síma og benti á líkamsræktarstöð. „Ég hljóp þangað inn, lagðist á gólfið og sagðist hafa tekið e-töflu og væri að deyja.“ Það kom enginn sjúkrabíll en hjúkrunarfræðingur frá sjúkrahús- inu kom á líkamsræktarstöðina og fór með Birnu aftur upp í íbúð. Birna útskýrði fyrir henni hvað hefði gerst, að þetta væri í fyrsta sinn sem hún hefði tekið e-töflu og henni liði eins og hún væri að deyja. „Konan segir mér að efnin í e- töflum ættu að vera farin úr mér eft- ir þrjá daga, þetta var á mánudegi og ég hafði tekið inn töfluna laugar- dagsmorgni.“ Nokkrum dögum seinna hafði ástand Birnu ekkert skánað. Hún var komin í kvíðakast og vildi helst deyja. Hún fór upp á spítala þar sem hún fékk róandi lyf og var send í blóðprufu í sömu vikunni. Þá kom í ljós að í líkama hennar var að finna rottueitur, sýru og fleiri hættu- leg efni, en hin ýmsu eiturefni geta fundist í e-töflum. „Ég hugsaði hvað ég væri eigin- lega búin að gera sjálfri mér. Ég er með hjartagalla og of hár blóð- þrýstingur getur reynst mér hættu- legur,“ segir Birna og gerði sér ljóst að hún yrði að gera eitthvað í sínum málum. Hún hringdi í móð- ur sína. „Hún bauð mér að annað- hvort koma heim samstundis og fara í meðferð, eða vera áfram í Hollandi. Hún ætlaði ekki leyfa mér að búa heima ef ég færi ekki í meðferð. Ég kaus að fara heim í meðferð.“ Var á Vogi í viku Júní á síðasta ári er sá dagur sem Birna neytti síðast fíkniefna. Hún fór beint á Vog og var þar í sjö daga. Þar sá hún langt leidda fíkla og hugsaði að hún vildi ekki vera í þeirra spor- um eftir tíu til tuttugu ár. Birna fór í 12 spora samtökin eftir meðferðina. Það er fjöldi 12 spora samtaka um landið sem hjálpa fólki að takast á við alkóhólisma. Þrátt fyrir að hún væri hætt neyslu á þess- um tíma var hún enn óheiðarleg og í raun var hegðunin þannig að það var eins og hún væri enn að neyta fíkniefna. Birnu tókst að breyta hegðun sinni og var á réttri leið. Í nokkra mánuði lék lífið við hana en svo fór að halla undan fæti. Á ný fór hún hegða sér líkt og hún væri í neyslu en þó án þess að taka inn efni eða drekka áfengi, þessu fylgdu lygar og hroki. „Þarna var ég komin á fallbraut. Mamma spurði af hverju ég færi ekki aftur á Vog í meðferð áður en ég félli. Ég hlustaði á hana og komst inn á Vog sex vikum síðar.“ Birna fór aftur á Vog og ákvað að sigrast á sjálfri sér. „Það var sagt við mig að eymd væri val. Ég réði hvernig dagurinn minn yrði. Ég gæti ekki stjórnað öllu sem gerðist í kringum mig, líf- inu eins og það legði sig, en ég réði hvernig ég brygðist við. Ef ég ætlaði að bregðast við með vorkunn, reiði og stjórnleysi, þá gengi ekkert.“ Þarna áttaði Birna sig á hvert vandamálið var. „Ég var vandamálið. Ekki Ísland, ekki mennirnir sem áreittu mig, ekki stelpurnar sem lögðu mig í einelti eða strákurinn sem misnotaði mig, heldur ég.“ Komst að kvíðanum á Vogi Á Vogi var Birna greind með kvíða. Það gerðist eftir mikið kvíðakast og var vel tekið á því á Vogi. Hún fékk lyf, mætti í hóptíma og tók á kvíðan- um ásamt sálfræðingi. Eftir fimmt- án daga dvöl á Vogi fór hún í eftir- meðferð á Vík á Kjalarnesi. „Ég fékk alla þá hjálp sem ég þurfti. Hjálp við kvíðanum, hegð- unarvandanum, alkóhólismanum og hjálp við að vinna í sjálfs- virðingunni og hegðun minni í kyn- lífssamböndum. Þetta er krónískur sjúkdómur sem spyr ekki um aldur eða tíma, hann læðist aftan að þér,“ segir Birna. Hún setur sér aðeins mark- mið fyrir daginn í dag og veltir sér ekki upp úr fortíðinni. „Markmið mitt er að vera edrú í dag. Ég er að leita að innri frið. Ég er bara ég og er að reyna að sættast við sjálfa mig. Ég er á hárréttri leið, vegna Vogs, Víkur og samtakanna.“ „Það besta sem mamma gerði fyrir mig var að henda mér út“ Aðspurð hvort hún hafi einhver ráð til foreldra sem eiga börn og unglinga í sömu stöðu mælir hún með SÁÁ og að foreldrar setja börn- unum sínum mörk. „Það besta sem mamma gerði fyrir mig var að henda mér út. Það var sárt en ég sá að mér. Þegar þú leyfir barni að búa heima hjá þér meðan það er í neyslu þá ertu að gefa grænt ljós. Alkóhólistar lofa öllu en svíkja allt. Barnið verð- ur að reka sig á, en það er bara mín skoðun og eflaust margir ósam- mála mér. Það er ekkert sem heitir líf þegar maður er í neyslu, ekkert. Það er bara fljótari leið til að deyja.“ Lífið var svart og hvítt en núna í lit „Lífið mitt var svart og hvítt en núna lifi ég í lit. Ég er full af lífi og tilfinn- ingum. Ég lifi í þakklæti. Ég er hætt að reyna að stjórna lífinu, ég get aðeins stjórnað mér sjálfri. Ég geri mistök og leyfi mér að gera þau og reyni að læra af þeim en ekki rakka mig niður.“ Birna nýtur lífsins og það sem er hversdagslegt hjá mörgum er nýtt fyrir henni, eins og að bursta tennurnar á hverjum degi eða fá tekjur í hverjum mánuði, sem ekki fara í fíkniefni. Í dag veit hún hvað hún vill, bæði frá sér sjálfri og öðru fólki. „Það er ekki sjálfsagt að lifa. Það deyja allir en það fá ekki allir að lifa. Ég er þakklát á hverjum einasta degi, fyrir lífið mitt í dag og að fá að njóta þess. Ég hugsa ekki um gærdaginn eða morgundaginn, aðeins daginn í dag. Bara það að fá að vakna á morgnana er nýtt upphaf, nýtt líf, nýr endir og ný tækifæri.“ n „Ég vaknaði og mig langaði að deyja „Lífið mitt var svart og hvítt en núna lifi ég í lit Birna Kristel Segir sögu sína í von um að hjálpa öðrum. „Það er ekkert sem heitir líf þegar maður er í neyslu.“ Mynd SigTryggur Ari
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.