Dagblaðið Vísir - DV - 11.04.2017, Page 74

Dagblaðið Vísir - DV - 11.04.2017, Page 74
Páskarnir eru í nánd, það er vor í lofti og allir bíða spenntir eftir sumrinu. Það er tilhlökkunarefni að hugsa til sumarsins því lífið verður svo miklu skemmtilegra þegar sólin hækkar á lofti, fólkið verður léttara í lund og brosmild andlit lífga upp á tilveruna. En það er líka fleira að hlakka til, endurkoma Séð og Heyrt sem gerir lífið skemmti­ legra. Þessa dagana er verið að vinna að endurkomu blaðsins með nýju útliti, með nýju útgáfuformi og nýjum áherslum. Ætlunin er að gefa út Séð og Heyrt einu sinni í viku með Helgarblaði DV í nýju formi sem og opna nýja vefsíðu með pomp og prakt. Áhersla verður lögð á að vera með jákvætt og áhugavert efni með fréttum, frásögnum, viðtölum og myndum af fólki við hin ýmsu tækifæri, sem gerir lífið skemmtilegra. Þetta er allt saman í þróun og mótun og framtíðin er björt hjá Séð og Heyrt. Gleðin verður höfð í fyrirrúmi og áhersla verður lögð á að fjalla um það sem vel er gert, það sem gleður mannshjartað, meðal annars með fallegum myndum og frásögnum. Markmiðið er að Séð og Heyrt verði til staðar þar sem hjartað slær að hverju sinni og gefa fólki tækifæri til að láta ljós sitt skína. Það er svo miklu skemmtilegra að gleðja, og eins og málshátturinn segir: „Maður er manns gaman.“ Við hlökkum til að móta framtíðina með ykkur og við erum þegar byrjuð. Það eru nýir og spennandi tímar framundan og það fyrsta er að njóta páskanna með sínum nánustu, njóta þess að borða súkkulaði og lesa máls­ hættina sem leynast í súkkulaði­ eggjunum okkar, hver veit nema þar leynist framtíðarsýn eða mark­ mið sem vert að hafa að leiðarljósi. Til þess er leikurinn gerður. Munum að lifa lífinu lifandi og njóta augnabliksins, það skiptir máli. Gleðilega páska MAÐUR ER MANNS GAMAN ÁlfAhölliN fRUMSýNd viÐ MikiNN föGNUÐ Það ríkti gleði og glaumur í Þjóðleikhúsinu þegar Álfahöllin var frumsýnd á dögunum og margt var um manninn. Álfahöllin er ný sýning eftir Þorleif Örn Arnarsson sem er unnin í samstarfi við listafólk Þjóð­ leikhúsins. Listafólk leikhússins leggur af stað í óvissuferð, með gleði, sköpunarkraft og mennsku í farteskinu og býður þjóðinni upp á tækifæri til þess að hittast og skoða sjálfa sig í spegli listarinnar. Þorleifur Örn leikstjóri og sam­ starfsfólk hans sviðsetja þætti úr sögu íslenskrar leiklistar með afar skemmtilegri útfærslu. Blúshátíðin var sett á Skólavörðustígnum með stæl þar sem tónlistar­ menn buðu upp á sannkallaða blúsveislu þar sem tónarnir ómuðu um göturnar. Gestum og gangandi var boðið upp á rjúkandi grillmat. Við þetta tilefni var Birgir Baldursson trommuleikari kjörinn heiðurs­ félagi í Blúsfélagi Reykjavíkur og er því Blúsmaður ársins 2017. BROSMILD OG SÆLLEG Steinunn Ólína, Stefán Karl og Steinunn Sigurðardóttir. MYNDAR- LEGIR Þorvaldur Davíð Kristjánsson, unnusti Hrafntinnu Viktoríu, dóttur Kalla, og Kalli voru kampakátir í tilefni sýningarinnar. GLÖÐ SYSTKINI Bergljót Arnalds og bróðir hennar, Eyþór, voru spennt fyrir sýningunni. FLOTTAR Kristín Eysteinsdóttir, leikhús- stjóri Borgarleikhúsins, mætti með sinni konu, Katrínu Oddsdóttur á frumsýninguna. GLÆSILEG Ari þjóðleikhússtjóri með hjónunum Ingibjörgu Ösp Stefánsdóttur og Magnúsi Geir Þórðarsyni útvarpsstjóra RÚV. ÁSTFANGIN Mikael Torfason mætti með ástinni sinni, Elmu Stefaníu Ágústsdóttur, á frumsýninguna og geisl- uðu þau af hamingju. GLÆSILEIKI Systurnar Salvör og Marta Nordal skemmtu sér vel í leikhúsinu. FALLEG MÆÐGIN Ragnheiður Gröndal söngkona mætti ásamt syni sínum á Blúshátíðina. REFFILEGIR Þeir félagarnir Dóri, Jói byssusmiður og Kiddi Cadillac skemmtu sér vel í tilefni dagsins. BlúSiNN óMAÐi oG ilMURiNN lokkAÐi HRESS Baldvin Jónsson og eiginkona hans Magga Björns létu sig ekki vanta í gleðina á Skólavörðustígnum. BLÚSMAÐURINN Þorsteinn G. Gunnarsson veitti Birgi Baldurssyni trommuleikara viðurkenninguna og tilkynnti um Blúsmann ársins 2017. FLOTTIR Davíð Þór mætti með harmónikuna á Stíginn Eggert feldskera til mikillar ánægju.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.