Dagblaðið Vísir - DV - 11.04.2017, Qupperneq 78
LEYNDARDÓMAR
REYKJAVÍK
FASHION
FESTIVAL
Fyrir um það bil 2000 árum dó Jesús Kristur. Stuttu síðar reis hann
upp frá dauðum. Það er vitað
mál. Nokkrum árum fyrr hafði
hann fæðst. Það fer ekkert á
milli mála að hann fæddist 25.
desember. Það er almennt sam
þykkt.
En það
virðist ekki
jafn mik
ilvægt að
vita hvenær
nákvæmlega
hann dó eða
hvenær hann
reis aftur upp frá
dauðum. Við fögnum páskunum
vegna þess að Jesús dó og hann
reis upp þremur dögum síðar.
En páskar geta verið allt frá 22.
mars til 25. apríl. Við slump
um bara á dagsetningu eftir
hentisemi. En alltaf á sunnu
degi. Það verður að vera einhver
regla á þessu. Og fólk skal ekki
voga sér að mæta í vinnuna
fimmtudag, föstudag, laugardag,
sunnudag eða mánudag um
páskana. Það skiptir engu máli á
hvað þú trúir. Svona er þetta.
Ertu trúlaus? Þegiðu. Trúir
þú á eitthvað annað? Það er trú
frelsi á Íslandi, en haltu kjafti.
Spurðu þig bara hvaða ár er.
2017. Af hverju er árið 2017? Af
því þá fæddist Jesús. Þá hófst
heimurinn eins og þú þekkir
hann. Það er enginn þarna að
telja dagana frá miklahvelli.
Við teljum dagana síðan hinn
smurði smiður frá Nasaret
fæddist. Þetta er almennt sam
þykkt um allan heim.
Því tökum við saman
höndum, leggjum niður vinnu
á fimmtudag og/eða föstudag
(fer eftir því hversu mikill fáviti
yfirmaður þinn er), hugsum
aðeins um Jesú sem fórnaði
sér til að bjarga okkur frá
syndum okkar. Hugsum um
það. Íhugum það vel. Látum
fórnina ekki vera til einskis.
Nýtum fríið sem Jesús gaf
okkur til að gera það sem við
viljum, helst eitthvað sem telst
synd samkvæmt kristinni trú.
Drýgjum helst dauðasyndirnar
sjö: Hroka, öfund, reiði, ágirnd,
þunglyndi, ofát og munúðarlífi.
Syndg um til þess að Jesús
hafi ekki hangið á krossinum
að ástæðulausu, svona eins og
fólkið sem er pyntað og myrt af
trúarlegum ástæðum á hverjum
degi deyr að ástæðulausu. Það
sem ég er að reyna að segja:
Njótum páskanna. Gerum það
fyrir Jesú.
Kveðja:
Leiðinlegi gaurinn
PáSKA-PISTILL
Mikið var um að vera þegar stærsti tískuviðburður Íslands, RFF, fór fram. Þar
stigu á svið glæsileg og föngu
leg módel frá Eskimo sem sýndu
nýjustu hönnun frá sex hönnuðum;
Myrkvu, Cintamani, Magneu,
Inklaw, Anitu Hirlekar og Another
Creation.
Umgjörð tískusýningarinnar
var hin glæsilegasta og ekkert var
til sparað. Margir frægir tískuljós
myndarar voru viðstaddir, þar á
meðal Íslandsvinurinn Andrew
Kuykendall, einn þekktasti tískuljós
myndari heims, sem
tók nokkrar af þessum
myndum. Hátíðin er um
fangsmikil og að slíkri uppsetn
ingu eru nokkur hundruð manns
baksviðs sem tryggja að allt líti vel
út á tískupöllunum. Þar eru módel
sem sýna, hár og förðunarteymi
ásamt ýmsum fleirum sem hjálpa
módelum að hafa sig til, og stýra
baksviðsmálum. Eskimo sá um
„casting“ á fyrirsætunum, Label.m
sá um hár og Reykjavik Makeup
School sá um förðun með NYX
cosmetics vörum.
Við Breiðhöfða / Sími: 511 0000 / www.Bilalind.iS
GLÆSILEG Margrét Hrafns lét sig ekki
vanta á svæðið og var í góðum félagsskap
með
þeim Sean Borg og lafði Victoriu Hervey.