Dagblaðið Vísir - DV - 11.04.2017, Síða 79

Dagblaðið Vísir - DV - 11.04.2017, Síða 79
Guðrún Veiga Guðmundsdóttir (31) mannfræðingur, förðunarfræðingur og snappdrottning með meiru: Guðrún Veiga er þekktust fyrir skemmtilegt snapp og líflega framkomu. Hún er fædd og uppalin á Eskifirði. Hún er gift Guðmundi Þór Valssyni og eiga þau tíu ára gamlan son, hann Val Elí, og von er á næsta afkvæmi þann 9. maí næst- komandi. Guðrún Veiga er með meistaragráðu í mannfræði frá Háskóla Íslands og er útskrifaður förðunarfræðingur frá Reykjavík Makeup School. Fáránlega forvitin „Ég hef áhuga á öllu og alls konar. Ég er fáránlega forvitin, ókei – hnýsin er eiginlega rétta orðið. Skýli mér reglulega á bak við þá afsökun að ég sé mannfræðingur og áhugi minn á lífi og högum annarra sé eingöngu af akademískum toga – nei nei, það er rosalega akademískt þegar ég skoða ókunnugt fólk á Facebook og velti því fyrir mér hvernig það hefur efni á að fara til útlanda ellefu sinnum á ári. MEÐ FJÖGUR BÖRN. Suma hluti þurfa mannfræðingar einfaldlega að skoða og skilja.“ Í fullu starfi við að snúa sér reglulega í sófanum „Það sem ég er mestmegnis upp- tekin við þessa dagana er að gæta þess að fá ekki legusár vegna óléttu. Lykilatriði að snúa sér reglulega í sófanum og lítið mál að gera það að fullu starfi,“ segir Guðrún Veiga og brosir. Gult og guðdómlega gleðilegt Síðastliðið sumar vakti brúðkaup þeirra hjóna mikla athygli, sérstak- lega vegna litaþemans sem var einstaklega fallegt og snappið frá brúðinni. „Brúðkaupið okkar var stórkostlegt. Gult og guðdómlega gleðilegt. Jú, það var svolítið grátt líka. Gult og grátt voru þemalitir brúðkaupsins. Eiginmaðurinn vildi hafa litina gula og bláa – eins og í einhverri sænskri fermingu eða á sumarhátíð hjá Ikea. Guði sé lof að ég er talsvert frekari en hann. Lykillinn að því að svona viðburð- ur verði vel heppnaður er að eiga stórskemmtilega fjölskyldu og vini. Eins og við búum svo óskaplega vel að eiga. Við komum ekki nálægt veislunni sjálfri, enda var ég búin að vera afar upptekin í marga mánuði við að grenja yfir snittuuppskriftum og svitna yfir servíettubrotum. Já, mín forgangsröðun fyrir veisluna var útlit hennar númer eitt, tvö og þrjú. Allir með síma sífellt á lofti og allt varð þetta að koma vel út á Instagram. Ég hugsaði ekki einu sinni út í hvernig upplifun veislan yrði.“ Að sögn Guðrúnar Veigu varð veislan samt sem áður besta partí í heimi, þökk sé þeim sem stóðu þeim næst. „Við komum ekki nálægt einu einasta skemmti- atriði en þau stóðu yfir í góða þrjá tíma og brúðhjón og gestir ýmist grenjandi eða gargandi úr hlátri. Ó, ég væri til í að upplifa þennan dag aftur og aftur og aftur. Ef ég þyrfti ekki að borga fyrir hann, þú veist,“ segir Guð- rúnu Veiga lúmsk á svipinn. Á enn eftir að finna hann í fjöru Hvað kemur helst upp í minningunni frá stóra deginum ykkar? „Gestur- inn sem hellti fullu glasi af rauðvíni yfir kjólinn minn á dansgólfinu seint um kvöldið. Ég á enn eftir að finna hann í fjöru og lúskra duglega á honum.“ Brúðar- kjóllinn vakti mikla athygli og forvitnilegt að vita um tilurð hans. „0,4 sekúnd- um frá bón- orði geispaði ég orðunum „ég ætla að vera í gulum kjól“ í andlitið á tilvonandi eigin- manni mínum. Strax daginn eftir fór ég á stúfana. Eðlilega, kjóllinn varð að vera þess eðlis að ég gæti svo- leiðis baðað mig upp úr athygli allan brúðkaupsdaginn og helst allt árið á eftir, samanber þetta viðtal. Ég sótti mér innblástur á internetinu og vistaði myndir eins og vindurinn. Ég fór svo með mínar hugmyndir til saumasnillingsins Báru Atladóttur og hún sauð mínar hugmyndir og suð saman í eitt og úr varð fallegasti kjóll sem ég hef augum litið. Ég væri alltaf í honum ef ég væri búin að lufsast með hann í hreinsun. Hann er enn svolítið rauðvínsleginn. Já, gott er að skjóta því að að frestunarárátta er einn af mínum helstu ókostum. Ég geri ekkert í dag sem ég get mögu- lega gert á morgun. Eða hinn.“ Sautján þúsund fylgj- endur á snappinu Snappdrottning, hvernig ætli hefðbundið líf sé hjá henni þessa dagana? „Ah, það er eitthvað lítið hefðbundið við lífið þessa dag- ana. Ég er kasólétt orðin og kolvitlaus í skapinu. Ligg eins og sjóþrútinn rekaviður í sófanum allan daginn. Að borða Toblerone. Og íhuga hvað á að vera í kvöldmatinn. Og hvort það sé til nóg sælgæti í eldhússkápunum fyrir næturbröltið. Bölvað næturbrölt og sífelld þvaglát – tvennt sem ein- kennir líf mitt þessa dagana. Ég get sko ekki beðið eftir því að fá mér rauðvínsglas, sæmilega bumbulaus og ekki þurfandi á salernið. Já, ég sagði það.“ Fylgjendur Guðrúnar Veigu eru í kringum sautján þúsund og virðast vera á öllum aldri að hennar sögn. „Ég hef bæði verið föðmuð af fjörgamalli konu í Ikea og svo bent á mig í skólanum hjá syni mínum: „Hei, sloppakonan af Snapchat.“ Það eru teljandi líkur á því að um það bil fimmtán þúsund manns haldi að ég eigi ekkert annað en blessaðan baðsloppinn minn.“ Hver ætli galdurinn sé við að vera góður snappari, hljóta margir að hugsa. „Fyrir mína parta er engin stórkostleg stærðfræði á bak við vinsældir á miðli á borð við Snapchat eða nein ráð sem virka eitthvað betur en önnur. Ég lærði samt fljótt að einblína ekki á einhverjar fylgjendatölur, vinsældir skila manni ekkert endilega langt. Grimm fylgjenda- söfnun með alls konar aðferðum er oft meira fráhrindandi en hitt. Ég hef gaman af tali og texta- smíð og það virkar fyrir mig inni á Snapchat. Ég hef ekki nokkra hugmynd um hvað dregur fólk að mér eða öðrum snöppurum, þannig séð. Það virkar að vera einhver sem fólk samsamar sig við og getur tengt við. Einhver pass- lega eðlilegur sem tekur sjálfan sig ekki of alvarlega. Annaðhvort nær maður til fólks eða ekki. Þetta er ekki mikið flóknara held ég. Heilmikil vinna þó, meiri en flestir ímynda sér.“ Páskaegg og tuskuóður eiginmaður Páskarnir eru framundan og Guðrún Veiga er búin að plana fríið að nokkru leyti. „Ég er búin að éta þrjú páskaegg í fullri stærð. Stefni á þrjú, ókei sex, til viðbótar. Ætli ég muni ekki mestmegnis liggja áfram á sófanum. Horfandi á tuskuóða manninn minn undirbúa komu dóttur okkar. Áður en sonur okkar fæddist sprittaði hann alla veggi og þreif gólflistana með eyrnapinnum. Ég er spennt (og óttaslegin í bland) að sjá hverju hann tekur upp á núna þessi elska,“ segir þessi dásamlega kona, sem kemur öllum í gott skap, með bros á vör. LIFIR LÍFINU LIFANDI MEÐ SNAPCHAT ÁSTFANGIN UPP FYRIR HAUS Guðrún Veiga glæsileg í fallega gula brúðarkjóln- um og eiginmaður hennar Guðmundur Þór á stóra deginum. GLÆSILEGUR Valur Elí, sonur þeirra Guðrúnar Veigu og Guðmundar Þórs skartar hér fallegri gulri slaufu í tilefni stóra dagsins. STUÐBOLTAR Brúðurinn bregður á leik með gestum sínum, ávallt líf og fjör þar sem Guðrún Veiga er. FLOTT Í GULA SLOPPNUM Guðrún Veiga kemur vel út með múnína- álfabollann í hönd í gula sloppnum tilbúin að spjalla við Snapchat fylgjendur sína.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.