Dagblaðið Vísir - DV - 11.04.2017, Side 81

Dagblaðið Vísir - DV - 11.04.2017, Side 81
Gott í gogginn 11. apríl 2017 Ábyrgðarmaður og umsjón: Steinn Kári Ragnarsson / steinn@dv.is KYNNINGARBLAÐ Kaffihúsið sem alltaf vantaði í Breiðholtið Gamla Kaffihúsið, DRAfNARfeLLI 18, 111 ReYKjAvíK GeitingahGamla kaffihúsið er hlýlegur staður í Drafnar-felli í Breiðholti. Unnur Arna Sigurðardóttir, einn eigenda þess, er ákaflega ánægð með frábærar móttökur viðskiptavina. „Það var brýn þörf á að fá gott kaffihús í hverfið hér sem er rótgróið og rólegt svæði. Hér býr margt fólk og alls ekki allir sem vilja fara niður í bæ til þess að fá sér góðan kaffibolla og finnst notalegt að setjast inn hjá okkur,“ segir hún. „Það hefur vakið mikla lukku að við bjóðum einnig upp á mat og við erum t.d. alltaf með tvær mismunandi gerðir af súpum í hádeginu og rétt dagsins. Þannig að það má segja að við séum nokkurs konar bistró. Hádegismatartíminn stendur yfir frá kl. 12.00–14.00.“ Ljúffengar steikur Unnur segir að matseðillinn sé ekki stór, en sætur og með sérvöldum, bragðgóðum réttum. „Gestir hafa verið afar hrifnir af eðalbrauðunum okkar en þau er tvisvar sinnum stærri en hefðbundin rúnstykki og fyllt með laxi, kjúklingasalati eða mínútusteik. Allan daginn eru síðan á boðstólum ljúffengar steikur; nautasteik með bearnaise- eða piparsósu og fær fólk sér þá gjarn- an rauðvínsglas með máltíðinni og röltir svo satt og sátt heim til sín, í göngufæri. Gamla kaffihúsið okkar er heimilislegt og fólki finnst þægi- legt að setjast hér niður og lesa eða spjalla við vinalegan þjóninn. við erum með bókahillu sem fólk getur seilst í og fundið sér lesefni. fólk getur bæði tekið bækur og gefið þær sem það hefur lesið og vill að aðrir njóti.“ Kökuhlaðborð á sunnudögum „Á sunnudögum er alltaf köku- hlaðborð hjá okkur upp á gamla móðinn á milli kl. 15.00–17.00 en það kostar aðeins 2.000 krónur og er kaffi þá innifalið. Þetta er nokkuð sem fólk hefur saknað og þykir dá- samlegt að geta tekið upp þennan skemmtilega gamla sið að fara í kaffihlaðborð á sunnudagseftir- miðdögum,“ segir Unnur og brosir hlýlega um leið og hún kemur því á framfæri að hún þakki innilega fyrir frábærar móttökur gesta. Gamla kaffihúsið, Drafnarfelli 18, 111 Reykjavík. Sími: 511-1180. Nánari upplýsingar má nálgast á Face- book-síðu Gamla kaffihússins. Nýbakað brauð og fínerí Girnilegar brauðtertur á Gamla kaffihúsinu

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.