Dagblaðið Vísir - DV - 11.04.2017, Qupperneq 83
Gott í gogginn 3Páskablað 11. apríl 2017 KYNNINGARBLAÐ
Þú átt VON á góðu
VON Mathús: Gæði oG sannGjarnt verð
Veitingahúsið von Mathús var opnað af þeim einari Hjaltasyni og Kristjönu Þuru
í Hafnarfirði árið 2015 og hefur
reksturinn gengið vonum framar.
einar er sannkallaður reynslubolti og
margrómaður matreiðslumaður sem
útskrifaðist af Grillinu á Hótel sögu
og kom að opnun háklassa veitinga-
staðar í London sem hlaut Michelin-
stjörnu. Kristjana hefur einnig verið
viðloðandi veitinga- og hótelgeirann
í um tíu ár og svo er hún Hafnfirðing-
ur í húð og hár. „við erum nú rétt
rúmlega eins árs og förum bara
stækkandi,“ segir Kristjana.
Allt það ferskasta
Matseðill von Mathúss á kvöldin og
í hádeginu er alla jafna stuttur og
árstíðabundinn og tekur ávallt mið
af því sem er ferskast hverju sinni,
hvort sem um fisk eða grænmeti er
að ræða. Matseðlinum er svo breytt
á 2–3 mánaða fresti og allt hráefni
er í mestu mögulegu gæðum. Fiskinn
kaupir von Mathús frá Hafinu og
kjötið frá ss og því er hvort tveggja
ætíð íslenskt hráefni. „núna í vetur
fást þorskurinn og langan til dæmis
mjög fersk og því er matseðillinn
okkar í samræmi við það. Á meðan
eru bláskelin, steinbíturinn og rauð-
sprettan yfirleitt betri á sumrin,“ segir
Kristjana. Ásamt sérstökum barna-
réttum á matseðlinum er hægt að
fá alla rétti í skammtastærðum fyrir
börn. einnig er hægt að fá grænmet-
is- eða veganrétti bæði í aðalrétt eða
í samsettum seðlum.
Frábær í hádeginu, virka daga
og um helgar
Um helgar fæst ekta bröns í há-
deginu hvort sem um er að ræða
hádegisverðarplatta eða fjölskyldu-
hlaðborð. að auki er boðið upp á
vöfflur með ýmsu spennandi með-
læti og er laxavafflan langvinsælust
á brönsseðilinum, að sögn Kristjönu.
vöffludeigið er vegan og því ættu
allir að geta fundið eitthvað við sitt
hæfi. einnig er hægt að fá fisk eða
kjúkling dagsins. Helgarbröns væri
varla fullkomnaður ef ekki væri
boðið upp á mímósur eða dásam-
lega súrsætt límonaði. Helgarbröns
er hægt að fá á laugardögum og
sunnudögum frá 11–14 og mælt er
með borðapöntun. alla þriðjudaga–
föstudaga, milli kl. 11.30–14.00 er
boðið upp á súpu, salat, ferskan fisk
og kjötrétt, sem auglýst er daglega
á Facebook-síðunni. „við erum mjög
virk á samfélagsmiðlunum okkar og
þar er alltaf hægt að sjá myndir af
rétti dagsins,“ segir Kristjana. Þá er
boðið upp á það ferskasta sem fæst
hverju sinni og tekur matseðillinn
mið af því.
Alls ekki langt í burtu
sumir telja að Hafnarfjörður sé
mjög langt frá miðborginni og því
ekki besti staðurinn til þess að opna
veitingastað, en Kristjana og einar
eru því algerlega ósammála. „Það er
ekki nema tíu mínútna akstur, korter
í versta falli, frá vesturbænum og
inn í Hafnarfjörð. Hér eru líka ætíð
næg bílastæði og Hafnarfjörður-
inn er þar að auki svo fallegur og
notalegur staður. Á von Mathúsi er
fallegt útsýni yfir smábátahöfnina,
sanngjarnt verð og mikil gæði,“ segir
Kristjana.
von Mathús er til húsa að
strandgötu 75, 220 Hafnarfirði.
opnunartími: alla daga nema
mánudaga frá 11.30–14.00 og
17.30–21.00. sími: 583-6000. email:
info@vonmathus.is
nánari upplýsingar má nálgast
á vefsíðunni vonmathus.is og á
Facebook-síðu staðarins. einnig eru
þau með instagram-síðuna von
Mathús&Bar.
Gleðilega Páska
Húsið býður
ykkur velkomin
til Ísafjarðar
Laxavaflan ómótstæðilega