Dagblaðið Vísir - DV - 11.04.2017, Blaðsíða 84
Páskablað 11. apríl 2017KYNNINGARBLAÐ4 Gott í gogginn
Þegar nýir eigendur tóku við Keiluhöllinni í Egilshöll var eitt af fyrstu verkefnum
þeirra að breyta veitingastaðnum
sem þar hafði verið starfræktur.
Eftir nokkurra mánaða tilraunaeld-
hús og prufukeyrslur var Shake &
Pizza stofnaður haustið 2015.
Sérhönnuð ostablanda og
sykurlaust pizzudeig
Markmiðið með staðnum var
að bjóða upp á hágæða pizzur úr
hágæða hráefni og með nýjum
áherslum. Mikið var lagt í undir-
búning á staðnum og það var
markmið að ögra öllum viðmiðum
þegar kom að pizzu. Allt skyldi
þróað frá grunni.
Sem dæmi var
þróuð sérstök
ostablanda úr
fjórum mismun-
andi ostum til að
ná fram rétta
ostabragðinu
og réttri áferð.
Ostablanda
Shake & Pizza
saman stendur
af Cheddar,
Gouda,
Mozzarella og
Maribo. Einnig
var sett saman
algjörlega ný
pizzusósa með
parmesanosti
og sérstaklega
samsettri krydd-
blöndu sem gerir
sósuna svo góða að
hún er notuð sem dip-
sósa með öðrum forréttum.
Pizzudeigið var einnig prófað í
þaula og er án viðbætts sykurs,
en flestallir pizzustaðir
eru með sykur í deiginu.
Sykurleysið gerir deigið
léttara í maga og
áferðina almennt
ferskari.
Öðruvísi pizzur
„Strax í upphafi var
ákveðið að setja
saman öðruvísi
pizzur í bland við
klassískar og allar
skyldu þær vera 12” að
stærð. Það að hafa allar
pizzur 12” er stór þáttur í
gæðum staðarins, því að aðrar
stærðir eru hreinlega ekki eins
góðar. Í 12” stærðinni er hlutfall
áleggs, deigs og sneiðar rétt. Enda
var og er 12” stærðin hin eina
sanna pizzustærð,“ segir Sigmar
Vilhjálmsson, framkvæmdastjóri
Shake & Pizza.
„BBQ Kjúklingapizza, HotWings-
pizza með gráðaostasósu til hliðar,
Pulled Pork BBQ-pizza, Sesarsal-
at-pizza og pizza með Mozzarella-
ostastöngum og nachos-ostasósu
eru dæmi um pizzur sem eru ekki
á hverju strái. LasVegans-pizzan
er ný á matseðli en hún er 100%
vegan, með tómatpúrrusósu, vega-
nosti, sætum kartöflum, rauðlauk,
sveppum , ananas og jalapeno.
Hún hefur verið gríðarlega vinsæl
frá því að hún kom á matseðil og
við finnum fyrir miklu þakklæti
meðal vegan-fólks á Íslandi.“
Beikonsultupizzan er vinsælust
Beikonsultupizzan er furðulegasta
og vinsælasta pizzan hjá Shake
& Pizza. Í stað pizzusósu er sett
beikonsulta sem gefur pizzunni
sætubragð og setur hana strax
á nýjar slóðir þegar kemur að
pizzum. Ofan á beikonsultuna
er síðan sett dálítið af jalapeno,
sem er mótvægi við sætuna enda
sterkur pipar. Þetta jafnvægi á milli
sætu og sterkju er meginkjarninn í
þessari pizzu. Síðan er pepperóní
og kjúklingur á pizzunni sem gefur
henni salt og fyllingu. Osturinn fer
síðan yfir hráefnið og pizzan er
bökuð. Eftir að hún kemur úr ofnin-
um er ferskt nachos, sem er steikt
á staðnum daglega, brytjað yfir
pizzuna, og loks er hvít topping-
sósa Shake & Pizza sett yfir til að
ramma þetta allt saman inn.
Beikonsultan til Las Vegas
Í mars 2016 fóru Vilhelm Einarsson
og Sigmar Vilhjálmsson með
Beikonsultuna í stærstu pizzu-
keppni í heimi, International Pizza
Expo. Beikonsultupizzan fékk þátt-
tökurétt í flokknum „International
Non-Traditional pizzas“ sem er
eftirsóttasti flokkurinn. En eins
og nafnið ber með sér er þetta
flokkurinn þar sem þátttakendur
keppa um nýjungar og nýsköpun í
pizzugerð. Af þeim 50 pizzum sem
tóku
þátt í
úrslit-
um hafn-
aði Beikon-
sultupizzan í
4. sæti. En það
munaði aðeins
0,02 stigum að pizz-
an hefði hreppt 3. sætið.
Þessi árangur er mjög
merkilegur því þarna eru saman
komnir margir af bestu pizzu-
stöðum heims. Aldrei áður í sögu
keppninnar hefur beikonsulta verið
notuð á pizzu og aldrei áður hafa
Íslendingar tekið þátt í þessari
keppni. Það vakti því ansi mikla
athygli að Ísland skyldi eiga fulltrúa
og hvað þá ná 4. sæti í sinni fyrstu
keppni. „Villi stóð sig fáránlega vel
í þessari keppni, enda er pressan
mikil og þér er skammtaður
ákveðinn tími til að skila af þér
fullskapaðri vöru. Hann er með
stáltaugar drengurinn og stóð sig
ótrúlega vel,“ segir Sigmar.
Shake & Pizza í Krónunni
Vinsældir Shake & Pizza hafa verið
gríðarlegar frá því að Beikonsultan
sló í gegn í Las Vegas. „Beikon-
sultupizzan er langvinsælasta pizza
staðarins og voru fyrirspurnir um
hvar hægt væri að nálgast beikons-
ultu frá viðskiptavinum kveikjan
að því að Shake & Pizza ákvað að
hefja framleiðslu á sultunni til sölu í
verslunum,“ segir Sigmar.
Krónan sýndi því áhuga að
selja vörur Shake & Pizza í sínum
verslunum enda er ansi vinsælt hjá
fjölskyldum að búa til sínar eigin
pizzur heima. Eftir að Krónan sá
hvaða metnað Shake & Pizza setti
í pizzusósuna, ostablönduna og
pizzudeigið, þá vildi Krónan hefja
sölu á allri vörulínunni, ekki bara
Beikonsultupizzan
Var valin 4. besta
pizza í heimi í
stærstu pizzukeppni
í heimi, International
Pizza Expo.
Fjórða besta pizza í heimi er á Íslandi
Shake & Pizza ÞEGAr OrðINN NæSTSTærSTI PIzzuSTAður LANdSINS