Dagblaðið Vísir - DV - 12.05.2017, Qupperneq 4
4 Helgarblað 12.–15. maí 2017fréttir
65 prósent
telja efnahags-
ástandið gott
Rúm 65 prósent Íslendinga telja
efnahagsstöðuna á Íslandi í dag
vera góða en 35 prósent telja að
hún sé slæm. Hærra hlutfall karla
en kvenna telur efnahagsstöðuna
á Íslandi í dag vera góða.
Þetta sýnir nýleg könnun
MMR. Af körlum sögðust 10 pró-
sent telja efnahagsstöðuna vera
mjög góða samanborið við 5 pró-
sent kvenna.
Aldurshópurinn 18–29 ára
reyndist líklegri en aðrir aldurs-
hópar til að segja efnahagsstöð-
una slæma en þar töldu 47 pró-
sent að efnahagsstaðan væri
slæm, þar af töldu 16 prósent að
efnahagsstaðan væri mjög slæm.
Hins vegar er aldurshópurinn 68
ára og eldri líklegri en aðrir til að
telja efnahagsstöðuna vera mjög
góða, eða 16 prósent.
Íslendingar í sérfræðistörfum
voru líklegri en aðrir til að telja
efnahagsstöðuna góða en náms-
menn voru líklegastir til að telja
hana slæma. Stuðningsfólk Sjálf-
stæðisflokks og Viðreisnar var
töluvert líklegra en stuðningsfólk
annarra flokka til að telja efna-
hagsstöðuna góða. Af stuðnings-
fólki Pírata töldu 25 prósent að
efnahagsstaðan væri mjög slæm.
Þá töldu tæp 57 prósent svar-
enda að efnahagsstaðan á Íslandi
myndi verða svipuð og í dag eftir
6 mánuði. Rúm 16 prósent töldu
að efnhagsstaðan yrði betri eftir
6 mánuði en 27 prósent að hún
yrði verri.
Konur reyndust ívið líklegri en
karlar til að telja að efnahagsstað-
an muni versna næstu 6 mánuði.
Af körlum töldu 19 prósent að
efnahagsástandið myndi batna,
samanborið við 14 prósent kvenna.
Af stuðningsfólki Viðreisnar
töldu 44 prósent að efnahagsstað-
an eftir 6 mánuði verði svipuð og
í dag, samanborið við 63 prósent
stuðningsfólks Samfylkingar og
62 prósent Sjálfstæðismanna.
Hlutfall kvenna
stendur í stað
Í lok árs 2016 voru konur tæp-
lega 26 prósent stjórnarmanna
fyrirtækja sem greiða laun og
skráð eru í hlutafélagaskrá. Hlut-
fall kvenna í stjórnum fyrirtækja
stendur í stað milli ára.
Fram kemur á vef Hagstof-
unnar að hlutfall kvenna í stjórn-
um fyrirtækja hafi verið á bilinu
21,3 prósent til 22,3 prósent á ár-
unum 1999 til 2006, fór svo hækk-
andi upp í 25,9 prósent árið 2015,
en stendur nú í stað milli ára.
Árið 2016 voru konur 32,3 pró-
sent stjórnarmanna í fyrirtækjum
með 50 launþega eða fleiri, en
voru 32,7 prósent árið 2015. Til
samanburðar var hlutfall þeirra
í stjórnum stórra fyrirtækja 12,7
prósent árið 2007 og 9,5 prósent
árið 1999.
Hlutfall kvenna í stöðu fram-
kvæmdastjóra hækkaði lítillega
frá fyrra ári, úr 21,9 prósent í 22,1
prósent, sem heldur áfram hæg-
fara aukningu sem sjá má allt frá
1999, eða allan þann tíma sem
gögn liggja fyrir. Hlutfall kvenna í
stöðu stjórnarformanna var 23,9
prósent í lok árs 2016, sem er
svipað og árið 2015.
Kóngarnir
á Kjalarnesi
kaupa fyrrum
eignir Brúneggja
Feðgarnir kaupa eignirnar í gegnum fjölskyldufélögin Stjörnugrís hf. og Stjörnuegg hf.
F
yrirtækin Stjörnugrís hf. og
Stjörnuegg hf., sem eru í eigu
sömu fjölskyldu, hafa undir-
ritað kaupsamning um að
kaupa allar fasteignir Gjá-
holts ehf. Kaupin eru með fyrirvara
um samþykki Samkeppniseftirlits-
ins og er niðurstöðu að vænta í lok
mánaðarins.
Um er að ræða eignir sem voru
áður í eigu Brúneggja ehf. Eins og al-
þjóð veit hvarf rekstrargrundvöllur
félagsins eins og dögg fyrir sólu eft-
ir umfjöllun Kastljóss í nóvemberlok
2016. Þar kom fram að félagið hefði
um árabil blekkt neytendur með sölu
á vistvænum eggjum sem voru 40%
dýrari en önnur egg. Í ljós kom að
aðbúnaður fuglanna var skelfilegur
og Matvælastofnun hafði gert fjöl-
margar athugasemdir við reksturinn
í gegnum árin.
Viðskipti Brúneggja ehf. stöðv-
ust nánast á einni nóttu og gjald-
þrot blasti við. Skömmu fyrir form-
legt gjaldþrot félagsins í byrjun mars
voru eignir félagsins seldar yfir í
Gjáholt ehf. Félagið var áður í eigu
forsvarsmanna
Brúneggja
en núver-
andi
eigendur eru sagðir vera kröfuhafar
félagsins en ekki er vitað hver á það
félag.
Sjónvarpskonan Rikka á hlut
Stjörnugrís hf. og Stjörnuegg hf.
eru fjölskyldufyrirtæki. Geir Gunn-
ar Geirsson yngri á 50% hlut í báð-
um fyrirtækjunum. Móðir hans, Hjör-
dís Gissurardóttir, á 50% hlut á móti
syni sínum í Stjörnueggjum hf.
en hún er einnig skráð fyrir
20% hlut í Stjörnugrís hf. Aðr-
ir hluthafar þar er ættfaðir-
inn Geir Gunnar Geirsson
eldri með 10% hlut og dæt-
ur hans, Hallfríður Kristín
og sjónvarpskonan Frið-
rika Hjördís Geirsdóttir
með 10% hlut hvor.
Samkvæmt heim-
ildum DV mun
Stjörnuegg kaupa
tvær fasteignir.
Annars vegar um
2.600 fermetra ali-
fuglabú að Braut-
arholti 5 en hina
fasteignina, sem
ekki liggur fyr-
ir hver er, hyggst
félagið selja frá
sér. Afganginn af
eignum Gjáholts
mun Stjörnu-
grís hf. kaupa
sam-
kvæmt
heim-
ild-
um
DV. Fasteignir Gjáholts eru með-
al annars lítið einbýlishús við Braut-
arholt 3 sem og nokkrar fasteign-
ir, hlaða, einbýlishús og tvö svínahús
á jörðinni Stafholtsveggir II í Staf-
holtstungnahreppi.
Stjórnarformaður Gjáholts, Sigurð-
ur Berntsson, staðfestir að fasteign-
ir félagsins hafi verið seldar en lætur
ekkert uppi um kaupandann að sinni.
„Það verður tilkynnt þegar
Samkeppniseftirlitið hefur veitt bless-
un sína. Ég er bjartsýnn á að þetta
gangi í gegn,“ segir Sigurður.
Þjóðin kjamsar á Brúneggjum
Fuglastofn Brúneggja er núna í eigu
Gjáholts og eru eggin seld í margs
konar iðnað. „Þau fara ekki á neyt-
endamarkað heldur eru þau brotin og
seld í margs konar framleiðslu, meðal
annars til bakaría.
Við tókum við rekstrinum þann
1. mars 2017 og þá voru aðeins um
tveggja daga birgðir í félaginu. Ég veit
ekki hvað varð um eggin fyrir þann
tíma,“ segir Sigurður og allar líkur á
að fjölmargir sem ákváðu meðvitað
að sneyða hjá eggjum sem kæmu úr
hænum í húsum að Brautarholti hafi
neytt þeirra.
Að hans sögn voru tveir möguleik-
ar í stöðunni þegar Gjáholt tók við, að
slátra hænunum eða að reyna að búa
til einhver verðmæti.
„Hænurnar sem við erum með
eru 45 vikna gamlar og eiga því eftir
að verpa í um 25 vikur í viðbót. Þetta
eru unghænur sem áttu að koma inn í
stækkun Brúneggja á sínum tíma. Það
er ekkert að þessum hænum eða að-
búnaði þeirra. Matvælastofnun heim-
sækir okkur að lágmarki einu sinni í
mánuði og því eru þessar hænur lík-
lega undir strangasta eftirliti landsins,“
segir Sigurður. n
Hænur
Gjáholt hefur frá
1. mars selt egg
undan hænum úr
Brúneggjastofni
í margs konar
iðnað. Stjórn-
arformaður
Gjáholts segir að
hænurnar séu
undir ströngu
eftirliti Mat-
vælastofnunar og
aðstæður þeirra
séu góðar.
Mynd SigtRygguR ARi
geir gunnar og Hjördís Hjónin eru umsvifamikil á eggja- og svínakjötsmarkaði.
Friðrika Hjördís Sjónvarpskonan vinsæla er
skráð fyrir 10% hlut í Stjörnugrís hf. Mynd SigtRygguR ARi
Brautarholt 5 Stjörnuegg
hf. hefur í hyggju að nýta húsið
undir starfsemi sína.
Björn Þorfinnsson
bjornth@dv.is